Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201920
Tölur sem birtar eru á heimasíðu
Orkustofnunar sýna að stöðugt
minni hluti raforku á Íslandi er
framleiddur með endurnýjan-
legum orkugjöfum. Sá hluti var
aðeins 11% á árinu 2018. Þá er
34% orkunnar sögð framleidd
með kjarnorku og 55% með
kolum, olíu og gasi. Allt er þetta
vegna sölu á upprunavottorðum
íslenskra orkufyrirtækja úr landi.
Þessar tölur virðast skjóta mjög
skökku við allt tal um neytendavernd
sem útlistuð hefur verið í tengslum
við innleiðingu á orkutilskipunum
ESB og aðild að sameiginlegum
orkumarkaði Evrópu.
Tilgangurinn með sölu uppruna
vottorða felur í sér allt annað en
neytendavernd ef marka má útlist
anir á heimasíðu Landsvirkjunar.
Fyrirtækið, sem hefur sýnt fram á
afar góðan rekstur ár eftir ár og er
um margt til fyrirmyndar, gefur út
hreinleikavottorð fyrir raforku eða
það sem fyrirtækið kallar uppruna
ábyrgð eða „Guarantees of origin“.
Þar segir að upprunaábyrgðir séu
vottunarkerfi sem gerir raforku
notendum í Evrópu kleift að styðja
við framleiðslu á endurnýjanlegri
orku. Kerfið veiti auknum fjárhags
legum hvata fyrir orkufyrirtæki til
að framleiða endurnýjanlega orku.
Endanlegt markmið er að auka fram
leiðslu á endurnýjanlegri orku innan
Evrópu og þar með draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Þar eru líka
á ensku sett rök fyrir ágæti þess að
framleiðslufyrirtæki kaupi uppruna
vottanir af fyrirtækinu. Þá kemur
röðin að viðskiptasiðferðinu, en þar
segir m.a.:
„Ecolabels that require
guarantees of origin may increase
revenues for businesses as value of
their products and services increases
and the market share grows. Many
people are willing to pay higher
prices for products with ecolabels
and often show greater brand
loyalty.“
Eða í lauslegri þýðingu:
„Umhverfismerki sem krefjast
upprunaábyrgðar geta aukið tekjur
fyrirtækja um leið og verðmæti
vöru og þjónustu þeirra eykst og
markaðshlutdeildin vex.
Margir eru tilbúnir að greiða
hærra verð fyrir vörur með
umhverfismerkjum og sýna slíkum
merkjum oft meiri hollustu.“
Fyrirtæki sem kaupa svona
syndakvittanir geta með því vænt
anlega selt vörur sínar á hærra verði.
Jafnvel þótt þau framleiði í veruleik
anum allar sínar vörur með raforku
sem framleidd er með kolum, olíu,
gasi eða kjarnorku.
Spurning um
siðferði í viðskiptum
Siðferði í viðskiptum er nú mjög
til umræðu af ýmsum ástæðum.
Ísland er í flokki með ríkjum sem
stundað hafa peningaþvætti (Money
laundering). Þar erum við á gráum
lista stofnunar sem sett var á fót af
G7 ríkjahópnum 1989 til að berjast
gegn peningaþvætti. Þessi stofnun
heitir Financial Action Task Force
(on Money Laundering) sem
skammstafað er FATF.
Þekktur er alvarlegur sið ferðis
brestur stórefnamanna í bankavið
skiptum sem leiddi til efnahags
hrunsins 2008. Nú hriktir í siðferðis
ímynd Íslendinga vegna meintra
mútugreiðslna Samherja í því
augnamiði að ná til sín veiðiheim
ildum við vesturströnd Afríku. Þar
hafa komið fram gögn frá WikiLeaks
sem sýnast ansi trúverðug. Hafa þau
þegar leitt til þess að mótleikarar
Samherjamanna í Namibíu hafa
verið handteknir og sakaðir um að
þiggja að jafnvirði hundruð milljóna
króna í mútur frá íslenska útgerðar
félaginu. Íslensk og norsk yfirvöld
eru einnig komin með það mál til
rannsóknar.
Er siðferðisbrestur bara kusk
sem dusta má af hvítflibbanum?
Í ljósi þess að nokkurt kusk hefur
fallið á hvítflibba íslenskra athafna
manna í viðskiptum erlendis, þá
hlýtur að vakna sú spurning hvort
ekki verði skoðað siðferði í við
skiptum íslenskra fyrirtækja á
breiðari grunni en gert hefur verið.
Allavega verður því vart trúað að
óreyndu í því sambandi að gerður
sé siðferðilegur greinarmunur á eðli
viðskipta, eða hvort þau eru stunduð
af útgerðum eða öðrum fyrirtækjum.
Jafnvel hvort hægt sé að flokka
siðferði eftir vöruflokkum, þar sem
orkumál eru mögulega undanþegin.
