Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201954 BÆKUR&MENNING Sigurður frá Balaskarði heimsækir Hornstrandir: Mér datt ekki í hug að hræðast Ævisaga Sigurðar Ingjalds sonar (1845–1933) er hetjusaga alþýðumanns þar sem segir frá miklum mannhættum og erfið- leikum til sjós og lands. Þar njóta sín vel tilþrif og frásagnargleði höfundar sem kallaður hefur verið Münchhausen Íslands. Sigurður lýsir hversdags- legum atburðum sinn- ar tíðar af nákvæmni naív istans sem slær hér einstakan tón fegurðar og tærleika í skrifum sínum. Í seinni hluta bókarinn- ar er höfundur kominn til Vesturheims. Lesandinn fer þar með Sigurði bæ af bæ og kynnist þjóð sem ferðast með „treini“ eða „kar“ en ber nöfn eins og Borgfjörð, Dalmann, Suðfjörð og Goodmann. Sjálfur veiðir Sigurður „rabita“ í skóginum en „kattfiska“ í vötnum. Bændablaðið gríp- ur hér ofan í frásögn Sigurðar af heimsókn að bænum Horni á Hornströndum en sögu- hetjan er þá háseti á þilskipi. Með flösku af víni að gefa karli „Nú fórum við þrír í land, ég og tveir aðrir, maðurinn sem var málkunn- ugur karli, var einn. Skipstjórinn fékk okkur flösku af víni til að gefa karli. Við rerum í land og lentum í stórri vör rétt fyrir neðan bæinn og var hallandi brekka upp að bænum og sáum við þrjá eða fjóra fiskihjalla fulla af allslags fiskæti, fiski, há- karli, lúðu, flökum, höfuðkinnum, rafabeltum. Við vorum undrandi að sjá þvílíka björg í einum stað, — en þegar við komum heim á hlaðið urðum við ekki síður undrandi að sjá björgina þar. Þar voru fjölda margir pokar af alls konar kornmat, og svartfugl, þau ósköp, okkur datt í hug að fólkið þyrfti ekki að vera svangt. Ég hefi aldrei séð þvílíkt bjargræði saman komið. Gerðum við boð eftir Stíg bónda, kom hann, en við heilsuð- um honum kurteislega, og tók hann því vel. Þegar ég virti þennan mann fyrir mér, sá ég að ekki hafði verið skrökvað að hann væri mikilmenni, hann var hár en leyndi hæðinni, hann var svo gildur og afar herðabreiður. Ég hafði heyrt að hann væri mjög fríður sýnum, en ekki fannst mér hann vera það nema í meðal lagi, enda var hann orðinn rosk- inn. Hann spurði okkur að heiti og hvernig stæði á ferðum okkar, og sögðum við honum það allt greini- lega, sögðumst hafa komið að gamni okkar að sjá hann, sagði hann að það væri ekki svo nýtt að menn kæmu að sjá gamla Stíg. [. . . ] Sigið í Hornbjarg Við sögðum skipstjóra og öllum að karl vildi lofa okkur að síga og hjálpa allt sem hann gæti til þess og yrðum við að fara í land snemma daginn eftir. Allir urðu glaðir yfir þessu, því alla langaði í egg og til að sjá hvernig þetta væri allt lagað. Við vöknuðum snemma um morguninn og fórum í land; þegar í land kom, var Stígur kominn á fætur og tók vel á móti okkur, og kallaði á marga menn. [. . . ] — Við vorum allir undr- andi að sjá þennan óskapa fuglafjölda og voru þó sumir af okkur búnir að vera við Drangey, en þeir sögðu, að það væri enginn fugl þar hjá þessum ósköpum. Guð sé lof festi! Þegar við vorum búnir að virða þetta fyrir okkur, sögðu Strandamenn að við skyldum gera bæn okkar, og lögðust allir flatir á bjargsbrúnina og báðust fyrir í hljóði og signdi svo hver maður sig og festarnar og buðu hver öðrum góðar stundir og var sagt: „Guði sé lof festi“. Þetta sögðu allir. Svo fóru sigmenn að binda sig og útbúa; þegar það var búið, fór hver flokkur út af fyrir sig, bæði skipsmennirnir, og þeir sem ég var með. Þeir voru 10, og hét Jónatan þeirra sigmaður, og átti heima