Gríma - 15.09.1931, Page 80

Gríma - 15.09.1931, Page 80
78 DAUÐI BRANDS í HAGA fjallið, sem nefnt er Merkjaárgil ; eftir því rennur lítil árspræna, Merkjaá. Við vorurn við vinnuna rétt á móti gilinu. Veður var bjart og logn. Þá heyr- um við öll vælulegt hljóð eða kall uppi í gilinu; líkt- ist það því nákvæmlega, að sagt væri með grát- hljóði: »Mam-ma!« Öll heyrðum við þetta jafn- glöggt, á að gizka fimm sinnum, með litlu millibili. Töldum við alveg víst, að þar væri barn, sem villzt hefði frá bæ sínum. Bað eg því manninn, sem hjá mér var, að hlaupa yfir í gilið og leita með mér. Þegar þangað kom, leituðum við vandlega, en fund- um hvorki barn né neitt annað, er hljóð þessi gæti komið frá. Mér datt í hug, að þetta hefði verið sauð- kindarjarmur og heyrzt taka þannig undir í gilinu, en þar sást hvergi kind nálægt. — Þess má geta, að hljóðin hættu, þegar við hlupum af stað og heyrðust ekki eftir það. 22. Danði Brands í Haga. (Eftir sögn gamallar konu úr Aðalreykjadal 1906. — Henni sagði Sigurgeir Björnsson, er var ungur í Haga, er saga þessi gerðist, og fullyrti hann, að sagan væri sönn. Handrit Þorsteins M. Jónssonar). Nokkru fyrir 1850 bjó bóndi sá í Haga í Aðal- reykjadal, er Björn hét. Hjá honum var húsmaður sá, er Brandur hét. Brandi var í nöp við bónda, sem þá bjó á Sandi og höfðu þeir oft í heitingum hvor við annan. Eitt sinn á páskadagsmorgun sá fólkið í Haga, að Brandur var undarlegur fremur venju. Hóll einn er fyrir vestan bæinn í Haga og gekk Brandur vestur

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.