Gríma - 15.09.1931, Side 50
48
SAGAN AF GLÚMI OG GEIRDÍSI
frá sér og að rúmi Bjarnar. Þykist hann kenna Ref
útilegumann og undrast drauminn. Kemur honum
til hugar að þeir bræður muni þurfa liðs við. En það
er frá Birni að segja, að hann dreymir að Refur úti-
legumaður kemur að rúmi hans og kveður:
Liggið þið hér, en hryggur
hírist minn bróðir dýri
lamur við hellishamar.
— Horfinn er Refur af torfu.
Og er þá Eyvindur kominn að rúmi hans alklædd-
ur. En það var löngu fyrir rismál. Segir hann við
Björn, að nú muni vera mál að vitja sauða, því að
gott væri leitarveður, en hart á undan gengið.
»Löng mun verða leið til sauðahúsa í dag, bróðir,
en þó skal nú upp standa og eigi letja«, svarar Björn
og klæðist skjótt.
Þá vekur Eyvindur Geirdísi systur sína og segir
henni fyrirætlan þeirra bræðra. Hún fær honum þá
skarlatsklæði nýsaumuð og segir, að eigi skal Glúm-
ur vera ver búinn en aðrir menn, er hann kemur þar
í byggð. Kveðst hún munu gæta ein sauða, meðan
þeir væri heiman. Eftir það kveðjast þau, og biður
hún þá vel fara og heila aftur koma. Leggja þeirsíðan
af stað á eldishestum sínum og segir eigi af ferðum
þeirra, fyrr en þeir koma að fjárrétt útilegumanna.
Eru þar inni allir sauðimar og bera sig illa af sulti,
og þykjast þeir þá vita, að eitthvað muni tefja þá
bræður. Hleypa þeir út sauðunum, en fara síðan
heim að hellinum. Þar finna þeir Glúm. Liggur hann
með herðar að hellisveggnum, en má eigi upp standa
í móti þeim. Er hann þó all-hress og fagnar komu