Bændablaðið - 05.12.2019, Page 32

Bændablaðið - 05.12.2019, Page 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201932 Matvælastofnun stóð fyrir opnum fræðslufundi 28. nóvember um breyttar reglur um innflutning á hráu ófrosnu kjöti, ferskum eggjum og ógerilsneyddri mjólk til Íslands frá Evrópska efnahags- svæðinu. Markmið fundarins var að upplýsa um þær reglur sem taka gildi um áramótin og þær kröfur sem innflutningsaðilar og dreifingaraðilar þurfa að upp- fylla. Sérstaklega var farið yfir ákvæði um viðbótartryggingar vegna salmonellu og sérreglur um kampýlóbakter. Í upphafi ársins samþykkti Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) heimild Íslands til að beita reglum um við- bótartryggingar vegna salmonellu í innfluttu kjúklinga- og kalkúnakjöti og eggjum. Viðbótartrygging vegna salmonellu í innfluttu svína- og nautakjöti var svo samþykkt á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 25. október síðastliðinn. Engin frystiskylda lengur Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýra- læknir hjá Matvælastofnun, fór fyrst yfir forsögu reglubreytinganna. Það kom fram að lögum um dýrasjúk- dóma og varnir gegn þeim var breytt til að heimila þennan innflutning, án leyfis Matvælastofnunar, í kjölfar EFTA-dóms frá því í nóvember 2017. Þar var komist að þeirri niðurstöðu að innflutningseftirlit á Íslandi með hrárri og unninni kjötvöru, eggjum og mjólk samræmdist ekki samningum um Evrópska efnahagssvæðið. Eftir lagabreytingu er ekki lengur nein frystiskylda fyrir hrátt kjöt og ekki þarf að sækja um sérstakt leyfi til Matvælastofnunar um innflutning á matvælum frá löndum á Evrópska efnahagssvæðinu. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið ásamt Matvælastofnun bjó til aðgerðaráætlun í kjölfar niðurstöðu dómstóla í þeim tilgangi að draga úr líkum á því að sýkingarhætta fyrir neytendur myndi aukast með nýjum reglum. Þingsáætlun um slíka áætlun, um matvælaöryggi og vernd búfjár- stofna, var síðan samþykkt á Alþingi í júní á þessu ári. Strangar vaktanir í landsáætlun Brigitte Brugger, sem einnig er sér- greinadýralæknir hjá Matvælastofnun, fór yfir kampýlóbakter- og salmon- ellusmit í kjúklingum á Íslandi og í Evrópu, en þessar bakteríur eru algengastar í kjúklingakjöti. Hún fór yfir eftirlitsáætlanir á Íslandi og Evrópu, þar sem fram kom að Ísland og Noregur væru einu Evrópulöndin sem bæði vöktuðu og gripu til að- gerða þegar vart yrði við kampýló- baktersmit í kjúklingaeldishópum. Kjötið úr þeim hópum væri fryst. Kampýlóbaktersmit er víða mjög al- gengt í hráu kjúklingakjöti og hefur verið mest sunnar í Evrópu. Með nýjum innflutningsreglum muni Ísland taka upp breytt eftirlit með smitmagni kampýlóbakter við slátrun hér á landi. Brigitte sagði að eftirlit með salmonellusmiti í alifuglarækt væri einnig mun meira hér á landi og gripið sé til tafarlausra aðgerða þegar slíkar sýkingar kæmu upp. Eldishópum ali- fugla væri fargað og sláturhópar strax innkallaðir. Það væri í landsáætlun að vera með strangar vaktanir með það að markmiði að tíðni smita væri undir einu prósenti í allri frumframleiðslu og við slátrun alifugla. Það væri í raun skilyrði þess að Ísland gæti krafist viðbótartrygginga vegna salmonellu, fyrir innflutningi. Hún sagði til marks um góða stöðu Íslands að hér hefði aldrei greinst afbrigðið Salmonella Enteritidis í varphænum og ekki sé vitað um hóp- sýkingar vegna salmonellu í eggjum síðustu áratugi. Svínaræktin áhættuþáttur Vigdís talaði stuttlega um salmonellu í tengslum við svínarækt á Íslandi og sagði að litið væri á alla svína- ræktina sem hugsanlegan áhættuþátt. Staðan hér á landi væri hins vegar nokkuð góð og með strangri vöktun við slátrun sé dregið verulega úr smit- hættu í kjöti, auk þess sem hægt sé að grípa til aðgerða áður en varan er komin á markað. Mælingar skorti hins vegar mjög í allri Evrópu að þessu leyti þegar kemur að öðrum búgreinum en ali- fuglaeldi. Uppruni kjöts og sýklalyfjaónæmi Þær ræddu einnig um sýklalyfja- ónæmisvandann