Gríma - 15.09.1931, Page 73

Gríma - 15.09.1931, Page 73
HEYSKAPUR ÁLFA 71 bað hana. Sagði kerling frá draumnum, er hún vaknaði, og kvaðst fullkomlega trúa því, að svo færi, sem álfkonan sagði. Veturinn eftir var kúnum gefin störin úr álfa- tjörninni, og var moðið borið út fyrir stóðhross, er Arnór bóndi átti. Fyrsta daginn, sem þetta var gert, hvarf fallegasta hryssan úr stóðinu og fannst síðar dauð niðri í pytti þar langt í burtu. Sagði Björg kerling, að þetta væri hefnd frá álfum fyrir það, að tjarnarpollurinn hefði verið sleginn, en enginn trún- aður var lagður á orð hennar. Næsta sumar á eftir lét Arnór aftur slá álfatjörn- ina. Rétt á eftir dreymdi Björgu, að sama konan kæmi til hennar eins og fyrra sumarið; var hún döp- ur í bragði og átaldi bónda mjög fyrir það, að hafa slegið tjarnarpollinn; kvað hún bóndi mundu bíða t.jón fyrir aðgerðir sínar og hefndin skyldi einatt verða grimmari og grimmari, eftir því sem tjarnar- pollurinn yrði sleginn oftar. Kerling sagði frá draumnum og bað menn nú að taka eftir því, hvort ekki myndi leiða af því ógæfu, að slá álfatjömina. — Veturinn eftir missti Arnór bóndi helminginn af ám sínum úr ýmiskonar pest. Þriðja sumarið var það þurkdag einn á túna- slætti, að vinnumaður Arnórs, Markús að nafni, gekk meðfram tjörnunum og var að hyggja að ám. Honum verður litið út á álfatjörnina og sér að hún er öll slegin og stararflekkir í kring um hana; margt fólk er að taka saman störina, og er æma mikill gangur á því, alveg eins og það væri að flýja undan rigningu. Ekki sér hann þetta samt glöggt, heldur líkast því, sem í þoku væri. Fólkið virtist honum talsvert frábrugðið öðrum mönnum, aðallega að því

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.