Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 55
Frístunda- og atvinnufatnaður
frá REGATTA
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
RAFÓS
rafverktakar
e
h
f
Tökum að okkur öll verkefni sem við kemur raflögnum,
hvort sem er viðhald, viðbætur eða nýlagnir fyrir
fyrirtæki, iðnað eða almennan notanda.
Rafós er löggiltur rafverktaki með reynslu í óháðri
ráðgjöf og uppsetningu hleðslustöðva. Setjum upp allar
gerðir hleðslustöðva fyrir einstaklinga, sameignir og
fyrirtæki.
Ef búnaður er ekki fyrir hendi, þá veitum við ráðgjöf við
val á búnaði miðað við þarfir.
RAFÓS
rafverktakar
e
h
f
Freyjunesi 10, 603 Akureyri
Sími: 777 1802
Email: rafos@rafos.is
Erum einnig á facebook
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KEÐJUR OG
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI
GOTT ÚRVAL
Överaasen DLS-270
Skekkjanleg kasttönn fyrir dráttarvél
og hjólaskóflu
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | www.wendel.is
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is
LESENDABÁS
Skuggalega langir biðlistar
Ég hef um skeið notið þjónustu
heilbrigðisstarfsfólks á höfuð-
borgarsvæðinu og veit hversu
mikið álag er á því. Biðlistar
myndast og eru skuggalega langir
á svo til öllum sviðum og bráða-
móttaka full út á gang öðru hvoru.
Tilskipun kom frá ESB um að
hver sá er tæki að sér vörslu og
umsýslu dýra skuli fara á námskeið
svo hægt sé að meta hvort viðkom-
andi sé andlega og líkamlega fær um
að annast verkið. Ég veit að ef bóndi
léti vera svo þröngt á bústofni þeim
er hann bæri vörsluábyrgð á væri
honum snarlega settur stóllinn fyrir
dyrnar og gert að bæta úr snarlega
eða hætta. Núverandi heilbrigðisráð-
herra ber ekki einn ábyrgð á núver-
andi ástandi því fyrirrennarar hans
söfnuðu á biðlista.
Fjármálaráðherra viðurkenndi í
útvarpsviðtali að hafa átt aflands-
reikning en aldrei notað hann. Til
hvers að fá sér eitthvað og nota ekki?
Fjármálaráðherra þyrfti að vera vel
að sér í fjárþörf heilbrigðiskerfisins
svo honum sé ljóst að það eru tómir
reikningar sem þarf að leggja inn
á eftir langar vaktir bæði daga og
nætur. Sumir undrast að hjúkrunar-
fólk sæki í önnur betur launuð störf,
ekki ég.
Nú blasir það við þeim sem vilja
sjá og vilja vita að öryrkjar og aldr-
aðir eru illa haldnir ef þeir verða
að treysta á ríkisframfæri. Á þessu
ástandi bera alþingismenn fyrr og
nú ábyrgð. Enginn hefur tapað emb-
ætti þó skjólstæðingarnir séu lítið
betur haldnir en þeir verst höldnu
er MAST lítur eftir.
Umgengnin um landið
Allir vilja fara vel með landið, það
er vel en þegar kemur að því að
laga troðið og illa farið svæði þá
er gjaldtaka takmörkuð svo erfitt er
að bæta úr skaða. Ferðamenn njóta
íslenskrar næringar er þeir dvelja
hér og þar af leiðandi þurfa þeir að
losa sig við það sem líkaminn nýtir
ekki. Umhverfisráðherra gekk á Ok
og á þeirri leið var örugglega hreinna
en er meðfram þeim veggjum og
skjólbeltum sem myndir hafa birst
af og sýna afgang þann sem ferða-
mennirnir skildu eftir.
Ég hef kíkt inn í náðhús við þjóð-
veg 1 og vegna þess að mér er ekki
klígjugjarnt slapp ég nokkuð vel.
Þessi hús þyrfti að þjónusta betur.
