Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 20194
Samkvæmt minnisblaði sem Félag
svínabænda lagði fram á fundi
með Kristjáni Þór Júlíussyni land-
búnaðarráðherra 27. nóvember
síðastliðnum er fjöldi ástæðna
fyrir því að ekki eigi að binda í
lög innflutning á 400 tonnum af
svínasíðum árlega.
„Það sem stendur íslenskri
svínarækt mest fyrir þrifum í dag,
til að vaxa og dafna, er sú henti-
stefna sem íslensk stjórnvöld hafa
um langt skeið rekið þegar kemur
að tollverndinni. Annars ætla ég að
leyfa mér að vera bjartsýnn á að
hlustað verði á okkar rök og von-
andi verði mótuð skýr
langtímastefna um toll-
vernd í íslenskum land-
búnaði sem allra fyrst,“
segir Ingvi Stefánsson,
formaður Félags svína-
bænda og bóndi að Teigi.
„Við lögðum fram
minnisblað til ráðherra
með tíu ástæðum fyrir
því að ekki ætti að binda
í lög innflutning á 400
tonnum af svínasíðum.
Það virðast fáir gera
sér grein fyrir því hvaða fordæmi
er þarna verið að setja gagnvart
landbúnaðinum í heild
sinni. Félag atvinnurek-
enda var svo ekki lengi
að komast á bragðið og
þar á bæ er nú þegar búið
að fara fram á 200 tonna
tollkvóta í bæði nauta-
og kjúklingakjöti.“
Ákvarðanir út frá
röngum forsendur
Ingvi segir að verið
sé að taka ákvarðanir
út frá gögnum sem eru í besta falli
ófullnægjandi. Það var ekki fyrr en í
september síðastliðinn sem svínasíð-
ur fengu sér tollskrárnúmer, fram að
þeim tíma voru aðrir hlutar skrokks-
ins fluttir inn á sama tollskrárnúmeri
og svínasíður.
„Nú er því loksins hægt að rýna
í rétt gögn þótt reyndar séu aðeins
komnar innflutningstölur fyrir sept-
ember og október en þau gögn gefa
svo sannarlega tilefni til að staldrað
sé við. Á þessum tveimur mánuð-
um er einungis verið að flyja inn
um 25 tonn af svínasíðum á meðan
heildarinnflutningur á svínakjöti er
169 tonn. Á þessu tímabili er inn-
flutningur á svínasíðum því einungis
15% af heildarinnflutningi á svína-
kjöti. Vissulega er tímabilið stutt og
varasamt að draga miklar ályktanir
út frá því. Gögnin sýna engu að síður
svart á hvítu hvað það er fráleitt að
binda einhliða í lög innflutning á 400
tonnum af svínasíðum.“
Ábati af innflutningi ekki skilað
sér ti neytenda
„Við bentum ráðherra einnig á að
ábati af auknum innflutningi hefur
hingað til ekki skilað sér til neyt-
enda. Frá ágúst 2013 til október
2019 hefur innflutningur á svína-
kjöti margfaldast að magni og nýr
tollasamningur frá 2015 tekið gildi
að fullu. Á þessu tímabili hefur al-
mennt verðlag hækkað um 14%,
svínakjöt til neytenda hækkað um
15% og verð til svínabænda hefur
lækkað um 3%. Sagan segir okkur
því miður að litlar líkur eru á að
aukinn innflutningur skili sér í
vasa neytenda. Þannig er enn ekki
vitað hvað varð um þá fjármuni,
3 milljarða, sem innflytjendur
fengu endurgreidda frá ríkinu og
höfðu áður verið greiddir af neyt-
endum.“
Hlutfall innflutts kjöts
mjög hátt hér á landi
Ingvi segir að það vilji gleymast
í umræðunni að það sé búið að
gera gríðarlegar tilslakanir í toll-
verndinni á síðustu árum og hlutfall
innflutts kjöts sé orðið mjög hátt
hér á landi.
