Bændablaðið - 26.04.2018, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
TILRAUNASTÖÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS Í MEINAFRÆÐUM AÐ KELDUM
Erindi á vísindadegi á Keldum um sýklalyfjaónæmar bakteríur í dýrum á Íslandi:
Margvíslegar leiðir inn í landið fyr-
ir ónæmar bakteríur
– Ein mesta heilbrigðisógn heimsins
Vísindadagur var haldinn síð-
astliðinn föstudag á bókasafni
Tilraunastöðvar Háskóla Íslands
í meinafræðum að Keldum, í til-
efni af 70 ára afmæli hennar á
þessu ári. Meðal áhugaverðra
erinda sem þar voru flutt
var erindi Þórunnar Rafnar
Þorsteinsdóttur um sýklalyfjaó-
næmi í dýrum, en þar kom fram
að það væri ein stærsta ógn við
lýðheilsu í heiminum í dag.
Þórunn starfar sem verkefnastjóri
í sýklalyfjanæmi við sýkla- og
bóluefnadeild Tilraunastöðvar
Háskóla Íslands í meinafræð-
um að Keldum. Blaðamaður
spurði Þórunni um nokkur atriði
efnis erindisins. Hún segir að
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO), Sameinuðu þjóðirnar
og Evrópusambandið hafi hvatt
aðildarþjóðir sínar til að efla rann-
sóknir sem nýta mætti til að stemma
stigu við þessari ógn. Aukið ónæmi
baktería fyrir sýklalyfjum valdi
vandamálum við meðferð sýkinga
og hafi þar af leiðandi slæmar
afleiðingar fyrir heilsu manna og
dýra – og valdi auknum kostnaði
við heilbrigðisþjónustu.
Leiðir opnast fyrir
sýklalyfjaónæmar bakteríur
Að sögn Þórunnar hefur sýkla-
lyfjanotkun bæði í mönnum
og dýrum áhrif á uppkomu og
dreifingu ónæmra bakteríustofna.
Sýklalyfjaónæmar bakteríur
og ónæmisgen geti svo borist
milli manna og dýra, með beinni
snertingu, í gegnum umhverfið og
í gegnum matvæli. Með auknum
ferðalögum og viðskiptum með
matvæli og dýraafurðir heims-
horna á milli opnist einnig leiðir
fyrir sýklalyfjaónæmar bakteríur
til að dreifa sér. „Það er mikill
munur milli landa hvað varðar
sýklalyfjanæmi baktería í dýrum
og mönnum. Almennt er algengi
sýklalyfjaónæmra baktería í dýrum
meira eftir því sem sunnar dregur í
Evrópu. Algengi sýklalyfjaónæmra
baktería er líka meira í mörgum
Asíulöndum, svo sem á Indlandi
og í Kína. Almennt er það þannig
að eftir því sem dýraeldi er stærra
í sniðum – og verksmiðjubúskapur
algengari – þar er meiri sýklalyf-
janotkun. Staðan á Íslandi er um
margt áþekk því sem við sjáum hjá
hinum Norðurlandaþjóðunum.
Ferðamenn, matvæli og aðrar
dýraafurðir geta borið með sér
sýklalyfjaónæmar bakteríur hing-
að til lands og geta þá komið frá
löndum þar sem algengi sýkla-
lyfjaónæmis er meira en hér á
landi. Munum þó að Íslendingar
eru líka ferðamenn og ferðast vítt
og breitt um heiminn og geta þá
borið ónæmar bakteríur með sér
heim. Aukinn ferðamannastraum-
ur, aukin ferðalög Íslendinga og
aukinn innflutningur eykur þá líkur
á að ónæmar bakteríur berist hing-
að,“ segir Þórunn.
Ónæmar bakteríur
í alifuglum, svínum og
nautgripum
„Hingað til höfum við leitað að
ónæmum bakteríum í svínum og
alifuglum og kjötafurðum þeirra
og svo í nautgripakjöti. Við höfum
fundið ónæmar bakteríur í bæði
dýrunum og kjötafurðum þeirra,“
segir Þórunn spurð um tilfelli
ónæmra baktería á Íslandi. „Það
hefur þó oftast verið lítið ónæmi,
það eru ekki fjöl ónæmar bakterí-
ur. Almennt er algengi sýklalyfja-
ónæmra baktería í dýrum á Íslandi
lágt. Ekki er algilt að þó að ónæmar
berist í kjötafurðirnar. Og þó að þær
finnist í kjötafurðunum þá er alls
ekkert víst að þær berist í menn,
enda ef kjötið er meðhöndlað og
eldað með fullnægjandi hætti þá
drepast bakteríurnar.“
Þórunn segir að víða hafi óvar-
lega verið farið með sýklalyfja-
notkun í dýrum og mönnum og
það skýri að vissu leyti hina erfiðu
stöðu á heimsvísu. „Dýrum er víða
gefin sýklalyf sem vaxtarhvetjandi
þáttur, þá eru lyfin gefin heilli heil-
brigðri hjörð í lágum skömmtum,
en lágur styrkur sýklalyfs er líklegri
til að upp komi ónæmar bakteríur.
Tíðni stökkbreytinga og tíðni
flutnings á erfðaefni (t.d. plasmíð-
um) eykst. Þessi notkun, sem vaxt-
arhvetjandi þáttur, er ekki lengur
leyfð í Evrópu og hefur aldrei verið
leyfð á Íslandi.
Í sumum löndum eru sýklalyf
fyrir fólk ekki lyfseðilsskyld – og
jafnvel þó þau séu lyfseðilsskyld
þá er eftirlit með þeim ekki gott
og hægt að kaupa þau beint yfir
búðarborðið. Það er líka hægt að
kaupa sýklalyf á netinu.
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin (WHO) hefur skilgreint
sýklalyfjaónæmi sem eina
af mestu heilbrigðisógnum
heimsins. Sóttvarnastofnun
Evrópusambandsins (European
Centre for Disease Prevention and
Control) áætlar að í Evrópu einni
komi upp um það bil 400 þúsund
sýkingar á ári hverju af völdum
ónæmra sýkla sem leiða til um 25
þúsund dauðsfalla.“
Erum áratugum eftir á með
eftirlitið en á réttri leið
„Við erum áratugum á eftir öðrum
Norðurlandaþjóðum í eftirliti með
sýklalyfjaónæmum bakteríum í
dýrum. Varðandi fyrirkomulag eft-
irlits er unnið eftir ákvörðun ESB
númer 652/2013. Matvælastofnun
(MAST) hefur farið eftir þessari
ákvörðun að fullu síðan 2017 en
að hluta til var byrjað á því árið
2014. Í gegnum vef MAST má
finna eftirlitsskýrslur um niður-
stöður skimana á sýklalyfjaónæm-
um bakteríum.
Við erum því á réttri leið núna.
Fram til 2014 var þetta mjög lítið
rannsakað, ég gerði doktorsverk-
efni á þessu sviði á árunum 2005–
2008 og eru það eiginlega einu
gögnin sem við höfum um sýkla-
lyfjaónæmar bakteríur í dýrum fyrir
2014.
Einnig eru í gangi núna undir-
búningsverkefni í samstarfi við Karl
G. Kristinsson á Landspítalanum,
MAST, Matís og erlendra aðila
sem munu auka á þekkingu okkar
á stöðunni á sýklalyfjaónæmum
bakteríum í dýrum á Íslandi á næstu
árum,“ segir Þórunn að lokum. /
smh
Bókasafnssalurinn á Keldum var þétt setinn á föstudaginn. Myndir / smh