Gríma - 15.09.1931, Page 24

Gríma - 15.09.1931, Page 24
22 KERLINGARNAR 1 SELINU um og þrem vikum síðar átti hún ekki annað eftir en skyrslettu í kollu. Hugsaði hún til þess með skelf- ingu, er sulturinn færi að sverfa að, en svo var hún máttlítil og hrum orðin, að hún treysti sér ekki til að leita mannabyggða. Þá var það einn dag, að hún heyrði þungt fótatak úti fyrir og því næst var sels- hurðinni hrundið upp. Kom inn maður mikill vexti; var hann síðhærður og síðskeggjaður, með gráa hettu á höfði og klæddur gráum kufli; allur var hann grár af hélu frá hvirfli til ilja. Varð kerlingu mjög bilt við komu manns þessa, en herti þó upp hugann og spurði hann að heiti. Hann kvaðst Þorri heita, — »og muntu hafa heyrt mín getið áður«. Var sem hann hreytti orðunum út úr sér og harðlegur var hann á svip, en þó var kerling ekki verulega hrædd við hann. Litaðist komumaður um og hugði vandlega að forða kerlingar, en þegar hann sá að ekki var annað eftir en skyrslettan í kollunni, sagði hann vingjarnlega: »Vaxi og þiðniíkollu þinni, kerli mín«. Gekk hann síðan snúðugt út og kvaddi ekkí. Þegar hann var farinn, fór kerling að gá í kolluna, og sá hún þá að hún var orðin full upp á barma af skyri, slátri, súrum sviðum og ýmsu öðru góðgæti; var líka orðið þítt í henni, en áður hafði allt verið frosið. Varð kerling glöð við og þótti hafa vænkazt sitt ráð. Leið nú heill mánuður, og fór þá aftur að grynn- ast í kollunni. Þá var það eitt sinn að hún heyrði hvatlega gengið að dyrunum og var hurðinni hrund- ið upp. Kom þá inn stórvaxin kona og fasmikil; lagði af henni kuldanæðing. Hún var klædd hvítri skykkju og var kuldaleg á svip. Þótt kerling væri skelkuð, áræddi hún þó að spyrja konu þessa að

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.