Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 1
8. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 26. apríl ▯ Blað nr. 513 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Gríðarlegar breytingar og mikil hagræðing hafa átt sér stað í rekstri kúabúa við Eyjafjörð á síðustu 40 árum: Eyfirskum kúabúum hefur fækkað úr 250 í 83 en framleiðslan þrefaldast – Nú er því spáð að búunum fækki enn um 17 fram til 2028 en að framleiðslan verði þá orðin fimmfalt meiri en 1978 Eyfirskir kúabændur eru ekkert að gefa eftir þótt búum hafi fækkað verulega og muni halda áfram að fækka á næstu árum. Þrátt fyrir fækkun reiknar Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, með því að mjólkurframleiðslan muni aukast um ríflega þriðjung frá því sem nú er á næstu tíu árum. Fyrir 40 árum, eða árið 1978, voru rekin 250 kúabú í Eyjafirði. Á þessum búum voru að meðaltali 27 árskýr á hverju búi og nam heildarframleiðslan um 110 þúsund lítrum. Tíu árum seinna, eða árið 1988, hafði búunum fækkað um 30 og voru þá 220, en árskúm hafði að meðaltali fjölgað í 32 á hvert bú. Þannig tókst að halda svipaðri heildarframleiðslu og áður. Frá 1998 til 2008 urðu miklar sviptingar í rekstri kúabúa í Eyjafirði. Fækkaði búunum þá úr 220 í 98 en árskýr á hverju búi voru þá orðnar að meðaltali 47,6. Enn hélt fækkun kúabúa áfram og á þessu ári eru einungis 83 bú eftir, en árskýr að meðaltali 56 á hverju búi. Í þessu umróti öllu vekur athygli að þótt búum hafi fækkað um 167 á 40 árum, þá hefur mjólkurframleiðan ríflega þrefaldast, eða úr 110 þúsund lítrum í 365 þúsund lítra. Framleiða eyfirskir kúabændur nú um 19% af allri mjólk sem framleidd er í landinu. Búist er við að kúabúum í Eyjafirði muni enn fækka á næstu tíu árum, eða í 66 bú. Sigurgeir spáir því að meðalmjólkurafurðir eyfirskra kúabúa muni jafnframt aukast á næsta áratug, eða úr 6.500 lítrum í 8.000 lítra á hverja kú. Það muni leiða til þess að heildarframleiðsla eyfirskra kúabænda aukist í 580 þúsund lítra og hafi þá ríflega fimmfaldast á 50 árum áður, eða frá 1978. /MÞÞ/HKr. –Sjá nánar bls. 2 Á sumardaginn fyrsta fæddust fyrstu lömbin á bænum Grindum í Deildardal, skammt frá Hofsósi í Skagafirði. Heimasæturnar á bænum, þær Bjarkey Dalrós og Sigurrós Viðja, stilltu sér upp með öðru lambinu og litla bróður sínum, Birgi Smára Dalmann, sem varð tveggja mánaða sama dag. Mynd / Auður Björk Birgisdóttir Hafsteinn Hafliðason hlaut heiðursverðlaun garðyrkjunnar 7 Þörungarækt gæti orðið næsta bylting í íslenskum landbúnaði 32–33 Fyrsti tómatbjór landsins frá Friðheimum 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.