Gríma - 15.09.1931, Blaðsíða 26

Gríma - 15.09.1931, Blaðsíða 26
24 KERLINGARNAR í SELINU henni blíðlega og spurði, hvernig henni hefði liðið ure veturinn, en kerling sagði sem farið hafði; kvað hún sér hafa orðið nokkuð bilt við heimsóknir hinna fyrri gesta og þó hefði sá síðasti verið einna óþýð- astur. Þá brosti mærin fagra og mælti: »Það mun hafa verið Einmánuður bróðir minn. Hann á það til stundum að vanda ekki búning sinn, er oft hvat- skeytlegur í framkomu og óvæginn, en í rauninni er hann vænsta skinn, ef menn taka honum rétt«. Síð- an leit mærin í kollu kerlingar og mælti: »Ekki má eg reynast þér ver en systkini mín; sæti það sízt á mér. Mæli eg svo um, að aldrei minnki í kollu þinni, þangað til þín verður vitjað. En áður en eg fer, ætla eg að segja þér, hver eg er. Eg heiti Harpa og muntu hafa heyrt mín getið, og ef til vill stundum að nokkru misjöfnu; má það til sanns vegar færast, því að dutlungalynd hef eg ætíð verið og ekki öll þar sem eg er séð, en í þetta sinn ætla eg að vera hvers manns hugljúfi. — Nú ætla eg ekki að tefja lengur, því að víða þarf við að koma«. Að svo mæltu kvaddi hún kerlingu alúðlega og fór leiðar sinnar. — Þegar kerling gáði í kollu sína, var hún orðin full af sperðlum, magálum, hangnum bringukollum og öðr- um gómsætum réttum, sem entust kerlingu fram eftir öllu vori. Nú er að segja frá þeim mæðgum heima, að þeg- ar liðið var nokkuð fram á vorið, sendu þær til sels- ins að vitja kerlingar. Voru þær hróðugar mjög, því að þær töldu víst, að kerling væri fyrir löngu oltin út af fyrir hor og harðrétti. En mjög brá þeim í brún, þegar heim var komið með hana feita og sæl- lega og svo tápmikla, að hún virtist hafa yngzt um tíu ár við seldvölina. Þótti þetta ekki einleikið, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Gríma

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.