Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201930
UTAN ÚR HEIMI
Þjóðverjar taka upp hert landamæraeftirlit á landamærunum að Danmörku:
Draumurinn um landamæralausa
Evrópu sagður vera úr sögunni
Þjóðverjar hafa tekið upp
landamæraeftirlit á landamær-
um Danmerkur og Þýskalands.
Í danska blaðinu BT er sagt að
draumurinn um opin landamæri
og frjálst flæði fólks milli ESB
landa sé þar með úr sögunni.
Þjóðverjar hófu landamæraeftirlit
á tveim stöðvum við dönsku landa-
mærin fimmtudaginn 7. nóvember.
Önnur stöðin er á þjóðveginum á
milli Kupfermühle í Þýskalandi
og Kruså í Danmörku, og hin er á
leiðinni frá Harrislee til Padborg.
Við Kupfermühle voru yfir 20
landamæraverðir samkvæmt frétt
Jyske Vestkysten.
Það var þýski innanríkisráðherr-
ann, Horst Seehofer, sem fyrirskip-
aði hert landamæraeftirlit og er það
sagt vera tímabundið. Tímabundið
landamæraeftirlit getur þó varað
lengi að mati BT og bent er á að
Danmörk hafi teklið upp tímabund-
ið landamæraeftirlit við landamæri
Þýskalands í janúar 2016 og það er
enn í gildi.
Þýskaland var helsta barátturíkið
fyrir opnum landamærum
„Það er algjört hrun svokall-
aðrar landamæralausrar Evrópu og
ESB, að Þýskaland tekur nú upp
landamæraeftirlit við landamæri
landsins,“ sagði talsmaður danska
þjóðarflokksins, Peter Skaarup, í
samtali við B.T. bendir hann á að
Þýskaland hafi verið helsti and-
stæðingurinn innan ESB gegn því
að halda uppi eftirliti á innri landa-
mærum ríkjanna.
Segir Skaarup að hafi menn haft
trú á hugmyndafræðinni landamæra-
laust ESB með frjálsri för milli land-
anna, þá sé sú trú algjörlega brostin
eftir að fólk þarf nú að fara í gegnum
landamæraeftirlit á innri landamær-
unum.
Danska löggæslan sem og yfir-
völd víðar í ESB-ríkjunum hafa varið
miklum fjármunum í landamæra-
eftirlit á liðnum árum í kjölfar auk-
ins straums flóttamanna og af ótta
við hryðjuverk. Peter Skaarup segir
þetta einfaldlega vera þann veruleika
sem menn búi við í dag.
Nú sé litið á landamæraeftirlit
sem mikilvægan þátt í baráttunni
gegn glæpum.
Hælisumsóknarkerfi ESB
talið vera í uppnámi
Þýskaland hefur tekið upp hert
landamæraeftirlit í kjölfar frétta
af líbönskum glæpamanni sem,
þrátt fyrir bann, hafði farið inn í
Þýskaland, að því er fram kom í
Jyllands Posten.
Innanríkisráðherra Þýskalands
hafði tjáð þýska fjölmiðlinum Bild
að fólk væri að missa trúna á öllu
hælisumsóknarkerfi ESB.
Fulltrúi Venstre í útlendinga- og
innflytjendamálum, Mads Fuglede,
segist skilja vel að Þjóðverjar séu að
herða stjórn á landamærum sínum
að Danmörku.
„Við lítum á það sem náttúrulegt.
Að Þýskaland, eins og Danmörk,
hafi áhuga á að fylgjast með því hver
kemur inn og út úr landinu. Þetta er
eitthvað sem við sjáum í mörgum
löndum og hefur bakgrunn í hryðju-
verkaógninni, “segir Mads Fuglede.
/HKr
Samkvæmt tölum um losun gróðurhúsalofttegunda á Nýja-Sjálandi er um
þriðjungur hennar frá búfjárrækt.
Nýja-Sjáland:
Metanfríar rollur
Búvísindamenn á Nýja-Sjálandi
hafa hafist handa við að kynbæta
sauðfé í landinu í átt að því að vera
metangaslaust.
Verkefnið, sem kallast Global
first, er sagt skref í að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda frá
landbúnaði. Samkvæmt tölum um
losun gróðurhúsalofttegunda á
Nýja-Sjálandi er um 1/3 hennar frá
búfjárrækt.
