Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201952
GRÓÐUR&DÝRALÍF Í FRAMANDI LÖNDUM
Ungur rakst ég á „Ömmu Dreka“ í
sögu Guðrúnar Helgadóttur „Jón
Oddur og Jón Bjarni“. Líklega
var það með fyrstu drekum sem
ég rakst á um ævina. En haustið
2015 var ég svo heppinn að heim-
sækja grasagarð í Singapúr, hvar
ég óvænt rakst á myndarlegasta
dreka!
Ásamt gróðri má nefnilega finna
þar ágætasta samansafn dýra (þ.m.t.
skordýra) en þó átti ég ekki von á
að rekast þar á dreka! Sérlega fal-
legar drekaflugur voru þarna víða,
en nei, drekinn sem ég rakst á var
sem betur fer ekki fljúgandi.
Lúpínan borgar flugið
Ferðin til Singapúr er auðvitað
heldur lengra ferðalag en að skjótast
til Egilsstaða eða Kaupmannahafnar
og þeir eru ekkert mjög margir
dagarnir sem maður getur eytt í
Singapúr þar til manni fer að leið-
ast. Við hins vegar vorum í minni-
háttar Asíureisu og því tilvalið að
líta þarna við og mæli ég einmitt
helst með sambærilegri heimsókn,
sé fólk á þessum slóðum, eða ef
millilent er í Singapúr. Svona langt
flug kostar auðvitað bæði tíma og
peninga, en nútildags er það einnig
líklegt til að toga aðeins í samvisku
þeirra sem fylgjast náið með sínu
kolefnisbókhaldi.
Fljótt á litið sýnist mér flug fram
og til baka þurfa í kringum 30 tré
til að jafna þetta út. Núorðið vitum
við að lúpína á Suðurlandi bindur
meira en birkiskógur af sömu stærð
á sama svæði, en bindingin þó til
skemmri tíma. Ef þið komist ekki
í gróðursetningu trjáplantna strax,
þá er auðvitað hægt að sá bara dug-
lega af lúpínu í millitíðinni. Frekar
óumdeild planta sem fellur aldrei
í grýttan jarðveg nema þá helst til
að vaxa þar.
Framandi gróður og
skordýr í fuglastærð
Ýmislegt áhugavert og fallegt var
þarna að finna, nefna mætti til
dæmis samansafn plantna af for-
sögulegum ættum, raðað skemmti-
lega upp ásamt viðeigandi lista-
verkum til að kenna gestum lítillega
um þróun plantna. Sérstakt svæði
er tileinkað plöntum af engifer og
nærliggjandi ættum (Zingiberales)
og elsti hluti garðsins þekur svo
nokkra hektara af framandi regn-
skógi. Eini hluti garðsins sem
rukkað er aðgangsgjald fyrir er
svæðið sem hýsir heimsins stærsta
safn orkídea.
Eins og ætla mætti útfrá land-
fræðilegri legu voru plönturnar
almennt meira í trópíska kantinum,
miðað við það sem maður er vanur
og margt þarna sem maður sér ekki
oft utan gróðurhúsa. Skordýralífið
hér var líka alveg gríðarlega áhuga-
vert, en um leið kannski ekki besti
staðurinn fyrir pöddufælna.
Risavaxnar vespur sem voru
jafnt þær langstærstu sem og hávær-
ustu sem ég man eftir að hafa rekist
á sveimuðu þarna um og flugu oft
það nálægt að manni stóð ekki á
sama. Sem betur fer sá maður fljótt
að þær höfðu alls engan áhuga á
manni. Þó stoltið væri óneitanlega
sært, gat maður þá varpað öndinni
léttar og fylgst aðeins með þeim.
Lætin í vespunum bliknuðu þó
í samanburði við suðið úr tifum
(cicadas). Þær voru þarna í miklum
fjölda á trjánum og þó maður sæi
þær nú sjaldnast, þá létu þær heldur
betur vita af sér. Í miðri náttúrunni
voru lætin eins og maður væri á
stóru byggingarsvæði í miðri stór-
borg á háannatíma. Á þeim tíma
hafði maður vart kynnst öðru eins
og ætlaði varla að trúa því að tifurn-
ar litlu væru í raun og veru svona
svakalega háværar. Því miður náði
ég ekki að festa þær á filmu.
