Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
Fyrstu hleðslustöðvarnar frá
Hlöðu ehf. voru afhentar tveimur
bændum í verkefninu „Hleðsla í
hlaði“ á dögunum.
Það voru þeir feðgar Jón Zimsen
og Knútur Dúi Kristján Zimsen,
sem reka gistiheimilið Dranga á
Skógarströnd, og Guðmundur Freyr
Kristbergsson á Háafelli í Hvítársíðu
sem tóku á móti gripunum. Þeir
eru meðal stækkandi hóps bænda
sem hyggur á uppsetningu á
rafhleðslustöðvum á sínum búum
til þess að þjónusta rafbílaeigendur.
Ólafur Davíð Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Hlöðu, sagði
við þetta tækifæri að margir væru
áhugasamir um að setja upp
hleðslustöðvar og nú væri bændum
ekkert að vanbúnaði. Hann sagði að
stöðvarnar á Dröngum og á Háafelli
væru hluti af nýrri sendingu sem var
að berast til landsins.
IKEA í fararbroddi
Á fimmta tug bænda í Hleðslu í hlaði
og í Félagi ferðaþjónustubænda
heimsóttu IKEA 11. apríl þar sem
tilgangurinn var að kynna sér
starfsemi húsgagnarisans. IKEA er
með um 60 hleðslustöðvar fyrir utan
verslunina og býður rafbílaeigendum
að hlaða á meðan þeir sinna erindum
í búðinni.
Að sögn Þórarins Ævarssonar,
framkvæmdastjóra IKEA, hefur
reynslan verið góð og rafbílaeigendur
sérlega ánægðir með þjónustuna.
Engin teljandi vandamál hafa komið
upp í rekstri hleðslustöðvanna að
hans sögn. /TB
Bændur bjóða upp á hleðslu í hlaði
Landbúnaðarráðherra kynnti sér einangrunarstöðina á Stóra-Ármóti:
Væntanlega fæðast fyrstu 11 Aberdeen
Angus-kálfarnir í september
– Óskað eftir 30 til 35 fósturvísum frá Noregi til viðbótar sem koma í maí
Kristján Þór Júlíusson
landbúnaðar ráðherra og Ólafur
Friðriksson úr ráðuneytinu
heimsóttu nýlega nýju ein-
angrunar stöðina á Stóra-Ármóti
í Flóahreppi til að kynna sér
starfsemina.
Á stöðinni verða ræktaðir
Aberdeen Angus nautgripir.
Fósturvísum var komið fyrir í 32
kúm í desember 2017 en eftir skoðun
kom í ljós að aðeins 11 kýr höfðu fest
fang. Þær munu bera í september.
Óskað hefur verið eftir 30–35 nýjum
fósturvísum frá Noregi sem koma þá
til landsins í lok maí og verða settir
upp í ágúst. /MHH
Fulltrúar fjarskiptasjóðs og
sveitarfélaga hafa skrifað undir
24 samninga um styrki fjarskipta-
sjóðs vegna ljósleiðaravæðingar
sveitarfélaga í tengslum við
landsátakið Ísland ljóstengt.
Sigurður Ingi Jóhanns son,
samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra, staðfesti samningana
með undirskrift sinni við athöfn í
ráðuneytinu fyrir skömmu.
Sveitarfélögin 24 fá samtals 450
milljónir króna í styrki, á bilinu 2 til
74 milljónir króna hvert. Þar á meðal
er Húnaþing vestra, sem fær samtals
36,3 milljónir.
Auk styrkja frá fjarskiptasjóði
leggja íbúar og sveitarfélög að
lágmarki 350.000 kr. af mörkum
vegna hverrar tengingar en í mörg-
um tilfellum er þörf á töluvert hærra
framlagi heimamanna. Í þeim til-
fellum að sveitarfélag ætlar ekki
að eiga og reka eigið kerfi greiða
fjarskiptafyrirtæki fyrir það að
eignast slík kerfi eða reka fyrir
hönd sveitarfélagsins.
/MÞÞ
Ljósleiðaravæðing sveitarfélaga:
Samningar um styrki
við 24 sveitarfélög
Sveitarstjórn Sveit arfélagsins
Skaga strandar fagnar til komu nýs
frumvarps atvinnu veganefndar
um strandveiðar. Í ályktun sem
sveitarstjórn hefur sent frá sér
segir að frumvarpið leitist við
að auka öryggi, jafnræði og efla
strandveiðikerfið í heild.