„Við höfum skilning á því að ráð-
herra vilji leggja ráðgjafarnefndina
um inn- og útflutning landbúnað-
arvara niður, enda var henni ætlað
að taka ákvarðanir út frá ófullnægj-
andi gögnum. En eitthvað þarf samt
að koma til þannig að hægt sé að
bregðast við ófyrirséðum aðstæðum
í framboði og eftirspurn.“ /VH
FRÉTTIR
Áhyggjum lýst vegna ólöglegs innflutnings á frjóeggjum:
Ógn við eitt besta heilbrigðisástand í heimi
– Dýralæknir alifuglasjúkdóma hjá MAST segir málið litið mjög alvarlegum augum
Félög eggjabænda og kjúklinga-
bænda, Reykjagarður, Matfugl,
Eigenda- og ræktendafélag land-
námshænsna og Bændasamtök
Íslands hafa sent Matvælastofnun
bréf þar sem áhyggjum er lýst
vegna hættunnar á að alvarleg-
ir alifuglasjúkdómar berist til
landsins. Tilefnið er nýlegt mál í
Þykkvabæ þegar upp komst um
ólöglegan innflutning á frjóeggj-
um kalkúna og stuttu áður kom
upp skæður veirusjúkdómur í
kjúklingabúi sem rakinn er til
smitefnis erlendis frá. Er hvatt til
þess að hart sé tekið á ólöglegum
innflutningi.
Í bréfinu segir að innflutningur
eins og þessi, sem er án eftirlits og
utan reglna, geti haft mjög afdrifa-
ríkar og ófyrirséðar afleiðingar hvað
varðar heilbrigði íslenskra alifugla.
„Íslenskir alifuglaframleiðendur jafnt
stórir sem smáir búa við eitt það besta
heilbrigðisástand í framleiðslu sinni
sem þekkist um víða veröld. Notkun
á lyfjum og bóluefnum er í algjöru
lágmarki. Þetta er staða sem við
viljum varðveita,“ segir í bréfinu.
Er mælst til þess að stofnunin beiti
sér fyrir því að slíkur innflutningur sé
gerður með löglegum hætti og undir
eftirliti Matvælastofnunar. Enn frem-
ur að stofnunin kynni þeim aðilum
sem halda hænsnfugla í atvinnuskyni
– og í frístundabúskap – alvarleika
málsins.
Brigitte Brugger, dýralæknir ali-
fuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun,
segir að innflutningurinn á frjóeggj-
unum sé til meðferðar hjá stofn-
uninni. „Það þarf að fá leyfi ráðu-
neytis til að flytja inn frjóegg og
Matvælastofnun veitir umsögn við
hverja umsókn. Matvælastofnun er
ekki kunnugt um að sótt hafi verið
um leyfi til innflutnings á þessum
frjóeggjum frá Færeyjum,“ segir
Brigitte.
Litið mjög alvarlegum augum
„Matvælastofnun lítur það mjög
alvarlegum augum að flutt séu inn
frjóegg eða hvers konar dýr eða
erfðaefni þeirra án leyfis og án þess
að búið sé að kanna hvort smitefni
leynist í þeim. Smitsjúkdómar geta
borist með frjóeggjum og sumir
sjúkdómar í alifuglum berast jafnvel
gjarnan og auðveldlega í gegnum
frjóegg í afkvæmin. Við erum með
mjög góða sjúkdómastöðu í ali-
fuglum hér á landi, með þeirri bestu
sem þekkist í heiminum.
Margir smitsjúkdómar sem eru
landlægir í alifuglum erlendis hafa
ekki greinst hér. Erlendis þarf að
bólusetja alifugla í uppeldi og jafn-
vel í varp oftar en einu sinni og slíkar
bólusetningar eru kostnaðarsamar,
tímafrekar og hafa áhrif á fuglana.