Í útlistun Landsvirkjunar á sölu
upprunavottorða er fullyrt að þau séu
einungis seld til að stuðla að aukinni
framleiðslu á raforku með endurnýj
anlegum orkugjöfum til að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda í kjöl
far umræðu um hlýnun loftslags.
Eins og tilvísanir í gögn fyrirtækisins
hér að framan sýna er kaupendum
upprunavottorðanna hins vegar líka
bent á allt annan veruleika, nefnilega
að fá neytendur til að greiða hærra
verð fyrir vörurnar.
Blekkingaleikur
Í þessari útlistun eru tekin af öll
tvímæli varðandi það að uppruna
vottorðin geta fengið neytendur til
að greiða hærra verð fyrir vörur
sem skreyttar eru með umhverfis
merkjum. Fyrirtæki sem nota
óhreina orku við sína framleiðslu
geta þannig sagst vera umhverfisvæn
þótt þau séu það alls ekki. Á íslensku
hefur slíkur leikaraskapur hingað
til verið kallaður blekkingaleikur.
Það er í raun verið að ljúga því að
neytendum að varan sem þeir eru
að kaupa sé umhverfisvæn þótt það
sé ósatt. Þá gildir einu hvort menn
kalla það „saklausa“ hvíta lygi eða
eitthvað annað, lygi er það samt.
Þegar svo er komið er farið að bresta
í siðferðisvitundinni og siðleysi í
viðskiptum farið að verða að við
tekinni venju.
Íslendingar taka á sig
ábyrgð á erlendri mengun
Að undanförnu hefur talsvert borið
á tilraunum orkufyrirtækjanna til
að sýna fram á að sala á uppruna
vottorðum sé hið besta mál. Þetta
skili orkufyrirtækjunum m.a. hund
ruðum milljóna króna í tekjur. Það
skipti Íslendinga að öðru leyti engu
máli að við þurfum að taka inn í töl
fræði Orkustofnunar að við séum að
taka á okkur í staðinn ótrúlega mikla
mengun í formi kjarnorkuúrgangs
og koltvísýringslosunar. Hins vegar
er ekkert minnst á að með kaupum
á upprunavottorðum séu erlendu
fyrirtækin að hvítþvo sig af sínum
mengunarhluta á pappírunum. Sá
mengunarhluti hverfur hins vegar
ekki, heldur verða seljendur hrein
leikavottorðanna að taka ábyrgð á
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
80%
90%
En
du
rn
ýj
an
le
g
or
ka
Kj
ar
no
rk
a
Ja
rð
ef
na
el
ds
ne
yt
i
En
du
rn
ýj
an
le
g
or
ka
Kj
ar
no
rk
a
Ja
rð
ef
na
el
ds
ne
yt
i
En
du
rn
ýj
an
le
g
or
ka
Kj
ar
no
rk
a
Ja
rð
ef
na
el
ds
ne
yt
i
En
du
rn
ýj
an
le
g
or
ka
Kj
ar
no
rk
a
Ja
rð
ef
na
el
ds
ne
yt
i
En
du
rn
ýj
an
le
g
or
ka
Kj
ar
no
rk
a
Ja
rð
ef
na
el
ds
ne
yt
i
En
du
rn
ýj
an
le
g
or
ka
Kj
ar
no
rk
a
Ja
rð
ef
na
el
ds
ne
yt
i
En
du
rn
ýj
an
le
g
or
ka
Kj
ar
no
rk
a
Ja
rð
ef
na
el
ds
ne
yt
i
En
du
rn
ýj
an
le
g
or
ka
Kj
ar
no
rk
a
Ja
rð
ef
na
el
ds
ne
yt
i
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
89%
5% 6%
63%
16%
21%
39%
24%
37%
45%
23%
32%
71%
12%
17%
21% 20%
59%
13%
29%
58%
11%
34%
55%
Þróun raforkusölu á Íslandi 2011-2019
skipting eftir orkugjöfum
Heimild: Orkustofnun
Bæ
nd
ab
la
ði
ð
/ H
Kr
. /
2
01
9
Endurnýjanleg orka
11%
Kjarnorka
34%
Jarðefnaeldsneyti
55%
SAMSETNING RAFORKU Á ÍSLANDI 2018
RAFORKUSALA
Heimild: Orkustofnun
Bæ
nd
ab
la
ði
ð
/ H
Kr
. 2
01
9
Íslendingar hjálpa vöruframleiðendum sem
nota óhreina orku við að blekkja neytendur
– Með aflátsbréfum frá Íslandi geta fyrirtæki fengið umhverfisvottanir af ýmsum toga sem nýta má sem rök fyrir hækkun vöruverðs
Skjáskot af vefsíðu Landsvirkjunar þar sem útlistaðir eru kostir á kaupum á hreinleikavottorðum, þar sem kaup-
endum slíkar vottorða er bent á tækifæri til að hækka vöruverð til neytenda í skjóli umhverfisviðurkenninga.