Bændablaðið - 26.04.2018, Page 24

Bændablaðið - 26.04.2018, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28 220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500 www.isfell.is, isfell@isfell.is Höfum á lager mikið úrval af alskyns vinnufatnaði, hífi- og festingabúnaði, krönum og talíum, snjókeðjum, pökkunarlausnum og fallvarnarbúnaði. Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allar vörur. Vinnufatnaður Hífilausnir Kranar og talíur Snjókeðjur Pökkunarlausnir Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna! Í Albertafylki í Kanada einu saman falla til um 3.000 tonn af baggaplasti á hverju ári. Förgun þess hefur verið vandamál og hefur megninu verið brennt, en annað urðað. Hugsanlega er þó að verða breyting á því. Bryan Walton hjá nautgripa- fóðursamtökum Albertafylkis segir að samtökin vilji fremur sjá plastið fara í einhvers konar endurvinnslu. Samt segjast einungis 17% bænda senda plastið í endurvinnslu enda fáir staðir sem taka við slíku plasti. Hafa menn staðið ráðþrota fyrir þessum vanda sem hrúgast upp í gryfjum. Á því kann að verða breyting fljótlega ef marka má orð Shannon Phillips, umhverfisráðherra héraðsins. Hann segir að baggabönd hafi verið að ryðja plaststrengjunum úr vegi þar sem bændur séu aftur að taka upp bagga í stað þess að rúlla upp hálmi og heyi. Ekki virðast þó allir bjartsýnir á að þarna liggi lausnin. Cleanfarms ná aðeins 10% af úrgangsplastinu Barry Friesen hjá Cleanfarms Inc., sem eru óhagnaðardrifin samtök sem stofnuð voru af plastiðnaðinum, áætlar að um 40 þúsund tonn af plasti af ýmsum toga falli til í kanadískum landbúnaði árlega. Cleanfarms nær aðeins að safna um 10% af þessu plasti. Öðru er brennt eða urðað. Hann segir að einungis eitt fyrirtæki taki við landbúnaðarplasti til endurvinnslu í Kanada. Mismunandi reglur eru um endurheimtur á plasti í Kanada. Verkefni er þó til staðar í öllum héruðum sem kveður á um að safna eigi og endurvinna ílát og tunnur undan eiturefnum og áburði. Í Manitoba er bæði kornpokum og garni frá bændum safnað og nýbúið er að setja svipaðar reglur í Saskatchewan eftir ýmsar tilraunir. Frá 2011 hefur verið safnað um 4.200 tonnum á 14 stöðum í Saskatchewan. Þar fyrir utan er það háð ákvörðunum einstaka framleiðanda hvernig þeir standa að förgun á plasti sem safnast upp hjá bændum. Plastiðnaðurinn verði látinn bera ábyrgð á förgun Þar sem hið opinbera telur sig einungis þurfa að hafa reglur um meðhöndlun á eitri og öðrum viðlíka skaðlegum úrgangi, þá verða reglur um plastförgun að koma frá hverju héraði fyrir sig. Barry Friesen telur að ekki sé þörf á frekari eftirrekstri eða aðgerðaráætlunum af hálfu ríkisins. Það þurfi bara að setja lög sem skylda plastiðnaðinn til að leggja til endurvinnslumöguleika. „Ef þú framleiðir vöru og dreifir henni inn á ákveðin svæði, þá verður þú að hafa á takteinum áætlun um að farga vörunni þegar líftíma hennar lýkur,“ segir Friesen. „Þetta gæti verið af svipuðum toga og gert er í endurvinnsluverkefnum þar sem kaupandinn er látinn borga skilagjald af vörunni í upphafi til að tryggja að flöskur og dekk skili sér til endurvinnslu.“ Hann segir að bændur séu vissulega ekki viljugir til að borga meira fyrir vöruna en þeir nauðsynlega þurfi. Ef þeir hafi hins vegar vissu fyrir að hægt sé að koma plastinu í endurvinnslu þá gæti viðhorfið breyst. Skortur á endurvinnsluúrræðum „Okkur finnst mikið skorta á endurvinnsluúrræði fyrir plast,“ segir Tammy Schwass hjá endurvinnslusamtökum Albertafylkis. „Þetta veldur verulegum áhyggjum. Bruni á plasti losar eiturefni út í andrúmsloftið og grafið plast eyðist ekki.