Gríma - 15.09.1931, Page 41

Gríma - 15.09.1931, Page 41
SAGAN AF SVANLAUGU OG HALLÞÓRI 39 allt í fastasvefni, nema maður nokkur, sem stóð yfir fé í nánd við bæinn, því að það var þá siður þar í sveit að gæta ásauða nótt og dag á vorin, svo að þeir rynni ei á afrétt fyrir burð. Hallþór gengur þá til hans og kennir þar Grana bróður Svanlaugar. Verður hinn mesti fagnaðarfundur. Segir Grani, að engum hafi dottið í hug, að þau gæti verið lífs í ó- byggðum allan þann tíma, sem þá var liðinn, síðan þau hurfu. Grani fer nú heim með þeim og gengur fyrstur í bæinn, að láta foreldra sína vita um komu Svanlaugar og Hallþórs. Verður Hrólfur bóndi og kona hans fegnari en frá verði sagt afturkomu dótt- ur sinnar og svo Hallþórs. Var þá og sent eftir for- eidrum hans og má nærri geta fögnuði þeirra, er þau höfðu heimt einkason sinn og stoð sína og styttu úr dauðans greipum. Hrólfur bóndi býður þá Hallþóri hjá sér að vera, og fastnar honum Svan- laugu dóttur sína. Var það vilji beggja þeirra, svo sem vænta mátti. Litlu eftir þetta var safnað mönn- um, vel út búnum að vopnum og klæðum og öðru, er með þurfti, til þess að leita útilegumannanna. Var Hallþór foringi þeirra. Grani Hrólfsson fór og með honum. Urðu þeir sex saman, röskir menn og full- hugar. Eftir alllanga leit fundu þeir dalinn. Lögðu þeir niður í gjána á næturþeli, og komust svo í leynihellinn með vopnum sínum, og þó við illan leik; svo voru dyrnar þröngar. Svo náðu þeir hellunni, sem Hallþór hafði fellt fyrir hellismunnann, sem inn vissi í afhelli Svanlaugar, og komust þeir þá hljóð- lega í aðalhellinn. Sváfu útilegumenn í ullarbing og höfðu gæruskinn ofan á sér. Vöknuðu illvirkjarn- ir við illan draum; spruttu þeir upp, en byggðamenn réðust á þá, áður útilegumenn næði til vopna sinna.

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.