Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 20198 FRÉTTIR Ræktun á iðnaðarhampi: Reglur um ræktun á iðnaðarhampi þvert á ráðuneyti Greint var frá því á vef Bænda­ blaðsins fyrir skömmu að lög­ reglan á Austurlandi hafi heim­ sótt Gautavík í Berufirði. Erindið var að kanna, að tilmælum Lyfjastofnunar, hvort ræktun ólöglegra plantna ætti sér stað á býlinu. Fyrirhugað er að setja á fót starfshóp til að skoða ræktun á iðnaðarhampi hér á landi. Síðastliðið sumar ræktuðu ábú­ endurnir í Gautavík iðnaðarhamp í tilraunaskyni á um einum hekt­ ara. Meginmarkmiðið var að vekja athygli á notagildi hampsins, en þau ætli einnig að gera tilraunir með að nota hráefnið til að fram­ leiða trefjaplötur til að skera módel­ leikföngin sín út úr, í stað MDF, sem er harðpressaður pappi, og verða þannig sjálfbær um hráefni. Bændablaðið fjallaði um þá ræktun í haust. Sú ræktun gekk ágætlega þrátt fyrir slæmt sumar og voru fræin flutt inn síðastliðið vor með leyfi Matvælastofnunar. Að sögn ábúendanna fengu þau svokallað MST­númer frá MAST þegar þau höfðu skilað inn vott­ orðum frá fræframleiðandanum um að fræin væru sótthreinsuð og innihéldu innan við 0,2% magn af THC, ásamt útfylltu eyðublaði sem allir innflytjendur sáðvöru þurfa að fylla út. Þegar fræin hafi komið til landsins hafi þau látið tollinn hafa þá pappíra og tollurinn þá hleypt þeim inn í landið. Fundur með landbúnaðarráðherra Oddný Anna Björnsdóttir, bóndi í Gautavík, segir að eftir heimsókn lögreglunnar hafi hún farið á fund landbúnaðarráðherra og rætt stöðu, hindranir og næstu skref varðandi ræktun iðnaðarhamps hér á landi. Á fundinum upplýsti Oddný ráðherra um að samkvæmt lögum Evrópusambandsins hafi verið lög­ legt að rækta iðnaðarhamp til fram­ leiðslu á trefjum svo lengi sem magn THC í plöntunni sé ekki yfir 0,2% frá árinu 2000. Að sögn Oddnýjar ganga reglur um ræktun á hampi þvert á ráðu­ neyti. „Sé um að ræða hamp sem ræktaður er til framleiðslu á lyfjum er það á verksviði heilbrigðisráðu­ neytisins en sé um að ræða húð­ og hárvörur eða hreinlætisvörur fellur framleiðslan undir umhverfisráðu­ neytið. Ræktun á hampi til fram­ leiðslu á fatnaði, rekstrarvörum, leikföngum og ýmsum nytjavörum fellur undir iðnaðar­ og nýsköp­ unarráðuneytið en framleiðsla á fæðubótarefnum, fóðri og sáðvöru undir landbúnaðarráðuneytið. Þegar kemur að tilraunaræktun og fræðslu er sá hluti undir menntamálaráðu­ neytinu og toll­ og löggæsla er undir dómsmálaráðuneytinu. Þannig að flækjustigið er talsvert.“ Oddný segir að landbúnaðarráð­ herra hafi sýnt málinu skilning á fundinum og sagt að hann vildi gjarnan fylgjast með framgangi þess. „Ég átti svipaðan fund með Þórdísi Kolbrúnu iðnaðar­ og nýsköpunarráðherra fyrir skömmu og viðbrögðin voru svipuð. Fyrir þann fund fékk ég tölvupóst frá ráðu­ neytinu þar sem segir að viðræður séu fyrirhugaðar við atvinnu­ og nýsköpunarráðuneytið um að það muni skipa starfshóp um málið með aðkomu sérfróðra aðila sem skipað­ ir verði af heilbrigðisráðuneytinu.“ Oddný segist ekki vita til þess að enn hafi verið skipað í þennan starfshóp. Ekki í meðferð hjá ráðuneytinu Samkvæmt upplýsingum frá land­ búnaðar ráðu neytinu er „þetta mál [er] ekki til meðferðar í ráðuneytinu. Hins vegar lýsti ráðherra yfir á fund­ inum vilja til að aðstoða hana eins og kostur er við að leysa málið og bað Oddnýju um að leyfa sér að fylgjast með framhaldi máls­ ins. Kristján Þór sagði á fundinum að um væri að ræða frum­ kvöðlastarf sem feli í sér mikil tækifæri. Mikilvægt væri að leita leiða til að leysa sem fyrst úr þeirri stöðu sem upp væri komin.