Bændablaðið - 26.04.2018, Síða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
Lúðan er eini hefðbundni
nytjafiskurinn á Íslandsmiðum
sem sjómönnum er bannað að
beina sókn sinni í. Áfram er þó
hægt að fá lúðu í soðið í fiskbúðum
landsins því heimilt er að landa
lúðu sem kemur sem meðafli á
öðrum veiðum og ekki er talin lifa
það af að verða sleppt aftur í hafið.
Lúðuveiðar hafa alltaf haft á sér
ákveðinn ævintýrablæ. Hver kannast
ekki við myndirnar í blöðunum af
hreyknum fiskimönnum sem stilla
sér upp með stórlúðu á stærð við
þá sjálfa eða meira, ferlíki sem
óvænt hefur álpast á krókinn hjá
þeim? Verðmætur happafengur.
Þá hafa sjómenn sem stundað hafa
beinar lúðuveiðar með haukalóðum
(lúðulínu) líkt spenningnum sem
fylgir lúðuveiðunum við bestu
augnablikin á laxveiðum þegar glímt
er við þann stóra.
Langvarandi viðkomubrestur
En nú er gamanið fyrir löngu
búið, að minnsta kosti hvað varðar
beina sókn í stórlúðu. Hún hefur
verið bönnuð allt frá árinu 2012
vegna langvarandi viðkomubrests
í stofninum samkvæmt mælingum
Hafrannsóknastofnunar. Raunar
hafði Hafró lagt til bann við beinni
sókn í lúðustofninn allt frá árinu
1997 en talaði fyrir daufum eyrum
stjórnvalda. Þáttaskil urðu hins
vegar árið 2008 þegar bein sókn
í stórlúðu með haukalóðum jókst
verulega og árið 2010 voru 46%
lúðuaflans veidd með þeim hætti en
þá nam lúðuaflinn í heild rúmum 500
tonnum. Þegar hér var komið sögu
þótti stjórnvöldum tími til kominn
að grípa inn í enda ljóst að ef stærri
lúðunni yrði eytt yrði engin nýliðun.
Lokun svæða ekki fýsileg
En hvernig er hægt að friða eina
tiltekna fisktegund sem syndir
innan um aðrar fisktegundir í
sjónum og lendir því óhjákvæmilega
í veiðarfærum fiskiskipa?
Eftir umfangsmikla skoðun
Hafrannsóknastofnunar var einkum
tvennt talið koma til greina í þessu
sambandi. Í fyrsta lagi lokun
veiðisvæða fyrir öllum veiðum þar
sem unglúða heldur sig og í öðru lagi
sleppingar á allri lífvænlegri lúðu
sem veiðist sem meðafli. Skoðun
leiddi í ljós að erfitt yrði að draga
frekar úr lúðuveiðum nema með
því að loka stórum veiðisvæðum
fyrir öllum veiðum með botnvörpu,
línu og dragnót. Fundað var með
skipstjórnarmönnum sem töldu
svæðalokanir slæman kost því sú
aðgerð myndi þýða umtalsverðar
hömlur á veiðum annarra tegunda.
Sleppingar á lífvænlegri lúðu þóttu
skárri kostur, þó að á honum
væru ýmsir gallar, t.d. hvað varðar
botnvörpuveiðar.
Sleppingar
Niðurstaðan varð sú að stjórnvöld
settu reglugerð þar sem segir að við
línuveiðar skuli sleppa allri lúðu
með því að skera á taum línunnar
og við handfæra- og sjóstangaveiðar
skuli losa lúðuna varfærnislega af
krókum eða skera á lykkju slóðans
áður en lúðan kemur um borð. Síðast
en ekki síst er svo alfarið bannað
að stunda beinar veiðar á lúðu með
þar til gerðri lúðulínu með stórum
krókum (haukalóðum) enda er það
helst stórlúða úr hrygningarstofni
sem veiðist með því veiðarfæri.
Smálúðan elst upp á grunnunum
til 3–5 ára aldurs en heldur þá út á
djúpið. Á vorin og sumrin gengur
stórlúða upp á grunnið en dregur sig
út á djúpið þegar haustar og kólnar.
Lúður verða kynþroska seint, eða
9–10 ára gamlar, og því verða áhrif
veiðibannsins lengi að koma fram.
Í svari sjávarútvegsráðherra við fyr-
irspurn á Alþingi nýlega kom fram
að vísitölur lúðu í stofnmælingum
Hafrannsóknastofnunar hefðu aukist
milli áranna 2014 og 2015 og hald-
ist svo svipaðar síðan. Leiða mætti
líkur að því að þetta væri árangur af
löndunarbanni á lúðu.