í Evrópu. Þar kom fram að mikilvægt væri fyrir kjötinn- flytjendur að hafa í huga hvar sýkla- lyfjaónæmi væri algengast þegar þeir keyptu inn kjöt til innflutnings, vegna þess hversu vandinn væri víða orðinn alvarlegur. Svava Liv Edgarsdóttir, fagsviðs- stjóri hjá Matvælastofnun, kynnti nýjar reglur um vöktun á kampýló- bakter í alifuglakjöti. Hún sagði að um leið og svokallað leyfisveitinga- kerfi Matvælastofnunar legðist niður, færðist ábyrgðin yfir á innflutnings- aðilana sjálfa. Opinber vöktun verði þó með salmonellu í innfluttum kjöt- afurðum og eggjum og kampýlóbakt- er í innfluttu alifuglakjöti. Sérreglur um kampýlóbakter í ófrosnu alifuglakjöti Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið hefur unnið að sérreglum um kampýlóbakter í ófrosnu alifuglakjöti þar sem tilgangurinn er að koma í veg fyrir að fólk sýkist og draga úr líkum á að kampýlóbakter-mengað kjöt berist til landsins. Meiri líkur eru á smiti í ófrosnu kjöti sem er framleitt í löndum þar sem smit í kjúklingahópum er algengt, því með frystingu fækkar kampýlóbakter bakteríum verulega. Til að mega setja ferskt ófrosið kjöt á markað verða innflutningsaðilar að krefjast niður- staðna greininga áður en vöru er dreift á markað þar sem staðfest er að kampýlóbakter hafi ekki greinst í kjötinu. Viðbótartryggingar fyrir salmonellu Héðinn Friðjónsson, sérfræðingur hjá Matvælastofnun, greindi frá reglum sem Ísland var heimilt að setja vegna viðbótartrygginga fyrir salmonellu í kjöti og eggjum. Hann sagði að reglurnar eigi eingöngu við um ferskt kjöt, það sem ekki hafi fengið aðra meðhöndlun en kælingu. Í stuttu máli felast þær í því að fyrir ferskt alifugla-, nauta- og svínakjöt þarf að fylgja viðskiptaskjal frá sendanda afurðanna þar sem allar uppruna- og rekjanleikjaupplýs- ingar er að finna – og staðfesting á neikvæðum niðurstöðum salmon- ellugreininga. Komi afurðirnar frá landi sem er með sambærilegar viðbótartryggingar, eins og Svíþjóð, Finnlandi eða Noregi, þarf ekki stað- festingu á þessu. Tíðni eftirlits tekur mið af áhættu og frammistöðu Loks flutti Dóra S. Gunnarsdóttir erindi um eftirlit, þvingunarúrræði og viðurlög varðandi nýjar reglur um þennan innflutning. Hún áréttaði að ábyrgð yrði hjá innflutningsaðilum en eftirlitið hjá opinberum aðilum, sem felst í skoðun skjala, sýnatökum til sannprófunar á niðurstöðum grein- inga og sýnatökum til sannprófunar á öryggi kjöts. Matvælastofnun teld- ist þannig eftirlitsaðili ef innflutn- ingsaðilinn er matvælafyrirtæki, en heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga ef innflutningsaðilinn er heildsali eða dreifingaraðili. Tíðni eftirlits tekur mið af áhættu og frammistöðu inn- flutningsaðila. Ýmis þvingunarúrræði eru heimil ef ekki er rétt staðið að málum við innflutning. Hægt er að taka vöru af markaði, stöðva dreifingu og innkalla frá neytendum. Við ítrekuð brot er hægt að stöðva starfsemi að hluta til eða öllu leyti. Auk þess sem hægt er að beita dagsektum til að knýja á um úrbætur. Í Matvælalögum sem voru innleidd í sumar eru heimildir til stjórnvaldssekta varðandi brot gegn ákvæðum um kampýlóbakter og taka þær mið af alvarleika brots; en þær geta verið á bilinu 25 þúsund krónur til 25 milljóna króna. Dóra sagði að í aðgerðaráætlun stjórnvalda væri kveðið á um aukið eftirlit fjóra fyrstu mánuðina eftir að nýju reglurnar hafa tekið gildi. Þetta verði mótunartímabil til að slípa til aðferðir og þjálfa starfsmenn. /smh www.gjofsemgefur.is PIPA R\TBW A • SÍA • 133567 undir tré á Íslandi GEFÐU jólapakka Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis. Vigdís Tryggvadóttir á fræðslufundi Matvælastofnunar. Mynd / Matvælastofnun MATVÆLI&MARKAÐSMÁL Opinn fræðslufundur Matvælastofnunar um breytingar á reglum um innflutning á búvöru til landsins: Ábyrgðin hjá innflutningsfyrirtækjunum en eftirlitið hjá opinberum aðilum – Heimilt er að flytja inn ófrosnar búvörur eins og egg frá 1. janúar 2020

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.