“ /HKr. Áhyggjur í Kanada vegna lítillar endurvinnslu á landbúnaðarplasti: Um 40 þúsund tonn af plasti falla til í kanadískum landbúnaði árlega Á hverju ári er þúsundum tonna brennt á sveitabæjum í Kanada eða sett í landfyllingar. Mynd / Darren Calabrese/The Canadian Press Ungir 13–15 ára kanadískir skólanemar mættu með snilldar uppfinningu í alþjóðlega samkeppni: Kynntu hugmynd um „Yay Bale Wraps“, heyrúlluefni sem nota má í fóður Hópur skólanemenda í dreifbýlis skóla í austurhluta Ontariofylkis í Kanada tóku nýlega þátt í keppni ásamt 20 öðrum hópum víða um heim um nýjar uppfinningar. Komu kanadísku nemendurnir þar með hugmyndir um ætar umbúðir utan um heyrúllur. Tíu nemendur úr áttunda og níunda bekk (13 til 15 ára) í St. Thomas Aquinas Catholic High School í Russell, suðaustur af Ottawa, sendu hugmynd sína til einkaleyfisskrifstofu í Viginíuríki í Bandaríkjunum í fyrrasumar vegna alþjóðlegrar verðlaunasamkeppni. Þar keppti hugmynd þeirra við hugmyndir hópa frá Bandaríkjunum, Chile, Spáni og Þýskalandi. Verðlaunin voru 20.000 dollarar. Þótt kanadísku nemendurnir næðu ekki að koma sinni hugmynd í þrjú efstu sætin, þá náðu þeir allavega inn í keppnina með hugmynd sína um umhverfisvæna lausn til að pakka heyi. Afurð þeirra er kölluð „Yay Bale Wraps“. Hugmynd kanadísku nem- endanna byggir á pökkunarefni, sem kæmi í staðinn fyrir plast og sé úr niðurbrjótanlegu efni, og gert yrði úr sykrum og sterkju. Það leysist samt ekki upp í vatni og getur einungis leyst upp í ensími (amylase) sem m.a. finnst í munnvatni manna og dýra. Þar með ættu jórturdýr um leið að geta étið umbúðirnar sér til næringar. Hægt að nota í skepnufóður „Það stórkostlega við Yay Bale Wraps er að það þarf ekki að brenna, endurvinna eða urða í landfyllingum,“ segir nemandinn Rachel Fiset í samtali við Farmers Forum. „Þú getur einfaldlega tætt það í sundur og blandað því saman við skepnufóður.“ Kannanir sem gerðar voru af nemendunum sýna að um 70% bænda myndu nota Yay Bale Wraps baggaefni ef það stæði til boða. „Sumir bændur sögðust ekki vilja nota Yay Bale Wraps vegna slæmrar reynslu þeirra af notkun á baggaplasti fyrir umhverfið,“ sagði nemandinn Rachel Wood. „En ef framleiðsla eins og okkar kæmist á markað, þá væru þeir samt tilbúnir að íhuga notkun þess ef það dragi úr mengun í þeirra bakgarði.“ Kanadíski nemendahópurinn er að vinna að því að fá einkaleyfi fyrir hugmynd sína í héraði. Það veitir hugmyndinni skjól í eitt ár og síðan er meiningin að sækja um fullt einkaleyfi til 20 ára. Í samkeppni við breska doktorsnema Þrír doktorsnemar í Bretlandi hafa komið fram með svipaða hugmynd og eru að sækja um einkaleyfi á henni. Markmið þeirra er að geta komið vörunni á markað innan þriggja til fimm ára. Athygli vekur að enginn þeirra tíu kanadísku nemenda sem komu fram með hugmyndina um æta baggaefnið er úr sveit. Hugmyndina fengu þeir hins vegar af því að horfa á alla plastbaggana á túnum bænda. Nemendurnir heita Sam Barrett, Alec Campbell, Logan De Verteuil, Rachel Fiset, Kelly Forrester, Morgan Foster, Noah Hill, Jack Miner, Ethan Warnock og Rachel Wood. Kennarar og leiðbeinendur voru Blair Fitzsimons, Ann Jackson og Brad Reid. Ekki er þó vitað hvort Brad Reid sé skyldur Elizu Jean Reid, forsetafrú okkar Íslendinga, sem fæddist reyndar í Ottawa í Kanada. Hún er því upprunnin á heimasvæði þessa kennara og ungu nemendanna hans. /HKr. Það styttist kannski í að baggaplast verði ekki lengur vandamál og kýr jafnt sem kindur geti étið umbúðirnar ásamt heyinu. Baggabönd gætu minnkað umfang plastnotkunar við hálmpökkun. AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.