Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 Vörur fyrirtækisins AstaLýsi frá KeyNatura er að sögn Höllu einstök blanda af íslensku astaxanthini KeyNatura og síldarlýsi frá Margildi. AstaLýsi er mjög hollt og bragðgott og inniheldur blöndu af astaxanthini (2 mg), omega-3 og D-vítamíni. Heilsuáhrif lýsis eru vel þekkt og hér er búið að bæta hinu magnaða efni astaxanthini við lýsið. AstaLýsi er núna nýkomið í nýjar og stærri umbúðir. AstaFuel er hins vegar blanda af hinum vinsælu MCT (medium chain triglycerides) og astaxanthini sem stuðlar að því að vernda líkamann fyrir oxunarálagi. MCT eru mjög vinsælar meðal íþróttafólks og þeim sem eru á ketiogenísku mataræði og nýtast líkamanum hratt og vel sem orka. Með AstaFuel er hægt að fá orku hratt. Nýju umbúðirnar hafa sérstakan stút sem er auðvelt að hella úr. Kjörið tækifæri fyrir íslenska bændur Sigurbjörn Einarsson M.Sc. er framleiðslustjóri fyrirtækisins sem ættaður er úr Dölunum og er jafnframt búfræðingur. Hann telur að möguleikarnir í þeirra tækni liggi ekki síst í að koma henni áfram til íslenskra bænda sem geti þá nýtt sín hús og aðstöðu til að framleiða þörunga. Fullvinnsla á hráefninu, sem er mjög tæknileg, þyrfti þá ekki endilega að vera á hverjum stað, heldur gæti KeyNatura séð um þá hlið mála fyrir bændur. Afkastameiri og hagkvæmari búnaður Tankalausn KeyNatura er hagkvæmari en sambærileg kerfi fyrir sömu framleiðslu, til að mynda ræktun í tjörnum eða rörum. Tankarnir tryggja stöðuga uppskeru lífmassa við hvaða veðurskilyrði sem er, og lágmarkar sveiflur eftir árstíðum. Hvort heldur sem rækta á innan eða utandyra, þá tekur tankakerfi KeyNatura brotabrot af því plássi sem önnur ræktunarkerfi taka, auk þess að nota minna vatn og minni orku. Mun auðveldara að stjórna ræktun „Hefðbundin framleiðslutækni á smáþörungum byggir á því að nota glær rör eða þunna glæra 180 lítra fleka eða hulsur þar sem þörungarnir eru ræktaðir í vatni í lokuðu kerfi. Lýsingin kemur þá að utan og þar sem verið er að nota raflýsingu er orkutapið mjög mikið. Við snúum þessu við og erum með ræktunina í 8.000 lítra vatnstönkum þar sem við setjum ljósgjafann niður í. Það gerir alla stýritækni mun auðveldari, öll ljósorkan nýtist þörungunum og öll vinnsla og þrif verða auðveldari,“ segir Sigurbjörn. Næsta bylting í matvælaframleiðslunni „Við sjáum að þörungarækt til manneldis verður næsta bylting í matvælaframleiðslunni. Við viljum flýta þeirri þróun hér á landi eins og hægt er,“ segir Halla. Ekki þarf önnur næringarefni við framleiðsluna en fosfóráburð og köfnunarefni, eða það sama og notað er í íslenskum gróðurhúsum. Þúsundir afbrigða Til eru þúsundir afbrigða smáþörunga (microalgae) í heiminum sem lifa í sjó og fersku vatni. Stór hluti smáþörunga hafa þann eiginleika að vaxa mjög hratt, um 10 til 15 sinnum hraðar en hraðvöxnustu landplöntur. Þá eru þörungar undirstaða lífs okkar með því að framleiða um 70–80% af súrefni jarðar. Smáþörungar eru mikilvirkir í að framleiða prótein og lífræna olíu sem er rík af Omega 3 fitusýrum. Hafa menn að þeim sökum m.a litið hýru auga