Skráður afli hrapar
Lúðuveiðibannið hafði þau áhrif að
skráður landaður lúðuafli hrapaði úr
532 tonnum síðasta árið fyrir bann
(2011) í 35 tonn á fyrsta bannárinu.
Næstu árin breyttist hann lítið en
síðustu árin hefur hann verið í
kringum 100 tonnin.
Sá lúðuafli sem á land kemur
skal seldur á fiskmarkaði og renna
aðeins 20% andvirðisins samanlagt
til útgerðar og áhafnar, en hitt er gert
upptækt að frádregnum hafnargjöld-
um og kostnaði. Það á því ekki að
vera nein sérstök hvatning fyrir sjó-
menn og útgerð að hirða lífvænlega
lúðu í stað þess að sleppa henni. Að
sögn Hafrannsóknastofnunar hafa
rannsóknir sýnt að hlutfall þeirrar
lúðu sé hátt sem lifir af við að veið-
ast en er sleppt aftur. Sérstaklega
eigi það við um línu- og krókaveið-
ar. Hins vegar er ljóst að lúða sem
dregin er upp af miklu dýpi, eins og
til dæmis á botnvörpuveiðum, á sér
ekki mikla lífsvon sé henni sleppt. Til
þess að undirstrika það birtu togara-
sjómenn eitt sinn að gamni sínu lúðu
sem reynt var að lífga við með hjarta-
stuðtæki. Skilaboðin voru ótvíræð.
Alls voru seld 94 tonn af lúðu
á fiskmörkuðunum á síðasta ári
að verðmæti rösklega 40 milljónir
króna.
Doríuveiðar Ameríkumanna við
Vestfirði
Veiðar á lúðu við Ísland eiga sér ekki
mjög langa sögu miðað við veiðar
á til dæmis þorski. Lúðuveiðar í
atvinnuskyni hér við land hófust
árið 1884 þegar bandarískir sjómenn
komu á Vestfjarðamið í þessu skyni.
Fram að því voru litlar lúðuveiðar
stundaðar við Ísland og litu sjómenn
sem stunduðu veiðar á þorski, eins
og Frakkar, á lúðuna sem pest og
köstuðu henni. Íslendingar veiddu
þó smávegis af lúðu á þessum tíma
til innanlandsneyslu.
Lúðuveiðar Ameríkumannanna
við Vestfirði voru stórtækar. Þeir
komu hingað á skonnortum sem
notaðar voru sem móðurskip.
Þar um borð var aflinn saltaður í
tunnur, en veiðarnar sjálfar, sem
voru línuveiðar, voru stundaðar á
smábátum, svonefndum doríum.
Ekki eru til tölur um heildarafla
Bandaríkjamanna á Íslandsmiðum
á tímabilinu 1884–1898, þegar
þeir stunduðu þessar veiðar hér
við land, en í samantekt Kristjáns
Kristinssonar, fiskifræðings á
Hafrannsóknastofnun, um lúðuveiðar
er áætlað að afli þeirra upp úr sjó hafi
numið 20–25 þúsund tonnum á þessu
tímabili. Meðan á veiðunum stóð
höfðu Bandaríkjamennirnir bækistöð
á Þingeyri. Eins og nærri má geta
olli vera hundruða aðkomumannanna
nokkrum titringi. Bæði voru þeir
sakaðir um rányrkju á fiskimiðunum
og drykkjulæti í landlegum en
ekki síst fór það fyrir brjóstið á
heimamönnum þegar útlendingarnir
fóru að líta kvenpeninginn á staðnum
hýru auga. Nokkur börn fæddust í
kjölfarið og út frá þeim er ættbogi
hérlendis.
Viðkvæm fyrir mikilli veiði
Árið 1898 lauk lúðuútgerð
Bandaríkjamanna hér við land
vegna minnkandi afla. Á 20.
öldinni var mikil sókn í lúðu en
að sögn Kristjáns benda gögn
til þess að hún sé viðkvæm fyrir
mikilli veiði. Þetta lýsti sér í því
að eftir að hámarki í lúðuafla var
náð minnkaði aflinn jafnharðan,
oft á mjög skömmum tíma. Mestur
varð lúðuafli á Íslandsmiðum árið
1907, eða tæplega 8.000 tonn. Allt
fram að seinni heimsstyrjöld veiddu
Englendingar mest þjóða af lúðu á
Íslandsmiðum en auk þeirra veiddu
Skotar, Þjóðverjar og Norðmenn
talsvert af lúðu hér við land.
