Bændablaðið - 26.04.2018, Side 47

Bændablaðið - 26.04.2018, Side 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 Bastian Kristensen frá SEGES og kúabóndans Palle Christensen. Þeir fjölluðu um hið áhugaverða efni „nákvæmnisfóðrun“. Í erindi sínu fóru þeir yfir mik- ilvægi þess að vita nákvæmlega hvaða heilfóður fer í kýrnar og vegna breytileika á fóðri innan stæðu, eða í okkar tilfelli á milli rúlla, þá sé best að geta mælt fóð- urgæðin á staðnum. SEGES hefur þróað búnað sem er settur beint á fóðurblöndunarvagna og mælir með NIR greiningu fóðrið sem verið er að blanda fyrir kýrnar. Niðurstöður kerfisins sýna að tölu- verður breytileiki er á blöndunar- gæðum heilfóðurs, jafnvel á stórum kúabúum og að gæta þurfi mikillar nákvæmni þegar fóður er blandað fyrir kýrnar. Áhugavert er að lesa áherslur landsráðunautarins þegar fóðr- un kúa er annars vegar, en Niels Bastian nefndi m.a. að heilfóður eigi að blanda það vel að moðið eigi ekki að vera mikið frábrugðið að gæðum og upphaflega fóðrið! Hann setti fram eftirfarandi forgangsröð- un, þegar heilfóður er annars vegar. Númerin vísa til mikilvægis hvers þáttar: 1. Fóðrunartíminn á að passa inn í náttúrulega dagssveiflu hjá kúm 2. Það á að fylgjast vel með fóð- urganginum, sérstaklega þegar líður á daginn (sópa reglulega að) 3. Alltaf að fóðra kýrnar á sama tíma 4. Heilfóður á að blanda það vel, að þegar moðið er tekið frá kúnum sé það nánast eins og upphaflega fóðrið! 5. Þegar fóðurefnin eru sett í blandarann þarf að vigta af mikilli nákvæmni 6. Mæla nákvæmlega magnið af moðinu (ætti ekki að vera nema 2%) 7. Út frá magninu af moðin á að meta reglubundið og endur- reikna uppskrift heilfóðurssins 8. Leiðrétta heilfóðurblöndurnar miðað við þurrefni fóðurefn- anna (gróffóðurþurrefnið er breytilegt) Áðurnefndur Palle, sem er kúabóndi á búinu Abterpgaard með sínar 800 mjólkurkýr og 450 hektara í notk- un, skýrði frá sínum rekstri og með hvaða hætti hann heldur utan um alla fóðuröflun búsins. Í stuttu máli sagt þá er allt mælt sem hægt er að mæla. Uppskera á öllu heimaöfluðu fóðri er mæld af nákvæmni og skráð í sérstakt forrit sem heldur utan um birgðastöðu búsins. Þá getur hann tengst gagna- grunni dönsku bændasamtakanna beint í dráttarvélinni og fengið upp heilfóðuruppskrift sem hámarkar nýtingu þeirra fóðurefna sem hann er með skráða á búinu á hverjum tíma. Hann sagði afar mikilvægt að kúabændur myndu fylgjast vel með sjálfvirku vigtunum sem eru á mörgum fóðurblöndurum, þessar vigtar vanstillast nokkuð ört og þarf að leiðrétta reglulega. 7. Bústjórn Í málstofunni um bústjórn voru haldin sex erindi og snéru flest þeirra meira eða minna beint að dönskum aðstæðum og möguleik- um, sem við getum ekki nýtt okkur beint hér á landi. Þarna var t.d. verið að fjalla um kosti og galla hópaskiptingu kúa á stórum kúa- búum, um notkun ólíkra kúakynja í búskapnum og hvernig nýta má val á grundvelli erfðaefnis í búskapnum – eitthvað sem er þó brátt möguleiki hér á landi einnig. Erindi Sophie Atkinson um hvernig á að skilja betur atferli gripanna sinna á þó jafn vel við hjá okkur og Dönum en hún kenndi áheyrendum margskonar aðferð- ir sem eru gagnlegar til þess að gera starfið auðveldara og um leið öruggara. Þessu erindi er líklega best gerð skil með því að vísa í afar gagnlegt fimm mínútna myndband, þar sem þessum þáttum í atferli gripa er gerð góð skil. Hægt er að sjá þetta myndband með því að fara inn á heimasíðu ráðstefnunnar (sjá nánar hér neðst í greininni) og smella þar á kassa merktum „Management“. 