Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 44

Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201944 Umhverfisverðlaun Eyjafjarðar­ sveitar voru veitt á dögunum og að þessu sinni voru tvenn verð­ laun veitt, fyrir bújörð og atvinnu­ starfsemi annars vegar og íbúðar­ hús og nærumhverfi hins vegar. Umhverfisnefnd fór í vettvangs­ ferð um sveitarfélagið og gerði sér ferð upp að hverju húsi. Litli Garður – hrossarækt og tamningastöð hlaut verðlaunin í flokknum bújörð og atvinnu- starfsemi. Ábúendur eru Herdís Ármannsdóttir og Stefán Birgir Stefánsson. Í umsögn dómnefndar sem birt er á vef Eyjafjarðarsveitar segir að falleg ásýnd sé að bænum þar sem tún og bæjarhús eru afmörk- uð með trjágóðri. Almenn góð umgengni er á svæðinu, nýlega máluð útihús og íbúðarhús í stíl. Festaklettur hlaut umhverfisverð- laun í flokki íbúðarhúsa og nærum- hverfis en þar búa Nína Þórðardóttir og Tómas Ingi Olrich. „Reisulegt íbúðarhús með fal- legri verönd og vel hirtum beðum í kring. Húsið og nærumhverfi þess er í skjóli fjölbreytts trjágróðurs, heimreið afar smekkleg og aðkoma að húsinu til fyrirmyndar,“ segir í umsögn um Festaklett. /MÞÞ MENNTUN&MENNING Garðyrkjuskólinn að Reykjum 80 ára Garðyrkjuskólinn að Reykjum í Ölfusi fagnar 80 ára starfsafmæli sínu á þessu ári. Það er langur tími hvort sem það er í lífi einstaklings eða skóla. Langar mig að minnast þessara tímamóta hér. Búnaðarskólinn í Ólafsdal Fyrst ætla ég þó að skreppa með þig, lesandi góður, vestur í Dalasýslu í Ólafsdal í Gilsfirði. Þar stofnaði Torfi Bjarnason, ásamt eiginkonu sinni, Guðlaugu Sakaríasdóttur, fyrsta búnaðarskólann á Íslandi, árið 1880. Búnaðarskólinn í Ólafsdal starfaði til ársins 1907 eða í 27 ár. Saga þessa skóla er mjög merkileg. Saga áræðni, hugvits og óbilandi hugsjóna við erfiðar aðstæður. Fyrsta starfsárið voru teknir inn sex nemendur í skólann en seinna voru þeir yfirleitt 12–14 og var námstíminn tvö ár. Námið var mjög metnaðarfullt, bæði verklegt og bóklegt. Lagði Torfi mikla áherslu á að nemendur hans yrðu góðir þjóðfélagsþegnar að námi loknu. Mér er þessi saga kær, því afi minn var nemandi þar árin 1891- 1893. Hann byrjaði að skrifa dag- bók þegar hann hóf nám í skólanum og lýsir skólavist sinni hvern dag allan námstímann. Þar er einstæð lýsing á skólastarfinu og daglegu lífi í Ólafsdal frá sjónarhóli nem- andans. Hann hélt síðan áfram að skrifa dagbók allt sitt líf. Þegar Torfa naut ekki lengur við vegna heilsubrests, lagðist skólinn niður. Smátt og smátt fennti yfir sporin og skólinn gleymdist. Áhrif hans á samfélagið lifðu hins vegar áfram, þótt margir geri sér ekki grein fyrir því í dag hvaðan þau komu. Skógræktarmenn ættu að minn- ast Torfa því ljárinn sem hann hann- aði og lét framleiða í Skotlandi, Torfaljárinn, bjargaði sennilega síðustu skógarleifunum á Íslandi. Járnið í honum var svo gott að mun minna þurfti að dengja hann til að halda biti. Þar með þurfti að fella færri tré til kolagerðar. Ostagerði í Dalasýslu væri líklega ekki jafn gróskuleg og hún er í dag, því í Ólafsdal var unnið brautryðjenda- starf í nútímaostagerð og svo mætti lengi telja. Það líða síðan um 100 ár þang- að til langafabörn Torfa stofna Ólafsdalsfélagið til að endur- reisa minningu skólans. Nú hefur Minjavernd tekið við keflinu og uppbygging hafin af fullum krafti. Ég segi þessa sögu til að minna okkur á að tíminn getur verið fljótur að afmá gott starf frumkvöðlanna úr huga okkar. Stofnun Garðyrkjuskóla ríkisins Færum okkur nú suður yfir heiðar og hugum að afmælisbarninu. Garðyrkjuskóli ríkisins tók til starfa að Reykjum í Ölfusi þann 1. apríl 1939 og var settur formlega sumar- daginn fyrsta það ár. Sá dagur hefur æ síðan verið sérstakur hátíðisdagur á Reykjum. Þá er skólinn opnaður fyrir almenningi og haldin hátíð. Þúsundir landsmanna heimsækja nú skólann ár hvert á þessum degi, þar sem nemendur kynna nám sitt og atvinnulífið störfin í faginu. Mikil samsvörun er milli Búnaðarskólans í Ólafsdal og Garðyrkjuskólans. Báðir eru stofn- aðir vegna þess að knýjandi þörf var fyrir menntun í þessum greinum. Landbúnaðurinn að stíga inn í nýja öld og garðyrkjan á Íslandi að stíga sín fyrstu skref. Upp úr aldamótunum 1900 fóru einstaklingar og áhugafélög að gera ýmsar ræktunartilraunir. Áhuginn var mikill. Farið var að huga að möguleikum á nýtingu hveravatnsins til upphitunar gróð- urhúsa. Hverirnir höfðu annars frekar verið litnir hornauga, voru