Gríma - 15.09.1931, Side 29

Gríma - 15.09.1931, Side 29
KROSS VERÐUR EIGN ÁSKIRKJU 27 ur þú ekki syndgað oftar«. »Jú tvisvar var það«, heyrði ekkjan að sagt var í altarinu; hélt hún sjálf- sagt að það væri Kristur, sem þar væri, og sagði: »Jú, tvisvar var það«. »Nei, þrisvar var það«, heyrði hún þá að sagt var í altarinu. Hún hélt nú að sér hefði misheyrst í fyrra skiftið og sagði: »Þrisvar var það«. »Þá verður þú að gefa kirkjunni alla jörð- ina þína«, mælti prestur. Ekkju-auminginn játaði því og fékk prestur jörðina. 8. Kross yerðnr eign Áskirkjn. (Handrit Þorsteins M. Jónssonar. Eftir sögn Guðrúnar Ól- afsdóttur frá Útnyrðingsstöðum, nú í Ameríku, 1901) Einu sinni í pápískri tíð bjó ekkja á Krossi í Fell- um; átti hún sjálf jörðina. Svo bar við að hún lagð- ist mjög veik og var prestur sóttur til að skrifta henni, sem þá var siður. En þegar prestur kom að Krossi, var ekkjan sögð dáin. Prestur bað fylgja sér til hennar og var svo gert; djákninn var með í förinni. Þegar prestur kom inn, þar sem ekkjan lá, sagði hann að sér sýndist hún eigi vera dauð, og að sér virtist eins og hún vildi segja sér eitthvað. Hann laut þá niður að henni eins og hann væri að hlusta, og sagði: »Gaf hún enn, guðsmóðirin; gaf hún kirkjunni jörðina sína, — og skrifaðu djáknk. Djákninn gerði það, og hefur Kross síðan verið eign Áskirkju.

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.