til þörunga til að framleiða þessar hollu olíur til manneldis. Enn fremur hafa fjölmörg fyrirtæki verið stofnuð víða um veröld til að nýta smáþörunga til að framleiða olíu í lífeldsneyti, bæði fyrir bíla og farþegaþotur. Mörg þeirra eru í Bandaríkjunum og í Evrópu og hefur Evrópusambandið styrkt slík verkefni og að þeim koma fjölmargir háskólar og vísindastofnanir. Kosturinn við að nota smáþörunga við framleiðslu á lífeldsneyti er einkum sú staðreynd að ekki þarf að taka undir það mikið og dýrmætt ræktarland í landbúnaði, né ganga á korn eða ræktun annarra nytjajurta til manneldis. Þá er kolefnisspor smáþörungaframleiðslunnar til framleiðslu á Omega 3 sagt mun lægra en við framleiðslu á lýsi úr fiski. Ný framleiðslutækni KeyNatura í einkaleyfisferli Forsvarsmenn KeyNatura telja sig hafa fundið lausn sem auðveldar mjög framleiðslu smáþörunga í lokuðum tönkum. Eru þessir tankar nú í einkaleyfisferli en í þeim má framleiða allt að 900 tonn á hektara á ári og þar af 9 til 10 tonn af hreinu astaxanthini. Auðvelt er að stýra framleiðsluferlinu auk þess sem kerfin eru auðveld í þrifum og spara mikla orku. Hafa Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Tækniþróunarsjóður m.a. komið að þessu verkefni. Samkeppnisaðilar í astaxanthin- framleiðslu Kínverjar hafa verið öflugir í fram- leiðslu á astaxanthini og þeirra helsta fyrirtæki, BGG, hefur verið að ná um 2 tonnum af astaxanthini (AstaZine) á ári með framleiðslu á þörungum í rörum á 25 hektara svæði í Suður-Kína. Þar er einungis not- ast við sólarljósið, sem takmarkar mjög framleiðslugetuna auk þess sem breytilegur umhverfishiti hefur áhrif á framleiðsluna. Helstu aðferðir sem hingað til hafa verið notaðar við framleiðslu á smáþörungum eru í gleri eða glærum plaströrum, plasthulsum eða í opnum tjörnum. Framleiðslu í opnum tjörnum er mjög hætt við mengun sem bæði skerðir framleiðsluna og rýrir gæði hennar. Það vandamál er ekki til staðar þegar framleitt er í lokuðu kerfi eins og því sem KeyNatura hefur hannað. Auk þess sem sú tækni býður upp á mun meiri afköst á flatareiningu en hægt er að ná með framleiðslu í rörum (tubular reactors), plasthulsum eða tjörnum. /HKr. Ræktun smáþörunga fer fram með ýmsum hætti, eins og í opnum tjörnum. Með slíkri aðferð er þó ekki hægt að tryggja eins mikinn hreinleika og hægt er að ná með ræktun í lokuðum tönkum eins og gert er hjá KeyNatura. Kínverjar hafa verið öflugir í framleiðslu á astaxanthini og þeirra helsta fyrirtæki, BGG, hefur verið að ná um 2 tonnum af astaxanthini (AstaZine) á ári á 25 hektara svæði í Suður-Kína. Framleiðsl á hágæða astaxanthini krefst mikils hreinlætis og nákvæmni í vinnubrögðum. Halla Jónsdóttir og Sigurbjörn Einarsson í framleiðslurými fyrirtækisins. Starfsemin fer fram í hólfaskiptu húsnæði þar sem unnið er samkvæmt ströngustu kröfum eins og þekkjast í lyfjaiðnaði. Fjórar af framleiðsluvörum KeyNatura sem allar innihalda hið eftirsótta efni astaxanthin. Tunguhálsi 10 Sími 415 4000 www.kemi.is kemi@kemi.is HÁGÆÐA SMUROLÍUR Á GÓÐU VERÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.