Gríma - 15.09.1931, Side 72

Gríma - 15.09.1931, Side 72
70 HEYSKAPUR ÁLFA 17. Heyskapur a'lfa. (Eftir sögn Ólafs Arnórssonar hótelþjóns á Akureyri, 1906. Handrit Þorsteins M. Jónssonar). Það hefur verið gömul trú manna, að álfar feng- ist við sömu vinnu og mennskir menn, væru við hey- skap og svo framvegis. Til sönnunar því er saga sú, sem hér fylgir: Fyrir utan túnið á Bjarnarstöðum í Vatnsdal er tjörn nokkur allstór og vex stör upp úr henni; er hún slegin á hverju sumri. Fyrir vestan hana er tjarnarpollur, er stör vex einnig upp úr; er hann jafnan vaxinn vel, en sjaldan er hann sleginn, því að það hefur verið trú manna, að álfar ættu hann, og þegar menn hafa slegið hann, þá hefur þeim jafnan hefnzt fyrir það. Um það hafa gengið marg- ar sagnir. Einnig þykjast menn hafa séð álfa þar við heyskap. Árið 1893 flutti búferlum að Bjarnarstöðum Arn- ór Egilsson ljósmyndari. Hann hafði heyrt getið um trúna, sem lá á tjarnarpollinum og áleit hana hé- gilju eina. Annað sumarið, sem hann var þar, sló hann tjarnarpollinn, ásamt stærri tjörninni. Kerl- ing ein, er Björg hét, var á heimili hjá Arnóri. Nokkru eftir það er Arnór lét slá álfatjörnina, dreymdi Björgu, að kona kæmi til hennar og bæði hana að sporna við því, að tjarnarpollurinn væri sleginn oftar; kvað hún bónda mundi hefnast fyrir það, að hann hefði slegið hann. Kerling þóttist vita, að þetta væri álfkona, og þóttist lofa því, er hún

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.