Gríma - 15.09.1931, Page 13
DRUKKNUN ELÍNAR í MIKLAGARÐI
11
Man eg það eg mokaði flór
með mjóum fingrabeinum.
Er eg nú kominn innstur í kór
með öðrum dándis-sveinum.
Séra Stefán var hamingjumaður og í miklum
metum. Samfarir þeirra Jórunnar og hans voru hin-
ar beztu og eignuðust þau dætur tvær, Margrétu og
Hildi. Margrét giftist Þorgrími Jónssjmi prests frá
Hálsi og bjuggu þau á Þóroddsstöðum í ólafsfirði.
Þeirra son var Jón bóndi á Skáldalæk í Svarfaðar-
dal, er þar bjó 1810—1822. — Sonur Hannesar
sýslumanns og Jórunnar var Lárus klausturhaldari
Scheving, er fyrst bjó á Urðum og síðar í Garði
norður.
Eftir lát Stefáns prófasts í Laufási, fluttist hús-
frú Jórunn að Grund í Höfðahverfi, kirkjujörð frá
Laufási, og bjó þar 21 ár. Hún dó 1775. Hún var
nafntoguð kona fyrir dyggðir og mannkosti, eink-
um guðrækni sína, ölmusugjafir við fátæka og allan
höfðingsskap.
3.
Drnkknun Glínar.
(Sögn Ólafs Guðmundssonar. Eftir handriti Hannesar Jóns-
sonar í Hleiðargarði).
ólafur Guðmundsson, sem lengi bjó í Hleiðargarði
í Eyjafirði, ólst upp hjá foreldrum sínum í Rauð-
húsum í sömu sveit. Um það leyti bjó í Miklagarði
séra Hallgrímur Thorlacius, sem hélt það brauð