Gríma - 15.09.1931, Page 15

Gríma - 15.09.1931, Page 15
DRUKKNUN ELÍNAR í MIKLAGARÐI 13 ið og væru að syngja þar; en þegar hann kom heim, voru þeir þar fyrir og höfðu ekki í gilið komið. Þótti líklegt, að lík Elínar hefði verið að berast nið- ur gljúfrin um það leyti, sem Stefán heyrði sönginn. Veturinn eftir þenna atburð hafði ólafur í Rauð- húsum fjárgeymslu á hendi fyrir föður sinn. Hirti hann sauði, sem hafðir voru í húsi syðst og neðst í túninu. Eitt kvöld, þegar gott var veður, vantaði nokkra af sauðunum, en ólafur hirti ekki um það, heldur gekk upp að Völlum einhverra erinda. Stóð hann þar við stundarkorn og hélt svo heimleiðis. Ás nokkur er á milli bæjanna, og er hann kom á ásinn, heyrði hann hljóð mikið og ógurlegt til árinnar; nam hann staðar og hlustaði, en þegar hann heyrði ekkert meira, hélt hann af stað aftur. Jafnskjótt heyrði hann hljóðið öðru sinni og nam þá aftur staðar, en það fór á sömu leið hvað eftir annað; þegar hann stóð kyrr, heyrði hann ekkert, en jafn- skjótt sem hann fór af stað aftur, heyrði hann hljóðin við og við; virtust þau nálgast hann því meir sem honum miðaði heimleiðis. Þegar hann kom í túnjaðarinn í Rauðhúsum, heyrði hann hljóðin skamrnt fyrir ofan sig á slóð sinni. Gekk hann nú ofan að sauðahúsinu til þess að sjá, hvort sauðirnir hefðu ekki skilað sér heim á meðan hann var burtu, en þegar hann kom þangað, heyrði hann hljóð frá túnjaðrinum. Hraðaði ólafur sér þá heim, því að honum fór ekki að verða um sel. Þegar á bæjarhlað- ið kom, heyrði hann enn hljóð frá sauðahúsinu. Þóttist hann þá vita, að vera sú, er hljóðunum ylli, ætti erindi við sig, þar sem hún rekti slóð hans, og datt um leið í hug Elín og ummæli hennar. Vildi hann þá víst ekki bíða hennar, opnaði bæinn í skyndi

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.