Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 45 Ævintýri íslenskra fjárhunda Skemmtilegar bækur um íslenska fjárhundinn Hófí og vini hennar. Fást í öllum helstu bókabúðum landsins og netverslun www.hofi.is Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta HÁSKÓLINN Á HÓLUM AUGLÝSIR EFTIRFARANDI HROSS TIL SÖLU 1. Ferna IS2006258309 (BLUP 127 AE: 8.61) fengin við Apollo frá Haukholtum 2. Rispa frá Hólum IS2013258308 (BLUP 126 AE: 8.50) Skrifleg tilboð þurfa að berast skrifstofu skólans í síðasta lagi 17. desember nk. Merkt: Háskólinn á Hólum, Guðmundur Eyþórsson – tilboð í hross. Áskilinn er réttur til að hafna öllum tilboðum. Sjá nánar á holar.is og worldfengur.com. Frekari upplýsingar hjá sveinn@holar.is. Tómatatilraun með mismunandi LED meðferðum er farin af stað Fullnægjandi leiðbeiningar vegna vetrarræktunar á tómötum undir LED topplýsingu og millilýsingu og HPS lampa með rafeinda- straumfestu (electronic ballast) eru ekki til á Íslandi. Þess vegnar hefur farið af stað tómatatilraun með mismunandi LED meðferðum hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í haust 2019 og þessi tilraun mun standa til vors 2020. Því ætlum við, sem störfum við tilraunir, að kynna uppsetningu tilraunar. Miðað við fyrri tilraunir var ákveðið að að skipta út gömlu HPS lömpunum með vírundinstraum- festu (electromagnetic ballast) út fyrir nýja HPS lampa með raf- eindastraumfestu (electronic ball- ast, mynd 1). Með þessum lömpum er samkvæmt framleiðenda hægt að spara rafmagn. Miðað við það sjónarmið að raforkukostnaður er stór þáttur í rekstrarkostnaði hjá garðyrkjubændum og niðurgreiðslu- hlutfall fer lækkandi gæti það verið mjög mikilvægt fyrir þá garðyrkju- bændur sem eru að hugsa aðeins um HPS ljós en ekki LED ljós og þurfa að endurnýja ljósabúnað að skoða þennan möguleika. Eins og í fyrri LED tilraunum með jarðarber er einn ræktunar- klefi með háþrýsti-natríumlömpum (HPS ljós sem viðmið, mynd 1) og einn með LED ljós (mynd 2) með hagkvæmari orkunýtingu og orku- sparnað í huga. Í báðum klefum er þá ljósið fyrir ofan laufþekju sem topp- lýsing. En þessi meðferð felur í sér að blöð sem eru neðar fá takmarkað ljós. Þar sem það er þekkt að neðri blöðin geta líka aðlagast á mjög virk- an hátt, bendir það til að betri nýting geti orðið með því að nota millilýs- ingu (lampar milli plönturaða) í við- bót við topplýsingu. Þess vegna var tveimur klefum bætt við með LED millilýsingu. Einn klefi er með HPS topplýsingu og LED millilýsingu (mynd 3). Og í hinum klefanum er Hybrid topplýsing (blandað HPS + LED topplýsingu) með LED milli- lýsingu (mynd 4). Markmið tilraunarinnar er að rannsaka áhrif LED topplýsingar og LED millilýsingar á vöxt, uppskeru og gæði gróðurhúsatómata og hvort það væri hagkvæmt. Verkefnisstjóri er Christina Stadler og Börkur Halldór Bl Hrafnkelsson og Elías Óskarsson hafa daglega umsjón með tilrauninni. Helgi Jóhannesson hjá RML sér um ráðgjöf á meðan að tilraun stendur. Verkefnið er unnið í samstarfi við tómatabændur og var þeim boðið í heimsókn í byrjun tilraunar. Fleiri heimsóknir verða á dagskrá og með því verður þekk- ingar við lýsingu aflað og miðlað. Tilraun er styrkt af Framleiðnisjóði landbúnaðarins, Þróunarsjóði garð- yrkjunnar og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. LED topplýsing og LED millilýsing var útvegað að kostnaðarlausu af fyrirtækinu Signify (áður Philips) sem er líka ráðgefandi varðandi LED lýsingu í þessari tilraun. Tilraunin hefur núna staðið í um tvo mánuði og fyrstu niðurstöður gefa til kynna að vöxtur milli klef- anna er mjög mismunandi. Fyrsta uppskera er fljótlega væntanleg. Í lok tilraunar verða niðurstöður kynntar í Bændablaðinu. Christina Stadler, Börkur Halldór Bl Hrafnkelsson og Elías Óskarsson, Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum, 810 Hveragerði LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS Mynd 1: HPS lampar með rafeinda- straumfestu fyrir ofan tómataplöntur. Mynd 2: LED lampar fyrir ofan tómataplöntur. Mynd 3: HPS topplýsing og LED millilýsing hjá tómataplöntum. Mynd 4: Hybrid topplýsing (HPS+LED) og LED millilýsing hjá tómataplöntum. Led húsnúmer Falleg húsnúmer í öllum stærðum og gerðum · Sérsmíðum númer á öll hús og fjölbýli Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar: ledhúsnúmer Einnig hægt að hringa í sími 775 6080 · Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni · Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli · Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer Led húsnúmerinn er einnig hægt að skoða og versla hjá Skómeistaranum í Smáralind
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.