Fyrstu skrefin í þessa átt eru að
sögn vísindamanna að finna fé sem
framleiðir minna metan en almennt
gerist með sauðfé í landinu og vita
hvort greina megi erfðamengi eða
mengi sem valda metanframleiðsl-
unni.
Metanlosun fjár verður mælt í
tvö ár og síðan gripir sem minnst
losa teknir til nánari rannsókna og
hugsanlega undaneldis. /VH
Afríska svínapestin:
Hefur áhrif á framleiðslu
blóðþynningarlyfja
Þótt vírusinn sem veldur hinni
skæðu afrísku svínapest (ASF)
sem nú breiðist ört um heiminn
hafi ekki áhrif á menn, þá hefur
svínapestin samt óbein áhrif á
heilsu manna.
Stór hluti af blóðþynningar lyfjum
fyrir menn sem framleidd eru í heim-
inum, eins og Heparin, eru unnin
úr innyflum svína sem alin eru í
Kína. Þessi lyf eru m.a. nauðsynleg
til að kljást við blóðgjafir, blóð-
tappamyndun og kransæðastíflur
í mannfólkinu. Vissulega er víðar
leitað fanga fyrir lyfjaiðnaðinn en
í Kína, en svínarækt er samt hvergi
öflugri en þar.
Engin mótefni hafa fundist til
að stöðva útbreiðslu ASF og smit-
uð svín hafa verið felld í milljóna-
tali í Kína og hefur veikin verið að
breiðast út til nágrannaríkjanna.
Þetta hefur þegar haft áhrif á lyfja-
framleiðendur samkvæmt frétt Star
online síðastliðinn þriðjudag.
Lyfjaframleiðendur eru farnir að
huga að öðrum leiðum til að fram-
leiða blóðþynningarlyf. Notkun á
innyflum úr nautgripum var hætt á
tíunda áratug síðustu aldar af ótta við
að kúariða gæti borist í fólk.
Þessi staða er nokkuð kaldhæðn-
isleg þar sem eitt helsta sjáanlega
einkenni AFS svínapestarinnar er
blæðandi húð sýktra svína. Þannig
virðist vírusinn valda blóðþynningu
hjá dýrunum sem sýkjast jafnframt
því að æðar gefa sig. /HKr.
HAUGSUGURNAR & KEÐJUDREIFARARNIR
FRÁ BELMAC HAFA SANNAÐ SIG SEM
ÖFLUG GÆÐATÆKI Á ÍSLANDI.
HAUGSUGUR ERU Í BOÐI FRÁ 5.000-16.000L
VALBÚNAÐUR: Drifsaftsknúin eða vökva-
knúin dæla, sjálfvirkur áfyllingarbúnaður,
ýmsir litir eða gavanisering.
KEÐJUDREIFARAR ERU Í STÆRÐUM:
1cu - 12cu
VALLARBRAUT.IS
Trönuhrauni 5
Hafnarfirði
S-8411200
&-8417300
FRÁ ÍRLANDI
HAUGSUGUR KOMA Á BKT DEKKJUM, ERU MEÐ FJAÐRANDI BEISLI OG 6MM ÞYKKU STÁLI Í BELG
GOTT
VERÐ
ST
UTTU
R AFG
REIÐS
LUTÍM
I
2019 þriðja heitasta ár frá því að mælingar hófust
Samkvæmt því sem
segir í orðsendingu frá
Alþjóðlegu veðurathug-
unarmiðstöðinni bendir
allt til að árið 2019 verði
þriðja heitasta ár síðan
mælingar hófust.
Þar segir einnig að síð-
asti áratugur hafi einnig
verið óvenju heitur og sá
heitasti sem mælst hefur.
Meðaltalshiti áranna
2010 til 2019 er um 1,1°
á Celsíus hærri en fyrir
upphaf iðnbyltingarinnar
og sýnir að hlýnunin nálg-
ast hratt þær 1,5° á Celsíus
sem margir vísindamenn
segja að muni hafa gríðar-
leg áhrif á lífríkið. Auk
þess sem talið er að hlýn-
uninni muni fylgja meiri
breytingar í átt til öfga í
veðri, hitabylgja, flóða og
þurrka, í öllum heimsálf-
um. /VH