“ Hampur fluttur inn í margs konar formi Árið 2012 leyfði Lyfjastofnun inn­ flutning á hamppróteindufti og hamp­ fræjum sem markaðssett voru sem heilsufæði hér á landi. Upphaflega hafnaði Lyfjastofnun innflutningnum á þeim forsendum að hampprótein­ duftið og hampfræin væru ávana­ og fíkniefni sem væru óleyfileg hér á landi, þar sem um afurðir kannabis­ plöntunnar er að ræða. Seinna kom í ljós að vörurnar voru framleiddar úr iðnaðarhampi sem veldur hvorki vímu né hefur ávanabindandi áhrif. Oddný segir að mat Lyfjastofnunar á því að ræktun á iðnað­ arhampi sé torskilin og til að gæta jafn­ ræðis þyrfti að stöðva innflutning á matvæl­ um úr iðnaðarhampsfræjum, fuglafræjum og klæðnað og annan textíl og bíla og flugvélar sem inni­ halda einangrun úr iðnaðarhampi sem og ýmiss konar nytjahluti úr iðnaðarhampi. Sýni og myndir utan- og innandyra Að sögn ábúenda í Gautavík fór lögreglan um svæðið, utan­ og inn­ andyra, með leyfi húsráðanda, enda engin húsleitarheimild til staðar. Teknar voru myndir af umfangi hampræktunarinnar á staðnum, af­ urðum og pappírum, til dæmis leyfis­ bréfi frá MAST vegna innflutnings á fræjum og tekin sýni. /VH Odddý Anna Björnsdóttir í iðnaðarhampsræktinni í Gautavík í Berufirði. Lyfjastofnun segir iðnaðarhamp falla undir ákvæði ávana- og fíknilaga Bændablaðið sendi Lyfjastofnun fyrirspurn vegna umræðunnar um iðnaðarhamp og leyfi til að rækta hann. Auk þess var spurt hver staða hamps væri í ýmiss konar vörum sem fluttar eru til landsins. Einnig var spurt og hvort skýra þurfi eða breyta lög­ unum til þess að leyfa ræktunina að mati Lyfjastofnunar. Í svari Lyfjastofnunar segir að á undangengnu ári hafi stofnuninni borist fjöldinn allur af fyrirspurn­ um og erindum sem snúa að því hver sé lögformleg staða þeirra vara og plantna. Þessum fyrirspurnum hefur fjölgað verulega á þessu ári í samanburði við árin þar á undan. Staða iðnaðarhamps og CBD var af þessum sökum því nýlega tekin sérstaklega til skoðunar hjá stofn­ uninni. Lyfjastofnun telur að ákvæði ávana­ og fíknilaga, nr. 65/1974, með síðari breytingum, feli í sér að plöntur og efni af þessum toga falli undir ákvæði 2. gr. og 6. gr. lag­ anna, og sé innflutningur, meðferð og varsla þeirra bönnuð á íslensku yfirráðasvæði. Umrædd löggjöf gerir til að mynda ekki greinarmun á mismunandi afbrigðum kannabis­ plantna, né því magni af virkum efnum sem mismunandi afbrigði plantnanna framleiða. Mikilvægt er að leiðrétta þann misskilning sem virðist gæta að Lyfjastofnun hafi veitt leyfi til innflutnings á hamppróteindufti og hampfræjum sem markaðssett eru hér á landi. Um er að ræða vörur sem flokkast sem matvæli og hefur Matvælastofnun þar af leiðandi eftirlit með innflutningi þeirra og markaðssetningu. Hvað varðar aðrar vörur sem innihalda hamp getur Lyfjastofnun ekki tjáð sig um, enda um að ræða vörur sem heyra undir eftirlit ýmissa annarra opinbera stofnana. Lyfjastofnun hefur ekki mótað sér sérstaka skoðun á því hvort um sé að ræða ósamræmi í lögum eða hvort þurfi að skýra eða breyta lögum á þessu sviði, enda stofnun­ inni ekki falið slíkt hlutverk lögum samkvæmt. /VH Hveragerðisbær handhafi óvirks greiðslumarks Matmælastofnun hefur sent bæj­ arstjórn Hveragerðisbæjar erindi þar sem vakin er athygli á því að bæjarfélagið er handhafi óvirks greiðslumarks, alls 29,9 ærgildi, sem fylgdu með þegar bæjarfélagið leysti til sín erfðafestu Friðarstaða. Í bréfinu er bent á að sækja þurfi um innlausn þess fyrir 6. desember til að fá það innleyst. Á síðasta fundi bæjarstjórnar var bæjarstjóra falið að innleysa greiðslumarkið sem nemur kr. 524.945. Þar sem þessa fjármuni rak óvænt á fjörur Hveragerðisbæjar hefur bæjarráð lagt til við bæjarstjórn að menn­ ingar­, íþrótta­ og frístundanefnd fái heimild til að verja þessum fjármunum í þágu barna bæjarins. /MHH Sveinn Margeirsson hyggst verja sig sjálfur: Hópur bænda mætti til að sýna samstöðu Fyrirtaka var á þriðjudaginn í síðustu viku í máli Lögreglu­ stjórans á Norðurlandi vestra gegn Sveini Margeirssyni, fyrrverandi forstjóra Matís, vegna hins svokallaða örslátrunarmáls í Birkihlið í Skagafirði. Þá hafði Sveinn frumkvæði að því að slátra lömbum heima á bæ og afurðir þeirra voru síðan seldar á bændamarkaði á Hofsósi. Sveinn er ákærður fyrir brot á lögum um slátrun og sláturafurðir, en hópur bænda mætti í héraðsdóm á Sauðárkróki til að sýna samstöðu með Sveini. Sveinn hyggst verja sig sjálfur og samkvæmt upplýsingum frá Héraðsdómi Norðurlands vestra fékk hann frest til 14. janúar næstkomandi til að skila greinargerð. Þegar hún liggur fyrir mun dómari ákveða tíma til aðalmeðferðar. /smh Sveinn með stuðningsfólki sínu við dómsalinn á Sauðárkróki. Mynd / Feykir Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 SÍUR Í DRÁTTARVÉLAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.