Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201924
LÍF&STARF
„Það hefur orðið algjör sprenging
í hvalaskoðun hér hjá okkur síð-
ustu ár, mikil fjölgun, og það er
afar ánægjulegt,“ segir Aðalsteinn
Svan Hjelm, markaðsstjóri hjá
Whales hvalaskoðun á Hauganesi,
sem er elsta hvalaskoðunarfyr-
irtæki landsins. Skipulagðar
hvalaskoðunarferðir hófust frá
Hauganesi árið 1993.
Fáum árum fyrr, eða árið 1989,
fyrir sléttum 30 árum, hófu eigend-
ur Whales að bjóða upp á ferðir
á sjóstöng frá Hauganesi, en þær
lögðu grunninn að því sem síðar
varð. Eigendur félagsins eru nokkrir
heimamenn á Hauganesi.
Hvalaskoðun tók við af sjóstöng
Aðalsteinn segir að sjóstöngin
hafi verið vinsæl og að á þeim tíma
hafi hrefnur og hnísur verið mjög
áberandi á því svæði sem siglt var
um. Þær hafi vakið verðskuldaða
eftirtekt og á stundum hafi ferða-
langar sýnt þeim meiri áhuga en
sjóstönginni. „Þessi mikli áhugi
gestanna á að horfa á hvalina leika
listir sínar í námunda við bátana varð
til þess að menn fóru að velta fyrir
sér hvort grundvöllur væri fyrir því
að bjóða upp á þannig ferðir, sleppa
sjóstönginni og skoða bara hvalina.
Það varð úr að ferðir af því tagi voru
boðnar ferðalöngum fyrst árið 1993
og sýndi sig fljótt að fyrir því var
grundvöllur,“ segir hann. „Eftirspurn
var fyrir hendi og hefur aukist eftir
því sem árin líða.“
Whales gerir út tvo eikarbáta í
hvalaskoðun sinni, Níels Jónsson
EA-106 og Whales EA-200, báðir
klassískir íslenskir eikarbátar sem
þykja stöðugir og þægilegir. Níels
Jónsson er 30 tonna bátur, smíðað-
ur árið 1974, en Whales er nokkru
eldri, smíðaður 1954 og hann er 50
tonn að stærð.
Allar ferðir kolefnisjafnaðar
„Í fyrrasumar sáum við hvali í öllum
okkar ferðum, hnúfubaka, hrefnur,
hnísur, háhyrninga og steypireiðar.
Og það er frekar fágætt að hvalirnir
voru að meðaltali í um 18 mínútna
fjarlægð frá Hauganesi, héðan er því
afar stutt að fara til að skoða hvali
og gestir okkar kunna svo sannarlega
vel að meta það að svo stutt þurfi að
sigla til að berja þessar tignarlegu
skepnur augum,“ segir Aðalsteinn.
Hann bætir við að bátarnir séu stöð-
ugir og að ekki þurfi að sigla út á
ballarhaf til að sjá hvali, þeir eru
innan fjarðar og því afar sjaldgæft
að fólk finni fyrir sjóveiki. Það skýri
ef til vill að hluta til vinsældir þess
að fara í hvalaskoðun frá Hauganesi.
Allar ferðir Whales á Hauganesi
eru kolefnisjafnaðar, fyrirtækið
gróðursetur tré fyrir hverja ferð
til að vega upp á móti kolefnisút-
blæstri ferðarinnar, en Aðalsteinn
segir að auk þess sé
öll olía sem notuð
er blönduð með líf-
dísil.
Föst hádegisferð
alla daga í vetur
„Það hefur verið
vaxandi aðsókn hjá
okkur með árunum
og nú í vetur ætlum
við í því ljósi að
bjóða upp á eina
fasta ferð kl. 12 á
hádegi á hverjum
degi og munum meta
hvernig til tekst þegar
á það fyrirkomulag er komin einhver
reynsla,“ segir hann. „Þessar föstu
hádegisferðir okkar fara vel af stað
og virðist henta þeim gestum sem
dvelja á svæðinu vel. Margir þeirra
gista ýmist á Akureyri, Siglufirði eða
nærsveitum og eru um það bil hálf-
tíma að skjótast frá þeim stöðum og
á Hauganes. Ástæðan fyrir þessari
tímasetningu er þó kannski fyrst og
fremst sú að við erum að kreista eins
mikið úr þeirri litlu birtu sem við
höfum hér yfir myrkasta skamm-
degið í vetur.“
Um 25 þúsund ferðamenn
koma við á Hauganesi í ár
Hann bendir á að Hauganes sé vel
staðsett, stutt sé fyrir gesti að koma
bæði frá Akureyri og Siglufirði,
en á báðum stöðum sé gjarnan
mikið um ferðamenn. Þá eru hvala-
skoðunarferðir einnig vinsælar meðal
starfsmanna- og vinahópa af ýmsu
tagi og tilvaldar til að gera sér daga-
mun.
Aðalsteinn segir að umgjörðin
á Hauganesi hafi tekið miklum
breytingum hin síðari ár, mun fleiri
leggi þangað leið sína en áður var.
Um 100 manns búa í þorpinu en
gera megi ráð fyrir að um 25 þús-
und ferðamenn leggi þangað leið
sína nú í ár. Ferðaþjónustan hafi að
hluta til tekið við af sjávarútvegi
sem í eina tíð var aðalatvinnuvegur
íbúanna. Skipti þar verulegu máli sú
uppbygging sem verið hefur undan-
farin misseri í Sandvíkurfjöru þar
sem gestum býðst að baða sig í heit-
um pottum og þá er rekin vinsæll
veitingastaður á Hauganesi og eins
er þar gott tjaldsvæði.
„Það hefur verið vaxandi
ásókn hjá okkur, eiginlega algjör
sprenging,“ segir Aðalsteinn. Árið
2015 fóru um 4 þúsund manns í
hvalaskoðun með fyrirtækinu, en
þeir voru 17 þúsund í fyrra. Hann
telur að þeir verði jafnvel fleiri nú
í ár. „Mér sýnist allt stefna í að við
toppum fyrra ár,“ segir hann.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Elsta hvalaskoðunarfyrirtæki landsins er á Hauganesi:
Algjör sprenging í aðsókn
– Sáu hvali í öllum ferðum í fyrrasumar
Whales á Hauganesi er elsta hvalaskoðunarfyrirtæki á landinu, en starfsemin hófst árið 1993. Áður hafði verið boðið upp á sjóstöng. Umgjörðin á Hauganesi
hefur tekið miklum breytingum hin síðari ár. Um 100 manns búa í þorpinu en um 25 þúsund ferðamenn leggja þangað leið sína nú í ár. Myndir / MÞÞ
Algjör sprenging hefur orðið í hvalaskoðun hjá Whales á Hauganesi, gestir voru um 4 þúsund árið 2015 en 17
þúsund í fyrra og stefnir í að sú tala verði toppuð í ár.
Whales gerir út tvo eikarbáta í hvalaskoðun sinni, Whales EA og Níels
Jónsson EA.
Allar ferðir Whales á Hauganesi eru kolefnisjafnaðar,
fyrirtækið gróðursetur tré fyrir hverja ferð til að vega
upp á móti kolefnisútblæstri ferðarinnar.