bara slysagildra fyrir fólk og fénað. Erlendir garðyrkjumenn, menntaðir í nágrannalöndum okkar komu til landsins og sáu þá möguleika sem heita vatnið gaf. Þeir unnu braut- ryðjendastarf og Íslendingar lærðu af þeim. Næstu áratugina fóru að rísa garðyrkjustöðvar þar sem heitt vatn var að fá. Í Mosfellsdal, Ölfusinu, uppsveitum Árnessýslu, Borgarfirði og víðar. Þessar stöðvar þurftu á garðyrkjumenntuðu fólki að halda. Ríkið hafði keypt svokallaða Reykjatorfu í Ölfusi og reist þar berklahæli árið 1931. Um 1934 hefjast umræður um nauðsyn þess að stofna garðyrkjuskóla á Íslandi. Berklahælið á Reykjum var aflagt árið 1938 en þar hafði verið stundað- ur hefðbundinn búskapur og byggð upp gróðrarstöð sem nýtt var fyrir hælið. Árið 1936 eru síðan samþykkt lög á Alþingi um skólann þar sem staðsetning hans að Reykjum er ákveðin. Skólinn skuli vera sjálfstæð stofnun á ábyrgð ríkisins. Næstu tvö árin er samin reglugerð þar sem kveðið er á um kennslutilhögun og starfshætti. Unnsteinn Ólafsson var síðan ráðinn fyrsti skólastjóri Garðyrkjuskóla ríkisins. Starfsmenntanám í garðyrkju Fyrstu árin var námið eins hjá öllum nemendum skólans en árið 1967 kom skrúðgarðyrkjan til sögunnar sem sérbraut við skólann. Síðar bættust við garð- plöntubraut, blómaskreytingar, umhverfisbraut og skógræktar- braut (sem seinna sameinuðust í braut skógar og náttúru) og á nýjustu braut skólans er hægt að læra lífræna ræktun matjurta. Garðyrkjuskólinn hraðaði mjög þróun garðyrkjunnar á Íslandi. Á fyrstu sex starfsárum skólans útskrifuðust 47 garð- yrkjufræðingar frá skólanum. Í dag útskrifast um 30-40 nemend- ur frá skólanum annað hvert ár. Ræktunin á Reykjum varð fljótt gríðarlega fjölbreytt. Gróðurhúsum fjölgaði og til- raunir gerðar með ýmsar tegundir blóma, grænmetis og ávaxta. Síðar var byggt full- komið tilraunahús á Reykjum, með aðkomu garðyrkjubænda sem studdu við bygginguna með veglegum hætti, bæði með fjár- magni og búnaði. Hlutverk þess er að styðja enn betur við þróun garðyrkjunnar á Íslandi og hafa garðyrkjubændur lagt tilraunum lið með fé og fagþekkingu í gegn- um árin. Námið við Garðyrkjuskólann er skilgreint sem starfsmennta- nám á framhaldsskólastigi. Nemendum gefst tækifæri til að afla sér verklegrar færni og þekkingar á mismunandi starfs- vettvangi sem tengist þeirra námi. Það er grundvöllur samstarfs skólans við atvinnulífið. Hlutverk Garðyrkjuskólans við að mennta hæft starfsfólk hefur aldrei verið mikilvægara. Á því byggist meðal annars framtíð okkar í nýtingu þeirra auðlinda sem landið býður upp á. Í skólan- um er mikill mannauður, sem vel þarf að hlúa að. Þar er fjöreggið. Látum það ekki gerast að óvarlega verið farið með það. Munum eftir skessunum úr þjóðsögunum sem hentu því á milli sín þar til það brotnaði. Sameining í LbhÍ – hvernig tókst til? Fyrir 15 árum var Garðyrkjuskólinn að Reykjum sameinaður inn í Landbúnaðarháskóla Íslands. Það reyndist óheillaspor. Starfs- menntanám og háskóla nám fer ekki vel saman. Aðvörunarorðum hagsmunaaðila og velunnara skól- ans var ekki sinnt. Sameiningin var skref í þá átt að leggja starfsmenntanámið niður á Reykjum og flytja það á Hvanneyri. Allt í nafni hagræðingar sem enn hefur ekki verið útskýrð á sann- færandi hátt. Á þessum 15 árum sem liðin eru, hefur viðhaldi á byggingum skólans nánast ekkert verið sinnt. Starfsfólk og kennarar hafa hins vegar sýnt með frábæru skólastarfi að skóli er miklu meira en þak og veggir. Garðyrkjuskólinn á Reykjum þarf á því að halda að vel sé haldið utan um það starf sem þar er unnið. Þetta er sérstaklega mikilvægt í ljósi þeirra gífurlegu tækifæra sem felast í aukinni garðyrkju á Íslandi, hvort sem um er að ræða mótun og fegrun umhverfis, uppeldi skógarplantna og garðagróðurs, framleiðslu og notkun íslenskra blóma eða mat­ vælaframleiðslu. Fljótt fennir í sporin, eins og saga Ólafsdalsskólans sýnir. Látum það ekki gerast á Reykjum. Vernharður Gunnarsson, formaður Félags garð- plöntuframleiðenda Vernharður Gunnarsson. Garðyrkjuskólinn að Reykjum. LÍF& STARF Verðlaunahafar umhverfisverðlauna Eyjafjarðarsveitar 2019, þau Tómas Ingi Olrich og Nína Þórðardóttir, Herdís Ármannsdóttir og Stefán Birgir Stefánsson standa fremst, en fulltrúar í umhverfisnefnd fyrir aftan. Umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar: Litli Garður og Festaklettur hlutu viðurkenningu Bænda 19. desember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.