Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201932
Matvælastofnun stóð fyrir opnum
fræðslufundi 28. nóvember um
breyttar reglur um innflutning
á hráu ófrosnu kjöti, ferskum
eggjum og ógerilsneyddri mjólk
til Íslands frá Evrópska efnahags-
svæðinu. Markmið fundarins var
að upplýsa um þær reglur sem
taka gildi um áramótin og þær
kröfur sem innflutningsaðilar og
dreifingaraðilar þurfa að upp-
fylla. Sérstaklega var farið yfir
ákvæði um viðbótartryggingar
vegna salmonellu og sérreglur um
kampýlóbakter.
Í upphafi ársins samþykkti
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) heimild
Íslands til að beita reglum um við-
bótartryggingar vegna salmonellu í
innfluttu kjúklinga- og kalkúnakjöti
og eggjum. Viðbótartrygging vegna
salmonellu í innfluttu svína- og
nautakjöti var svo samþykkt á fundi
sameiginlegu EES-nefndarinnar 25.
október síðastliðinn.
Engin frystiskylda lengur
Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýra-
læknir hjá Matvælastofnun, fór fyrst
yfir forsögu reglubreytinganna. Það
kom fram að lögum um dýrasjúk-
dóma og varnir gegn þeim var breytt
til að heimila þennan innflutning, án
leyfis Matvælastofnunar, í kjölfar
EFTA-dóms frá því í nóvember 2017.
Þar var komist að þeirri niðurstöðu
að innflutningseftirlit á Íslandi með
hrárri og unninni kjötvöru, eggjum og
mjólk samræmdist ekki samningum
um Evrópska efnahagssvæðið. Eftir
lagabreytingu er ekki lengur nein
frystiskylda fyrir hrátt kjöt og ekki
þarf að sækja um sérstakt leyfi til
Matvælastofnunar um innflutning á
matvælum frá löndum á Evrópska
efnahagssvæðinu.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið ásamt Matvælastofnun bjó til
aðgerðaráætlun í kjölfar niðurstöðu
dómstóla í þeim tilgangi að draga úr
líkum á því að sýkingarhætta fyrir
neytendur myndi aukast með nýjum
reglum. Þingsáætlun um slíka áætlun,
um matvælaöryggi og vernd búfjár-
stofna, var síðan samþykkt á Alþingi
í júní á þessu ári.
Strangar vaktanir í landsáætlun
Brigitte Brugger, sem einnig er sér-
greinadýralæknir hjá Matvælastofnun,
fór yfir kampýlóbakter- og salmon-
ellusmit í kjúklingum á Íslandi og
í Evrópu, en þessar bakteríur eru
algengastar í kjúklingakjöti. Hún
fór yfir eftirlitsáætlanir á Íslandi og
Evrópu, þar sem fram kom að Ísland
og Noregur væru einu Evrópulöndin
sem bæði vöktuðu og gripu til að-
gerða þegar vart yrði við kampýló-
baktersmit í kjúklingaeldishópum.
Kjötið úr þeim hópum væri fryst.
Kampýlóbaktersmit er víða mjög al-
gengt í hráu kjúklingakjöti og hefur
verið mest sunnar í Evrópu. Með
nýjum innflutningsreglum muni
Ísland taka upp breytt eftirlit með
smitmagni kampýlóbakter við slátrun
hér á landi.
Brigitte sagði að eftirlit með
salmonellusmiti í alifuglarækt væri
einnig mun meira hér á landi og gripið
sé til tafarlausra aðgerða þegar slíkar
sýkingar kæmu upp. Eldishópum ali-
fugla væri fargað og sláturhópar strax
innkallaðir. Það væri í landsáætlun að
vera með strangar vaktanir með það
að markmiði að tíðni smita væri undir
einu prósenti í allri frumframleiðslu
og við slátrun alifugla. Það væri í raun
skilyrði þess að Ísland gæti krafist
viðbótartrygginga vegna salmonellu,
fyrir innflutningi.
Hún sagði til marks um góða stöðu
Íslands að hér hefði aldrei greinst
afbrigðið Salmonella Enteritidis í
varphænum og ekki sé vitað um hóp-
sýkingar vegna salmonellu í eggjum
síðustu áratugi.
Svínaræktin áhættuþáttur
Vigdís talaði stuttlega um salmonellu
í tengslum við svínarækt á Íslandi
og sagði að litið væri á alla svína-
ræktina sem hugsanlegan áhættuþátt.
Staðan hér á landi væri hins vegar
nokkuð góð og með strangri vöktun
við slátrun sé dregið verulega úr smit-
hættu í kjöti, auk þess sem hægt sé
að grípa til aðgerða áður en varan er
komin á markað.
Mælingar skorti hins vegar mjög
í allri Evrópu að þessu leyti þegar
kemur að öðrum búgreinum en ali-
fuglaeldi.
Uppruni kjöts og sýklalyfjaónæmi
Þær ræddu einnig um sýklalyfja-
ónæmisvandann í Evrópu. Þar kom
fram að mikilvægt væri fyrir kjötinn-
flytjendur að hafa í huga hvar sýkla-
lyfjaónæmi væri algengast þegar þeir
keyptu inn kjöt til innflutnings, vegna
þess hversu vandinn væri víða orðinn
alvarlegur.