Þegar drekinn birtist!
Lífið fær sko aldeilis að njóta sín
þarna í garðinum. Fiskar synda
þarna kátir innan um vaðfugla
og endur. Smáfuglar flögra um
gróðurinn og stærri fuglar láta sig
ekki vanta. Íkornar þjóta upp og
niður trén, safna mat, leika sér og
fylgjast með öllu saman. Ef maður
staldrar við og fylgist með lífinu
í smá stund, þá er hætt við að
manni bregði í brún þegar maður
sér skyndilega útundan sér dreka
röltandi í átt að manni, ekki meira
en 10 metra í burtu!
Þar sem ég sá hann svo stoppa
og horfa á mig, fletti heilinn upp
í hinum ýmsu dýralífsþáttum og
rifjaði upp hinn ógurlega dreka
sem á ensku er kallaður „Komodo
Dragon“ (Varanus komodoens-
is) en heitir alveg örugglega ekki
kommóðu dreki á íslensku. Drekinn
sá er kjötæta, stærsta lifandi eðlu-
tegund í heimi, getur orðið yfir 3
metra langur og tæp 170 kíló að
þyngd. Þeir bíta og borða bráð
sína, eru með eiturkirtla í munni
og hafa menn og dýr einnig látist
af eituráhrifum eða sýkingu í sárið
sem fylgir bitinu. Þeir geta stað-
ið uppréttir, klifrað í trjám, synt í
vatni, kafað í næstum 5 metra dýpt
og hlaupið á í kringum 20 kílómetra
hraða á kluttustund. Manni er því
ekki alveg sama þegar maður sér
slíkan nærri sér á framandi slóðum
og opið graslendi á milli. Hann stóð
þarna og horfði aðeins í átt að mér,
leit svo í kring og horfði aðeins út
í loftið. Sem betur fer virtist þetta
ekki vera árásargjarnt eða æst dýr
sem ég mætti þarna. Skömmu síðar
röltir hann svo letilega tilbaka í átt að
vatninu og stoppar nokkrum sinnum
í gróðrinum sem hann hafði óvænt
Árás drekanna og tröllvaxnar vespur!
Kristján Friðbertsson. Myndir / Kristján Friðbertsson Risavaxnar vespur sveimuðu þarna um og var þessi með þeim smærri.
Fagrar drekaflugur sveima þarna víða, áhyggjulausar um kolefnisjöfnun á sínu flugi, enda löngu búnar að græja
það í gegnum Kolvið.
Dvergvaxin Ylang-ylang (Cananga
odorata var. fruticosa) skartar sínum
fögru gulu blómum. Notuð í ilmefna-
framleiðslu, líkt og sú fullvaxta, enda
ilmurinn svipaður, þó öllu daufari.
Hér blómstrar fögur planta af baunaætt (Fabaceae) og er því skyld ýmsu
sem við þekkjum vel, svo sem auðvitað hinar ýmsu baunir, en ekki síður má
nefna jarðhnetur, sópana fögru og auðvitað lúpínuna sem bætir vort land jafnt
næringarlega sem og fagurfræðilega. Sumum kemur á óvart að jarðhnetur
séu af baunaætt, en þar má t.d. hafa í huga að enska heitið er jú samansett
af orðinu baun (pea) og hneta (nut) og veitir því vísbendingu nokkra. Þessi
tiltekni ættingi þeirra sem hér er myndaður er kenndur við páfugla, líkt og
margar aðrar plöntur, hefur því verið nefndur hreinlega páfuglsblóm. Á ensku
heldur hann bauna forskeytinu (pea) en breytir hnetu í hana og nefnist því
Peacock flower (Caesalpinia pulcherrima).
Blómstradi Strophanthus preussii.
Plantan hefur verið nýtt til meðferð-
ar við lekanda, en einnig sem eitur
á örvarbrodda, svo líklega liggur
beinast við að kalla hana „blóm fyr-
ir broddinn“.