í Furufirði á Ströndum. Var það besti sigmaður og ákafamaður mikill. Þetta fólk var allt aðkomandi, og tvær stúlkur í þeim hóp. [. . . ] Mikil er hýran ykkar! Þegar sá tími var kominn að fólkið vildi borða miðdegisverð,var sig- maður dreginn upp og farið að borða. Þá gaf það mér nógan mat, egg, flatbrauð og smjör, því mig minnir að ég hefði ekki mat með mér. Þá spurði Jónatan mig um margt, og hvað „hýran“ (kaupið) okkar væri mikil á skipinu. „Já mikil er „hýran“ ykkar svo að við höfum ekki heyrt annað eins,“ sögðu þeir. Margt var það sem þetta fólk spurði mig um, og gat ég sagt því frá mörgu, sem það vissi ekki um, og þótti því vænt um og sagðist hafa mikla skemmtun af mér. Líka hafði ég gaman af mál- færinu þess. Mér fannst það svo skrítið. Mér þótti þessi dagur skemmti- legur, það var glaða sólskin og hiti, og gekk vel að fá eggin, því sig- maðurinn var svo góður. Alltaf var fært sig suður eftir bjarginu, það sagði að eggjatekjan væri með sein- asta móti, því fuglinn hefði orpið svo seint af því vorið hefði verið kalt. [. . . ] Mér datt ekki í hug að hræðast Kom þá skipstjóri að máli við mig og biður mig að fara í land undir bjargið og skjóta nokkra fugla, því ég hafði byssu mína með mér og skotfæri, hafði hana þegar ég gat. Ég hafði sagt þeim að ég kynni að skjóta en þeir höfðu enga byssu. Ég sagðist skyldi reyna þetta og var settur út skipsbáturinn og sagði hann tveimur mönnum að róa með mig í land, og sagði að ég ætti að sitja aftur á en þeir róa. Ég hlóð byssu mína áður en við fórum, svo lögðum við af stað. Skipið kastaði akkeri, svo reru þeir. En ég sat aftur á og heyrðum við að þeir á skipinu hlógu svo mikið að okkur; ég þóttist vita að þeir væru að hlæja að mér, héldu að ég væri ekki mikil skytta. Nú reru þeir eins og ég sagði þeim, og voru stórir hópar af fugli á sjónum en vont að skjóta fyrir kvikunni, ég sagði þeim að stansa, sagðist ætla að reyna að skjóta, og skaut og lágu þrír fuglar. Við tókum þá og þá hættu þeir á skipinu að hlæja. Sagði ég þeim að róa upp undir bjargið og var vont að lenda fyrir brimi, ég lét annan manninn vera í bátnum skammt frá landi en við fórum fast upp að bjarginu, hlóð ég byssuna og skaut á hillu skammt frá, sem var full af fugli eins og allar hillur voru. Ég hafði nokkra í skoti, sem duttu niður. Ég hlóð, en á meðan ég var að hlaða fylltist hillan aftur, því allir flugu við skotið, en þegar þeir komu aftur, veltu þeir þeim dauðu ofan. Alltaf var maðurinn, sem með mér var, á nálum, hann var svo hræddur við hrun úr bjarginu, og að þarna kæmi steinn, við skyldum vara okkur. Ég sagði það væri þýðingarlaust að láta svona, því ef það ætti að hitta okkur steinn þá gerði hann það, hvernig sem við reyndum að forða okkur. Mér datt ekki í hug að hræðast.“ Sagan öll í einu bindi Bókin kom upphaflega út frá hendi höfundar í þremur bindum á árunum frá 1913 til 1933. Árið 1957 voru fyrstu tvö bindin endurprentuð og hafði Freysteinn Gunnarsson umsjón með útgáfunni. Sagan öll er nú í fyrsta sinn prentuð í einni bók en skrif þessi hafa í meira en öld hlotið afburðadóma. Útgefandi er Sæmundur. /VHSigurður Ingjaldsson. Íbúar í þéttbýli eiga því að venjast að ef hringt er í 112 í neyðartilvikum eru viðbragðs- aðilar á borð við slökkvilið og lögreglu mættir til aðstoðar eftir fimm til sjö mínútur. Ef eldur kemur upp á heimilum eru við- bragðsaðilar snöggir á staðinn og yfirleitt gengur vel að ráða niðurlögum elds sem ekki hefur náð að breiðast