Gríma - 15.09.1931, Síða 17
MÓHOSÓTTI HUNDTJRINN Ío
uðu þeir Albert, og vita menn ekki, með hvaða at-
vikum. Jón bróðir Alberts hafði ekki róið þenna dag.
Um kvöldið lagðist hann til svefns eins og vant var;
svaf hann einn í herbergi. Þegar hann var nýsofn-
aður, dreymdi hann, að Albert kæmi inn til sín og
héldi á tveim bókum; þekkti Jón að það voru Vída-
línspostilla og Péturs prédikanir, en um þær bækur
höfðu þeir bræður deilt nokkru áður. Lagði Albert
þær á borð þar í herberginu, kveikti á lampa, blað-
aði um stund í bókunum, andvarpaði og mælti:
»Báðar eru bækurnar góðar, og mjög góðar, en þó
ófullkomnar eins og öll mannanna verk«. Síðan laut
hann niður að Jóni, eins og hann ætlaði að kyssa
hann, en þá fann Jón til óbeitar, og er Albert varð
þess var, hætti hann við kossinn og mælti: »Nú, er
það þá svona? Mér er þá bezt að fara«. í þessum
svifum vaknaði Jón og sá Albert ganga frá rúminu
fram gólfið; sá hann svipinn glöggt, er hann bar við
glugga á herberginu. — Nokkru síðar frétti Jón
drukknun Alberts.
5.
Móhosótti hunóurlnn.
(Eftir handriti Hannesar Jónssonar í Hleiðargarði).
Sigurður Bjömsson hét bóndi, er lengi bjó í Hleið-
argarði í Eyjafirði um og eftir miðja 18. öld. Hon-
um var send sending sú, er nefnd var Hleiðargarðs-
slcotta og lengi hefur fræg verið (sbr. Þjóðsögur
Jóns Árnasonar). Sigurður gat þó varizt ásóknum