Svava Liv Edgarsdóttir, fagsviðs-
stjóri hjá Matvælastofnun, kynnti
nýjar reglur um vöktun á kampýló-
bakter í alifuglakjöti. Hún sagði að
um leið og svokallað leyfisveitinga-
kerfi Matvælastofnunar legðist niður,
færðist ábyrgðin yfir á innflutnings-
aðilana sjálfa. Opinber vöktun verði
þó með salmonellu í innfluttum kjöt-
afurðum og eggjum og kampýlóbakt-
er í innfluttu alifuglakjöti.
Sérreglur um kampýlóbakter
í ófrosnu alifuglakjöti
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið hefur unnið að sérreglum um
kampýlóbakter í ófrosnu alifuglakjöti
þar sem tilgangurinn er að koma í
veg fyrir að fólk sýkist og draga úr
líkum á að kampýlóbakter-mengað
kjöt berist til landsins. Meiri líkur
eru á smiti í ófrosnu kjöti sem er
framleitt í löndum þar sem smit
í kjúklingahópum er algengt, því
með frystingu fækkar kampýlóbakter
bakteríum verulega. Til að mega setja
ferskt ófrosið kjöt á markað verða
innflutningsaðilar að krefjast niður-
staðna greininga áður en vöru er
dreift á markað þar sem staðfest er
að kampýlóbakter hafi ekki greinst
í kjötinu.
Viðbótartryggingar
fyrir salmonellu
Héðinn Friðjónsson, sérfræðingur
hjá Matvælastofnun, greindi frá
reglum sem Ísland var heimilt að
setja vegna viðbótartrygginga fyrir
salmonellu í kjöti og eggjum. Hann
sagði að reglurnar eigi eingöngu við
um ferskt kjöt, það sem ekki hafi
fengið aðra meðhöndlun en kælingu.
Í stuttu máli felast þær í því að fyrir
ferskt alifugla-, nauta- og svínakjöt
þarf að fylgja viðskiptaskjal frá
sendanda afurðanna þar sem allar
uppruna- og rekjanleikjaupplýs-
ingar er að finna – og staðfesting á
neikvæðum niðurstöðum salmon-
ellugreininga. Komi afurðirnar frá
landi sem er með sambærilegar
viðbótartryggingar, eins og Svíþjóð,
Finnlandi eða Noregi, þarf ekki stað-
festingu á þessu.
Tíðni eftirlits tekur mið af
áhættu og frammistöðu
Loks flutti Dóra S. Gunnarsdóttir
erindi um eftirlit, þvingunarúrræði
og viðurlög varðandi nýjar reglur um
þennan innflutning. Hún áréttaði að
ábyrgð yrði hjá innflutningsaðilum
en eftirlitið hjá opinberum aðilum,
sem felst í skoðun skjala, sýnatökum
til sannprófunar á niðurstöðum grein-
inga og sýnatökum til sannprófunar
á öryggi kjöts. Matvælastofnun teld-
ist þannig eftirlitsaðili ef innflutn-
ingsaðilinn er matvælafyrirtæki, en
heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga ef
innflutningsaðilinn er heildsali eða
dreifingaraðili. Tíðni eftirlits tekur
mið af áhættu og frammistöðu inn-
flutningsaðila.
Ýmis þvingunarúrræði eru heimil
ef ekki er rétt staðið að málum við
innflutning. Hægt er að taka vöru af
markaði, stöðva dreifingu og innkalla
frá neytendum. Við ítrekuð brot er
hægt að stöðva starfsemi að hluta
til eða öllu leyti. Auk þess sem hægt
er að beita dagsektum til að knýja á
um úrbætur.
Í Matvælalögum sem voru
innleidd í sumar eru heimildir til
stjórnvaldssekta varðandi brot gegn
ákvæðum um kampýlóbakter og taka
þær mið af alvarleika brots; en þær
geta verið á bilinu 25 þúsund krónur
til 25 milljóna króna.
Dóra sagði að í aðgerðaráætlun
stjórnvalda væri kveðið á um aukið
eftirlit fjóra fyrstu mánuðina eftir að
nýju reglurnar hafa tekið gildi. Þetta
verði mótunartímabil til að slípa til
aðferðir og þjálfa starfsmenn. /smh
www.gjofsemgefur.is
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 133567
undir tré á Íslandi
GEFÐU
jólapakka
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda
fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun
eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima
og erlendis.
Vigdís Tryggvadóttir á fræðslufundi Matvælastofnunar. Mynd / Matvælastofnun
MATVÆLI&MARKAÐSMÁL
Opinn fræðslufundur Matvælastofnunar um breytingar á reglum um innflutning á búvöru til landsins:
Ábyrgðin hjá innflutningsfyrirtækjunum
en eftirlitið hjá opinberum aðilum
– Heimilt er að flytja inn ófrosnar búvörur eins og egg frá 1. janúar 2020