Þessari góðu sjúkdómastöðu ber að
varast með öllu, það er svo mikið
í húfi.“
Ætla má að frjóeggjum
sé smyglað
Brigitte segir að lítið sé vitað um
sjúkdóma í bakgarðsfuglum hér á
landi en ætla megi að frjóeggjum sé
smyglað til landsins. „Þess vegna
er ekki hægt að útiloka að tilkynn-
ingaskyldir sjúkdómar geti verið
til staðar í bakgarðshænum. Sumir
sjúkdómar geta valdið einungis
vægum einkennum; til dæmis
nefrennsli eða augnbólgum, en
vandasamt getur verið að ráða við
útrýmingu sjúkdóms ef smituð dýr
eru flutt milli hópa og sjúkdómar
ná þannig útbreiðslu. Eigendur
bera sjálfir ábyrgð á heilsu þeirra
fugla. Mikilvægt er að þeir fái
einungis fugla frá heilbrigðum
hópum á búum, þar sem ekki
hafa komið upp veikindi,“ segir
Brigitte og bendir á fræðsluefni
Matvælastofnunar um smitvarnir
í hænsnakofum sem nálgast megi
í gegnum vef stofnunarinnar.
Beðið heilraðagreiningu
vegna upprunans
„Það er enn ekki vitað hvernig
veirusjúkdómurinn Gumboro-
veikin barst á kjúklingabúið en
við teljum að veiran hafi borist
frá útlöndum vegna þess að veiran
hefur aldrei greinst hér áður. Það
er beðið eftir heilraðagreiningu
veirunnar til að meta hvort hægt
sé að fá nánari upplýsingar um
hugsanlegan uppruna veirunnar,“
segir Brigitte.
„Algengasta smitleið Gumb oro-
veikinnar er beint á milli fugla,
sem sagt með flutningi sýktra
fugla í heilbrigða hópa. Einnig
getur borist smit í gegnum smituð
tæki og tól eða með fólki ef ekki er
skipt um fatnað milli alifuglahópa.
Ólíklegt er að Gumboroveiki berist
í gegnum frjóegg í afkvæmin.
Gumboroveiki veira er mjög
lífseig og þolir mörg sótthreinsi-
efni. Það er þess vegna ekki öruggt
að það náist að koma í veg fyrir
smit með venjulegum þrifum og
sótthreinsun á notuðum tækjum og
tólum sem eru flutt inn löglega,“
svarar Brigitte þegar hún er spurð
hvort Gumboro-sjúkdómurinn hafi
borist með einhverju sem hefði
ekki átt að flytja til landsins án þess
að hafa verið sótthreinsað. „Í fyrir-
liggjandi tilfelli er þó talið ólíklegt
að smit hafi borist í kjúklingabúið
með fóður- eða brynningarbúnaði.
Alifuglabændur eru almennt mjög
meðvitaðir um smitvarnir, það er
því að þakka held ég að við höfum
sloppið svo lengi.
Gumboroveiki-veiran getur líka
verið í hráu kjöti, þess vegna er
bannað að fóðra bakgarðshænur
og alla alifugla með eldhúsúr-
gangi. Það er afar, afar ólíklegt að
kjúklingum á smitaða búinu hafi
verið gefinn eldhúsúrgangur, svo
það sé tekið fram. Það gerðist í
gegnum einhverja aðra leið sem
við vitum ekki hver er.“ /smh
Brigitte Brugger. Lífrænt vottaðar landnámshænur. Mynd /smh
Félag svínabænda vill að mótuð verði skýr langtímastefna um tollvernd í íslenskum landbúnaði sem allra fyrst:
Hentistefna stjórnvalda í tollamálum
stendur greininni fyrir þrifum
– Verð á svínakjöti hefur hækkað með auknum innflutningi
0
10.000
20.000
30.000
40.000
50.000
60.000
70.000
80.000
september október
20.881
4.612
69.682 73.758
Innflutt svínakjöt september og október 2019
Svínasíður Annað sv.kjöt
Ingvi Stefánsson.