Óværa berst með innflutningi
Ýmisleg óværa kemur til landsins
t.d. í mold í blómapottum og með
bifreiðum sem ekið er í skip í út-
löndum og úr skipi hér og beint á
fjöll. Ástralir og Ný-sjálendingar
hreinsa öll ökutæki er koma til þeirra.
Hér er í besta lagi gáð að eiturlyfjum.
Plöntur dreifa sér hér á landi
sjálfar með bifreiðum samanber
kerfillinn sem er kominn lang-
leiðina á Þingvöll. Ég er ekki viss
um að hægt sé að eyða honum í þjóð-
garðinum með því að setja nokkur
svín í garðinn. Umhverfisráðherra
veit áreiðanlega hvað ofbeit er,
það er þegar gras er bitið hraðar
en það sprettur. Ég hef grun um að
friðlandið á Hornströndum sé ofnýtt.
Framkvæmdastjóri Refasetursins
taldi í útvarpsviðtali að yrðlingar
hefðu misfarist vegna ónæðis af
myndatöku við greni og læðan þar
af leiðandi orðið mismjalta og fengið
júgurbólgu og mun læðan hafa misst
aftur í vor. Ég trúi illa því að mynda-
taka á dálitlu færi raski ró grenlægju
að ráði. Ég hef eftir starfsmanni
Landhelgisgæslunnar að þegar þeir
voru að þjónusta vitana þarna norð-
ur frá hafi tófa nærri því náð kaffi-
brauðinu þeirra.
Kolefnisspor af innflutningi
Kolefnissporin eru mörg og sum
óþörf. Að flytja til landsins ísmola
kostar nokkur spor, að flytja inn græn-
meti sem auðvelt er að rækta hér með
rafmagni og heitu vatni kostar ennþá
fleiri spor og svo í viðbót margnotað
endurunnið vatn í gosrykkjum t.d. frá
Bretlandi (Costco). Það hefur verið
lagður á skattur af minna tilefni.
Umhverfisráðherra hlýtur að
sækjast eftir að græða landið með
öllu sem til fellur til uppgræðslu
án friðunar, t.d. ónýtar heyrúllur.
Bændur komast ekki yfir að vinna
úr þeim alls staðar vegna fjarlægðar
frá stöðum þar sem þörfin er mest.
Raunþekking gefur skilning á því
hvernig lífsbaráttan er í raun og veru.
Fyrrverandi landbúnaðarráðherra hélt
ræðu á aðalfundi L.S. og hældi borg-
arbörnunum starfsmönnum sínum
hversu góðir starfsmenn þeir væru.
Sjálfsagt hlýðnir en þekkingin tak-
mörkuð því að ríkisjarðir sem fóru úr
ábúð átti ekki að leigja aftur fyrr en á
næsta ári. Einnig kærði hún eiganda
hests er geltur hafði verið fyrir ári,
fyrir að sýna merunum hennar dóna-
skap. Hún hefur umgengist hross
nokkuð lengi en sá þó ekki að hest-
inn vantaði töluvert upp á frjósemi.
Núverandi landbúnaðarráð-
herra hefur reynslu úr heilbrigðis-
ráðuneytinu og hlýtur því að hafa
góðan skilning á þörf góðra varnar-
girðinga svo sauðfjársjúkdómar
dreifist ekki um allt ef upp kæmu
og ef t.d. nýir sjúkdómar bærust
hingað. Landbúnaðarráðherra ætti
að fá umhverfisráðherra í lið með
sér til að taka upp gamlar girðingar
meðfram núverandi varnarlínum og
gamlar varnarlínur sem eru mönnum
til leiðinda og skepnum hættulegar.
Ég hætti hér að ausa úr skálum
mínum en vona að skvetturnar úr
þeim komi einhverjum til að hugsa
um sín störf og annarra. Ég vona að
þeir sem ráða leiti sér raunþekkingar
sem víðast en gleypi ekki það sem
auðveldast er að gleypa frá þeim sem
hæst láta.
Gunnar Þórisson
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 19. desember