Árlegur afli Íslendinga sjálfra
af lúðu var aðeins nokkur hundruð
tonn frá aldamótunum 1900 og
fram að fyrri heimsstyrjöld en á
bilinu 1.000–2.000 tonn á árabilinu
1940–1994. Eftir það hefur hann
verið undir 1.000 tonnum og var í
kringum 500 tonn á árunum fyrir
lúðuveiðibannið sem tók gildi árið
2012. Nú er hann um 100 tonn eins
og áður sagði. Komandi ár munu
leiða í ljós hversu langan tíma það
tekur fyrir lúðustofninn að hjarna við
með hjálp lúðuveiðibannsins.
Sjávarkvikindi sem nefnist
fjörulalli hefur oft sést í
fjörum víða um land. Lalli
gengur stundum á landi um
fengitímann og hann þá verið
skaðlegur sauðkindum þar sem
hann reynir að gagnast ánum.
Einn veturinn bar mikið á
ásókn fjörulalla í sauðkindur við
Breiðafjörð um brundtíðina og
áttu margar þeirra ýmiss konar
óskapnað vorið eftir. Til dæmis
var munnur neðan á hálsi, sex eða
jafnvel átta fætur á lömbum og
löng rófa eins og á hundi.
Öfuguggi
Í þjóðsögum er talað um kvikindi
sem kallast öfuguggi og mun vera
fiskur sem uggarnir snúa öfugt á.
Öfuguggi, sem er baneitraður, er
í flestum tilfellum silungur sem
veiðist í vötnum.
Sagt er að Í Myrkravatni á
Botnsheiði hafist ekki annar
fiskur við en baneitraður öfuguggi
. Einu sinn fór maður sem ekki
trúði á öfugugga út á Myrkravatn
um vetur til að veiða í gegnum ís.
Einn fiskur beit á hjá manninum
en allir uggar hans sneru aftur.
Varð honum svo mikið um að
hann skar á línuna og stakk
fiskurinn þegar aftur niður um
vökina.
Allir látnir nema ein stúlka
Svo bar til á hjáleigunni Kaldrana
á Reykhólum, að komið var
að öllu heimilisfólkinu látnu
nema einni lítilli stúlku. Fólkið
sat stirðnað á rúmum sínum í
baðstofunni með askana á knjám
sér og hafði verið að éta silung.
Við athugun kom í ljós að silungur
þessi var öfuguggi sem veiddur
hafði verið í Grundarvatni uppi á
Reykjanesfjalli ofan við Reykhóla,
en öfuguggi er baneitraður,
eins og flestum hefði mátt vera
kunnugt. Litla stúlkan hafði ekki
viljað silunginn og slapp þess
vegna lífs frá málsverðinum.
Ferfættur hafbúi
Skeljaskrímsli er ferfætt kvikindi
sem talið er að eigi sér heimkynni
í sjó við Ísland og kemur
stundum á land þegar tekur að
skyggja. Kvikindi þetta er mjög
erfitt viðureignar og sagt að
blýkúlur vinni ekki á því heldur
eingöngu byssukúlur úr silfri eða
lambasporð.
Stærð skeljaskrímslisins er
sagt á við hross og er það með
kryppu á bakinu. Fæturnir eru
stuttir, gildir með klær og sporin
nánast kringlótt. Kvikindið með
langan hala. Hálsinn er digur,
skoltar langir og tennur stórar.
Augun rauð. Búkurinn er að
mestu hulinn þéttum og litfögrum
skelja- eða hreisturflögum sem
stirnir á í tunglskini. Mikil fýla
fylgir þessari forynju.
Gælunöfn hákarls
Hákarl hefur verið nefndur
ýmsum nöfnum á íslensku, bæði
gælunöfnum og svonefndum
feluorðum. Meðal þeirra eru
axskeri, blágot, blápískur,
brettingur, deli, got, grágot, gráni,
hafkerling, háskerðingur, hvolpur,
raddali, rauðgot, skauli, skerill,
skufsi. Hákarl hefur einnig gengið
undir nöfnum eins og bauni, háki,
háksi, láki og sá grái.
Nafngiftir hákarls fóru oft eftir
stærð hans og útliti. Deli var haft
um stutta digra hákarla, dusi um
stóran hákarl, gotungur um feitan
hákarl, lopi um miðlungsstóran,
níðingur um hákarl sem var styttri
en fimm álnir, hundur, raddali,
skauli og snókur um lítinn hákarl
og ælingi var haft um hákarl sem
var á mörkum þess að vera talinn
nýtur. /VH
Fjörulallar vilja
gagnast kindum
STEKKUR
HLUNNINDI&VEIÐI
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Fiskur sem ekki má veiða
Kampakátir sjóstangaveiðimenn á Vestfjörðum með happafeng sinn. Mynd / Hvíldarklettur
Stórlúðuveiðar þóttu spennandi veiðiskapur sem gjarnan var líkt við bestu
augnablikin á laxveiðum.