8. Kúakynin Í Danmörku eru þrjú ráðandi kúa- kyn í mjólkurframleiðslu: Holstein (svartskjöldóttar kýr), Jersey og RDM (rauðar danskar kýr) og á hverju fagþingi bjóða kynbóta- félögin að baki þessum þremur kúakynjum upp á kvöldfundi þar sem fram fer kynning á því helsta sem er að gerast innan hvers kyn- bótafélags. Ekki verður gerð nánari grein fyrir þessari málstofu hér, enda þessi kúakyn ekki í notkun hér á landi. 9. Hópvinnufundir Á þessu fagþingi var þátttakend- um boðið að skrá sig fyrirfram á sérstaka hópvinnufundi en tilgangur þessara funda var að fá bændur og ráðunauta til þess að ræða um ákveðin vandamál, miðla reynslu sinni og koma með hugmyndir að lausnum. Úrlausnarefnin voru: „Hvernig á að fá starfsfólk til þess að vera áhugasamara um starfið“ og „Samningatækni“. Þá gátu þátttakendur tekið þátt í verklegri kennslu um ýmis handhæg atriði eins og hvernig eigi að meta fóðrið með einföld- um hætti, um kynbætur kúa og svo var hægt að fá hraðkennslu í notkun á danska skýrsluhalds- kerfinu. Afar skemmtilegt fram- tak og gagnlegt fyrir þá sem tóku þátt en ekki er beint hægt að fjalla faglega um þessa málstofu þar sem efnið var ekki formlega sett fram. Þeir sem tóku þátt báru þessu framtaki afar góða sögu og er óhætt að mæla með svona opnum hópvinnufundum þar sem bæði bændur og ráðgjafar koma saman og vinna að því að finna sameiginlega lausn á til- teknu vandamáli. Í næsta Bændablaði verð- ur farið yfir síðustu tvær mál- stofurnar, en önnur þeirra fjallaði um starfsmannastjórnun og hin um framtíðarsýn danskra kúa- bænda. Báðar málstofurnar voru einkar áhugaverðar og þar komu fram mörg gagnleg erindi, sem eiga beint erindi til íslenskra bænda. Þeim sem geta ekki beðið þeirrar umfjöllunar má benda sérstaklega á að bæði útdrætt- ir og flest erindi, þ.e. afrit af glærum og veffræðsluerindum margra fyrirlesara, má hlaða niður af heimasíðunni www. kvaegkongres.dk með því að smella á forsíðuhlekkinn „Dias og video fra Kongressen – se dem her“. Þá fylgja auk þess fag- legar greinar sumum erindunum, sem bæta enn frekar við fróð- leiksgildi efnisins. Rétt er að geta þess að mest allt efni er á dönsku, en þónokk- ur erindi og efni eru á ensku. Eftirlitskerfi fyrir; Fjósið Fjárhúsið Hesthúsið Sumarhúsið Sophie Atkinson fjallaði um það hvernig bændur geta lært að þekkja betur og skilja atferli nautgripa. SMÁRATORGI | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS NÝJAR VÖRUR ÍSLENSK HÖNNUN T-Bolir KH Vinnuföt Nethyl 2a 110 Reykjavík Sími: 577 1000 info@khvinnufot.is www.khvinnufot.is Klassískur T-bolur, hringspunnin, tvöfaldur kragi úr bómull og elastani. Stærðir: XS - 4XL. Svartir upp í 6XL. Verð frá kr. 856,- Við merkjum fatnað.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.