Gríma - 15.09.1931, Blaðsíða 76
74
REIMLEIKINN í FLATATUNGU
og fóru upp á barðið til Ragnheiðar. Sáu þeir þá
komumann, kölluðu til hans og spurðu hann, hvort
hann vildi ekki koma inn í tjaldið og fá kaffi. Komu-
manni brá svo við, að hann hljóp á bak hesti sínum,
sló í hann og reið á harðastökki á móti hríðinni, í
stefnu á jökulinn. Piltarnir kölluðu enn til hans og
báðu hann að staldra við, koma inn til þeirra og
þiggja góðgerðir; hlupu þeir á eftir honum upp á
mela, sem voru þar skammt fyrir ofan. En komu-
maður anzaði þeim engu, heldur sló aftur í hestinn
og hvarf brátt úr augsýn þeirra, Sneru piltarnir þá
aftur til tjaldanna. — Veðrið hélzt allan sunnudag-
inn, en á mánudaginn var stytt upp. Röktu þá grasa-
menn förin eftir hest komumanns alla leið fast upp
undir jökul; var það væn klukkutíma ferð. Þegar að
jöklinum kom, misstu þeir af sporunum.
Taldi grasafólkið víst, að það hefði verið útilegu-
maður úr Langjökli, er það hefði séð á rauðskjótta
hestinum, en ekki varð það vart við hann framar.
19
Relmlelkar í Flatatungn.
(Eftir handriti Hannesar Jónssonar í Hleiðargarði. Sögn
Jóns Jónssonar á Finnastöðum).
Jón Jónsson, sem lengi átti heima á Finnastöðum
í Eyjafirði, var vinnumaður í Flatatungu í Skaga-
firði skömmu fyrir 1860. Þá bjó þar bóndi sá, sem
Gísli hét. Um það leyti drukknaði í Jökulsá vestari
maður nokkur frá Grímsstöðum, sem hét Einar. Var
hann á leið að Bakkagerði með brennivínskút og ætl-