Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 TILRAUNASTÖÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS Í MEINAFRÆÐUM AÐ KELDUM Erindi á vísindadegi á Keldum um sýklalyfjaónæmar bakteríur í dýrum á Íslandi: Margvíslegar leiðir inn í landið fyr- ir ónæmar bakteríur – Ein mesta heilbrigðisógn heimsins Vísindadagur var haldinn síð- astliðinn föstudag á bókasafni Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum, í til- efni af 70 ára afmæli hennar á þessu ári. Meðal áhugaverðra erinda sem þar voru flutt var erindi Þórunnar Rafnar Þorsteinsdóttur um sýklalyfjaó- næmi í dýrum, en þar kom fram að það væri ein stærsta ógn við lýðheilsu í heiminum í dag. Þórunn starfar sem verkefnastjóri í sýklalyfjanæmi við sýkla- og bóluefnadeild Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræð- um að Keldum. Blaðamaður spurði Þórunni um nokkur atriði efnis erindisins. Hún segir að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO), Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafi hvatt aðildarþjóðir sínar til að efla rann- sóknir sem nýta mætti til að stemma stigu við þessari ógn. Aukið ónæmi baktería fyrir sýklalyfjum valdi vandamálum við meðferð sýkinga og hafi þar af leiðandi slæmar afleiðingar fyrir heilsu manna og dýra – og valdi auknum kostnaði við heilbrigðisþjónustu. Leiðir opnast fyrir sýklalyfjaónæmar bakteríur Að sögn Þórunnar hefur sýkla- lyfjanotkun bæði í mönnum og dýrum áhrif á uppkomu og dreifingu ónæmra bakteríustofna. Sýklalyfjaónæmar bakteríur og ónæmisgen geti svo borist milli manna og dýra, með beinni snertingu, í gegnum umhverfið og í gegnum matvæli. Með auknum ferðalögum og viðskiptum með matvæli og dýraafurðir heims- horna á milli opnist einnig leiðir fyrir sýklalyfjaónæmar bakteríur til að dreifa sér. „Það er mikill munur milli landa hvað varðar sýklalyfjanæmi baktería í dýrum og mönnum. Almennt er algengi sýklalyfjaónæmra baktería í dýrum meira eftir því sem sunnar dregur í Evrópu. Algengi sýklalyfjaónæmra baktería er líka meira í mörgum Asíulöndum, svo sem á Indlandi og í Kína. Almennt er það þannig að eftir því sem dýraeldi er stærra í sniðum – og verksmiðjubúskapur algengari – þar er meiri sýklalyf- janotkun. Staðan á Íslandi er um margt áþekk því sem við sjáum hjá hinum Norðurlandaþjóðunum. Ferðamenn, matvæli og aðrar dýraafurðir geta borið með sér sýklalyfjaónæmar bakteríur hing- að til lands og geta þá komið frá löndum þar sem algengi sýkla- lyfjaónæmis er meira en hér á landi. Munum þó að Íslendingar eru líka ferðamenn og ferðast vítt og breitt um heiminn og geta þá borið ónæmar bakteríur með sér heim. Aukinn ferðamannastraum- ur, aukin ferðalög Íslendinga og aukinn innflutningur eykur þá líkur á að ónæmar bakteríur berist hing- að,“ segir Þórunn. Ónæmar bakteríur í alifuglum, svínum og nautgripum „Hingað til höfum við leitað að ónæmum bakteríum í svínum og alifuglum og kjötafurðum þeirra og svo í nautgripakjöti. Við höfum fundið ónæmar bakteríur í bæði dýrunum og kjötafurðum þeirra,“ segir Þórunn spurð um tilfelli ónæmra baktería á Íslandi. „Það hefur þó oftast verið lítið ónæmi, það eru ekki fjöl ónæmar bakterí- ur. Almennt er algengi sýklalyfja- ónæmra baktería í dýrum á Íslandi lágt. Ekki er algilt að þó að ónæmar berist í kjötafurðirnar. Og þó að þær finnist í kjötafurðunum þá er alls ekkert víst að þær berist í menn, enda ef kjötið er meðhöndlað og eldað með fullnægjandi hætti þá drepast bakteríurnar.“ Þórunn segir að víða hafi óvar- lega verið farið með sýklalyfja- notkun í dýrum og mönnum og það skýri að vissu leyti hina erfiðu stöðu á heimsvísu. „Dýrum er víða gefin sýklalyf sem vaxtarhvetjandi þáttur, þá eru lyfin gefin heilli heil- brigðri hjörð í lágum skömmtum, en lágur styrkur sýklalyfs er líklegri til að upp komi ónæmar bakteríur. Tíðni stökkbreytinga og tíðni flutnings á erfðaefni (t.d. plasmíð- um) eykst. Þessi notkun, sem vaxt- arhvetjandi þáttur, er ekki lengur leyfð í Evrópu og hefur aldrei verið leyfð á Íslandi. Í sumum löndum eru sýklalyf fyrir fólk ekki lyfseðilsskyld – og jafnvel þó þau séu lyfseðilsskyld þá er eftirlit með þeim ekki gott og hægt að kaupa þau beint yfir búðarborðið. Það er líka hægt að kaupa sýklalyf á netinu. Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin (WHO) hefur skilgreint sýklalyfjaónæmi sem eina af mestu heilbrigðisógnum heimsins. Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (European Centre for Disease Prevention and Control) áætlar að í Evrópu einni komi upp um það bil 400 þúsund sýkingar á ári hverju af völdum ónæmra sýkla sem leiða til um 25 þúsund dauðsfalla.“ Erum áratugum eftir á með eftirlitið en á réttri leið „Við erum áratugum á eftir öðrum Norðurlandaþjóðum í eftirliti með sýklalyfjaónæmum bakteríum í dýrum. Varðandi fyrirkomulag eft- irlits er unnið eftir ákvörðun ESB númer 652/2013. Matvælastofnun (MAST) hefur farið eftir þessari ákvörðun að fullu síðan 2017 en að hluta til var byrjað á því árið 2014. Í gegnum vef MAST má finna eftirlitsskýrslur um niður- stöður skimana á sýklalyfjaónæm- um bakteríum. Við erum því á réttri leið núna. Fram til 2014 var þetta mjög lítið rannsakað, ég gerði doktorsverk- efni á þessu sviði á árunum 2005– 2008 og eru það eiginlega einu gögnin sem við höfum um sýkla- lyfjaónæmar bakteríur í dýrum fyrir 2014. Einnig eru í gangi núna undir- búningsverkefni í samstarfi við Karl G. Kristinsson á Landspítalanum, MAST, Matís og erlendra aðila sem munu auka á þekkingu okkar á stöðunni á sýklalyfjaónæmum bakteríum í dýrum á Íslandi á næstu árum,“ segir Þórunn að lokum. / smh Bókasafnssalurinn á Keldum var þétt setinn á föstudaginn. Myndir / smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.