Jákvætt sé að í frumvarpinu
er gert ráð fyrir auknum
aflaheimildum í kerfið og litið er
til aukins frjálsræðis hvað varðar
val á veiðidögum. Báðir þessir
þættir munu styrkja samfélög við
Húnaflóa.
Leggjast gegn kvótapotti
Sveitarstjórn leggst hins vegar
alfarið gegn þeim hugmyndum
frumvarpsins er lúta að því að hafa
landið allt sem einn kvótapott fyrir
strandveiðar þar sem Fiskistofa
hafi svo heimildir til þess að
stöðva veiðar þegar heildarmagni
er náð. Slíkar breytingar muni
valda miklum tilfærslum á því hvar
strandveiðar munu verða stundaðar
og því stórlega veikja margar
fiskihafnir og hreinlega ógna
rekstrargrundvelli fiskmarkaða,
meðal annars við Húnaflóa.
Að því leyti fari frumvarpið
gegn upphaflegu markmiði með
strandveiðum þar sem leitast var
við að styrkja sjávarbyggðir.
Sveitarstjórn skorar á sjávar-
útvegsráðherra að halda áfram
að skilgreina ákveðið magn til
einstakra svæða eins og verið hefur
en leitast við að ná fram jöfnuði í
aflaverðmætum á milli svæða með
því að láta aukningu aflamagns skila
sér hlutfallslega hærra inn á svæði
þar sem meðalaflaverðmæti hefur
verið lægra. Að öðrum kosti verði
sjávarútvegsráðherra að tryggja
öllum bátum á öllum svæðum
að lágmarki 48 veiðidaga óháð
aflamagni sem slíkar veiðar myndu
leiða af sér.
Sveitarstjórn telur með öllu
ófært að ríkisvaldið standi
fyrir tilraunastarfsemi með
fiskveiðikerfi eins og strandveiðar
án þess að taka sjálft ábyrgð á
afleiðingum þeirra breytinga.
Sjávarbyggðir og smærri fyrirtæki
eiga ekki að þurfa að taka á
sig afleiðingar slíkra tilrauna,
segir í ályktun sveitarstjórnar
Skagastrandar. /MÞÞ
FRÉTTIR
Landbúnaðarráðherra og Ólafur Friðriksson með stjórn Nautís, sem tók á móti þeim í nýju einangrunarstöðinni.
Af því tilefni var stjórninni afhent skjal með þökk fyrir góðar móttökur, sem Sigurður Loftsson, formaður stjórnar
Nautís, tók við. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Hér er afburðanautið 74039 Li’s Great Tigre (Stóri Tígur) sem er faðir 10 af
þeim 11 kálfum sem von er á í september á Stóra-Ármóti.
Jón Zimsen og Knútur Dúi Kristján
Zimsen með nýju rafhleðslustöðina.
Þórarinn Ævarsson framkvæmda-
stjóri IKEA segir góða reynslu af
rafhleðslustöðvum við IKEA.
Ólafur Davíð Guðmundsson og Þórður Aðalsteinsson frá Hlöðu ehf. afhenda Guðmundi Frey Kristbergssyni á
Háafelli hleðslustöð fyrir rafbíla. Myndir /TB
Melabúðarmótið í íshokkí
fer fram nú um helgina 28.–
29. apríl í Skautahöllinni i
Laugardal á vegum Skautafélags
Reykjavíkur.
Alls taka þátt 18 lið, um 150
keppendur í 5., 6. og 7 flokki á
aldrinum 5–12 ára. Þátttakendur
eru frá Skautafélagi Akureyrar,
Birninum í Grafarvogi og
Skautafélagi Reykjavíkur. Mótið
hefst með opnunarhátíð kl. 19.00–
20.00 föstudag þar sem þjálfarar
sýna listir sínar. Sjálft mótið hefst
svo á laugardag kl. 8.00–16.45
og lýkur um hádegi á sunnudag.
Melabúðarmótið í íshokkí
Sveitarstjórn Skagastrandar:
Fagnar nýju frumvarpi
um strandveiðar
Frá Skagaströnd. Mynd / HKr.