Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 Á „Degi umhverfisins“, mið- vikudaginn 25. apríl, hófst átak Landverndar, Hreinsum Ísland. Dagana 25. apríl–6. maí vekja Landvernd og Blái herinn athygli á þeim hættum sem fylgja plast- mengun í hafi. Norðurlöndin taka höndum saman annað árið í röð og skipuleggja samstilltar strandhreinsanir þann 5. maí og munu Landvernd og Blái herinn standa fyrir hreinsun á Reykjanesi. Skorað er á almenning að taka þátt og skipuleggja sína eigin hreinsun. Góð ráð og leiðbeiningar má finna á heimasíðu átaksins. Þá er göngufólk og skokkarar hvött til að skrá sitt „plokk“ á hreinsumisland. is og verða allar hreinsanir birtar á Íslandskorti verkefnisins. „Við ætlum að hreinsa plastrusl úr náttúru Íslands. Vertu með!“ segir í áskorun frá Landvernd. „Við hvetjum alla til að leggja hönd á plóg og taka þátt í að minnka plastmengun. Þetta er hægt að gera með því að nota minna plast, kaupa minna og auka endurvinnslu. Fólk getur tekið þátt í skipulögðum strandhreinsunum eða skipulagt sína eigin hreinsun. Nánari upplýs- ingar má finna á síðunni hreinsu- misland.is og þar er hægt að skrá sig til leiks.“ Af hverju? Landið okkar er hafi umkringt og tengir það okkur við önnur lönd. Það mótar landið okkar og hefur gríðarlega mikil áhrif á veður og loftslag. Hafið gerir jörðina lífvænlega og hýsir og styður við vistkerfi um allan heim. Hafið og tilvera manna er bundin órjúfanlegum böndum og því mikilvægt að huga að heilbrigði hafsins. Fyrir fiskiþjóð eins og Ísland er hafið sérstaklega mikilvægt. Við höfum nýtt auðlindir hafsins í þúsund ár, nú er kominn tími til að við gefum eitthvað til baka og hreinsum strandlengjur Íslands og komum í veg fyrir að meira plast lendi í sjónum. Plastmengun í hafi er ein stærsta áskorun nútímans í umhverfismál- um. Á ári hverju enda um átta milljón tonn af plasti í hafi og sam- kvæmt tölum frá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna falla um 80% þess frá landi en um 20% frá starf- semi á hafi. Plastið eyðist ekki held- ur brotnar niður í örplast sem sogar að sér eiturefni í sjónum. Plast getur vafist utan um dýr og heft hreyf- ingar þeirra og kyrkt en einnig geta eiturefni í plastinu, eða sem berast með plastinu, skaðað dýrin. Talið er að um milljón sjófuglar og 100 þúsund sjávarspendýr og skjald- bökur drepist árlega vegna þess að þau festast í eða éta plast. Risastórir plastflákar finnast í heimshöfunum og plast safnast þar saman vegna hafstrauma. Viðburðir ársins: Norræn strandhreinsun 5. maí. Hreinsað er samtímis á öllum Norðurlöndum og munu Landvernd og Blái herinn standa fyrir hreinsun á Reykjanesi en landsmenn eru hvattir til að skipuleggja sína eigin hreinsun á þessum tíma. Alheimshreinsun 15. september (World Cleanup Day). Þennan dag munu tugmilljónir sjálfboðaliða í 150 löndum taka höndum saman og hreinsa umhverfi sitt um allan heim. Við á Íslandi ætlum ekki að missa af þessu og hvetjum alla til að leggja hönd á plóg í vikunni 10.–16. september 2018. www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar STÆRSTA OG AFLMESTA AVANT VÉLIN Avant 760i er meðal annars í notkun hjá Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Norðurþing, Borgarbyggð, Skútustaða- hreppi og víðar. FRÁBÆR VÉL FYRIR BÆJARFÉLÖG Verð miðast við gengi EUR 125 Sjá nánar á ÍSLENSKU AVANT síðunni: www.avanttecno.com/www/is 760i Kohler KDI 1903, 57 hö, díeselmótor 80 l/min vökvadælu, 225 bar, vatnskæld Lyftigeta: 1400 kg Lyftihæð: 310 cm Þyngd: 2100 kg Lengd: 306 cm Breidd: 145 cm Hæð: 211 cm Fáanlegur með L, LX eða DLX húsi Landvernd og Blái herinn: Hreinsum Ísland – Átak gegn plastrusli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.