út að ráði. Þessu er ekki að heilsa í dreifbýli. Þar er viðbragðstími fremur mæld- ur í stundarfjórðungum en mín- útum. Því er afar mikilvægt að fólk sem býr í dreifbýli hugi vel að eldvörnum heimilisins og geri sér grein fyrir hvernig hægt er að undirbúa sem best komu slökkviliðs á neyðarstundu. Reykskynjarar Í aðalatriðum gilda sömu lögmál um eldvarnabúnað á heimilum til sveita og í þéttbýli. Mikilvægast er að tryggja að íbúar fái viðvörun ef eldur kemur upp og allir komist út heilir á húfi. Eldvarnabandalagið mælir með því að reykskynjarar séu settir upp í öllum rýmum. Þá á að minnsta kosti að setja upp framan við eða í hverri svefnálmu og á hverri hæð á heimilinu. Í langan gang skal setja skynjara við báða enda. Sömu reglur um notkun og staðsetningu reykskynjara gilda fyrir sumarhús. Sérstaklega ber að huga að því að þeir sem sofa á svefnlofti fái viðvörun svo að þeir geti yfirgefið húsið ef eldur kemur upp. Einnig þarf að gæta þess að þeir hafi tvær flóttaleiðir af loftinu. Yfirleitt þarf að skipta um rafhlöður í reykskynjurum ár hvert og mælt er með því að reykskynjarar séu prófaðir eigi sjaldnar en árlega, helst oftar. Flóttaleiðir og slökkvibúnaður Nauðsynlegt er að fjölskyldan geri áætlun um hvernig yfirgefa á heimilið ef eldur kemur upp því slík áætlun getur ráðið úrslitum um hvort allir komast heilir út. Mikilvægt er að allir á heimil- inu þekki neyðarnúmerið, 112. Að minnsta kosti tvær greiðar flóttaleiðir eiga að vera út úr húsinu og má tryggja það með neyðarstiga þar sem þörf krefur. Ráðlegt er að ákveða fyrirfram stað þar sem allir hittast þegar út er komið svo hægt verði að staðfesta sem fyrst að allir hafi komist út. Slökkvitæki á að vera við helstu flóttaleið. Slökkva má minni háttar eld með slökkvitæki en enginn á þó að setja sig í hættu við slökkvistarf. Leiðbeiningar um viðhald og endurnýjun eiga að vera á tækinu og ber að fylgja þeim. Matseld er mjög algeng orsök eldsvoða á heimilum og er eldvarnateppi því ómissandi hluti af eldhúsinu. Það á að hafa á vel sýnilegum og aðgengilegum stað í eldhúsi. Skvettið alls ekki vatni á eld í olíu. Það veldur sprengingu. Vatnstökustaðir Þegar slökkvilið kemur á eld- stað í þéttbýli er yfirleitt hægt að treysta því að það hafi góðan aðgang að slökkvivatni. Sú er ekki endilega raunin í dreifbýli. Því er mikilvægt að þeir sem búa í dreifbýli þekki alla mögulega vatnstökustaði sem nothæfir eru til dælingar. Ef enginn nothæfur vatnstökustaður er fyrir hendi þarf að vera á hreinu hvar styst er að fara til að ná í vatn á tankbíl. Víða er hægt að útbúa vatnstökustað, til dæmis í bæjarlæk. Vatnstökustaðir nýtast að sjálfsögðu einnig vel ef eldur kemur upp í útihúsum. Um leið og við hvetjum fólk til að hafa nauðsynlegan eldvarna- búnað á heimilinu og gera ráð- stafanir vegna slökkvistarfs leggjum við ekki síður áherslu á mikilvægi þess að fara varlega í daglegri umgengni á heimilinu. Þannig getum við dregið verulega úr líkum á því að eldur komi upp. Það er fyrir mestu. Björn Karlson, formaður stjórnar Eldvarna­ bandalagsins og forstjóri Mannvirkjastofnunar Garðar H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Eldvarnabandalagsins Í dreifbýli er viðbragðstími fremur mældur í stundarfjórðungum en mínútum. Því er afar mikilvægt að fólk sem býr í dreifbýli hugi vel að eldvörnum heimilisins. Björn Karlsson. Garðar H. Guðjónsson. Eldvarnir á heimilum í dreifbýli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.