Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201916
Íslendingar stunda útgerð fiski
skipa í að minnsta kosti þrett
án löndum auk Íslands. Afla
verðmætið var áætlað yfir 100
milljarðar króna fyrir fjórum
árum.
Íslenskir útgerðarmenn teygja
anga sína víða um heiminn. Í
erindi sem Kristján Hjaltason
hélt á Sjávarútvegsráðstefnunni
í Reykjavík árið 2014 kom fram
að Íslendingar kæmu að útgerð
nálægt 65 fiskiskipa erlendis ýmist
með því að eiga fyrirtækin að öllu
leyti eða að hluta. Flest þessara
skipa eru togarar eða uppsjávar-
skip en þarna eru líka smærri bátar.
Lausleg áætlun Kristjáns benti til að
þessi skip veiddu yfir 500 þúsund
tonn á ári, eða sem svaraði nálægt
helmingi af ársafla íslenskra skipa.
Aflaverðmætið sagði hann að gæti
numið yfir 100 milljörðum króna.
Nýrra mat liggur ekki fyrir. Löndin
sem um ræðir eru Þýskaland,
Pólland, Bretland, Frakkland,
Spánn, Eistland, Noregur, Færeyjar,
Grænland, Kanada, Síle, Máritanía
og Namibía.
Samherji langstærstur
Samherji er langumsvifamesta fyr-
irtækið á erlendri grund. Langt er
síðan Samherji haslaði sér völl í
útgerð í Þýskalandi, eða árið 1995.
Dótturfyrirtækið DFFU í Cuxhaven,
sem er að fullu í eigu Samherja, á tvo
nýsmíðaða frystitogara, Cuxhaven
og Berlin. Þá tengist Samherji sjáv-
arútvegi í Póllandi með eignarhaldi
þýska dótturfyrirtækisins DFFU í
pólska útgerðarfyrirtækinu Atlantex
en það fyrirtæki gerir út þrjá togara
samkvæmt upplýsingum á heima-
síðu Samherja. Breska útgerðarfyr-
irtækið Onward Fishing Company
með aðsetur í Aberdeen í Skotlandi
hefur verið í eigu Samherja frá árinu
1996 og gerir út einn togara. Félagið
á auk þess helmingshlut, á móti hol-
lenskri útgerð, í breska útgerðarfé-
laginu UK Fisheries sem gerir út
tvo togara og er annar þeirra stór og
glæsilegur frystitogari sem afhentur
var nýsmíðaður á síðasta ári. UK
Fisheries keypti sjávarútvegsfyrir-
tæki í Frakklandi og á Spáni nálægt
áramótunum 20210/2011 og gera
þau félög út nokkur skip.
Færeyjar, Noregur og Kanada
Auk þess á Samherji hlut í út-
gerðinni Framherja í Færeyjum sem
hann tók þátt í að stofna árið 1994
ásamt Færeyingum. Framherji er
eitt af stærstu útgerðarfélögunum
í Færeyjum og gerir út þrjá togara.
Enn er svo að nefna að dótturfélög
Samherja í Þýskalandi keyptu árið
2014 um 20% hlut í Nergaard, einu
af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum
Noregs. Við það tækifæri kom fram
að félagið gerði m.a. út fimm togara
og væri með 440 manns í vinnu.
Loks má svo nefna að Samherji
á hlut í sjávarútvegsfyrirtæki í
Kanada sem gerir út frystitogarann
Newfoundland Pioneer. Þá eru ótalin
umsvif Samherja við Afríkustrendur
sem nánar verður vikið að hér á eftir.
Fram hefur komið að meira en helm-
ingur af tekjum Samherja komi frá
erlendri starfsemi félagsins.
Eistland, Grænland og Síle
Af umsvifum annarra íslenskra
útgerða erlendis má nefna að
fyrirtækið Reyktal sem skráð er
í Eistlandi og Óttar Yngvason
stendur að hefur um árabil gert út
nokkra rækjutogara sem uppruna-
lega veiddu á Flæmingjagrunni við
Kanada en hafa í seinni tíð verið
mikið í Barentshafi og við Grænland
eftir að dró úr rækjuveiði á fyrst-
nefnda svæðinu.
Íslendingar koma nokkuð við
sögu í grænlenskum sjávarút-
vegi. Þar er fyrst og fremst um
að ræða Brim, Síldarvinnsluna
og Ísfélag Vestmannaeyja. Brim
á hlut í Arctic Prime Productions
sem rekur fiskvinnslur á þremur
stöðum á Grænlandi, í Quaqortoq,
Nanortaliq og Kummiut, og á
ennfremur í útgerðarfélagi sem
gerir út nokkur skip. Þá á Ísfélag
Vestmannaeyja hlut í útgerðinni
Pelagic Greenland á móti stórfyr-
irtækinu Royal Greenland. Þetta
félag gerir út tvö uppsjávarskip,
Tuneq og Tasilaq, sem áður voru
íslensk. Síðast en ekki síst er svo að
nefna útgerðina Polar Pelagic sem
Síldarvinnslan í Neskaupstað á að
þriðjungi á móti Grænlendingum.
Félagið gerir út Polar Amaroq, sem
er eina grænlenska uppsjávarskipið
sem er að veiðum allt árið. Skipið
landar á Íslandi eins og önnur græn-
lensk uppsjávarskip, enda engin
aðstaða á Grænlandi til þess að taka
á móti uppsjávarfiski til bræðslu.
Fleiri Íslendingar hafa reynt fyrir sér
í Grænlandi en ekki allir haft erindi
sem erfiði.
Loks skal svo nefna þátttöku HB
Granda, nú Brims, í sjávarútvegi í
Chile til margra áratuga. Félögin
heita Friosur og Pesca Chile og gera
út samtals átta fiskiskip auk reksturs
á fiskiðjuveri.
Þess má geta að Vísir hf. haslaði
sér völl í sjávarútvegi í Kanada um
tíma og átti tæpan helming í stórfyr-
irtækinu Ocean Choice International
(OCI) en seldi sinn hlut árið 2017.
Þá áttu Finnur B. Harðarson og fleiri
stærstan hlut í kanadíska fyrirtækinu
Nataqnag sem gerði út þrjá togara
við Austur-Kanada en svo mun ekki
vera lengur eftir því sem næst verður
komist.
Veiðar við Afríkustrendur
Íslendingar hafa stundað veiðar
á makríl, hrossamakríl og sardín-
ellu úti fyrir ströndum Marokkó
og Máritaníu í Vestur-Afríku í
rúma tvo áratugi eða frá því að
Sjólaskip hófu þar veiðar árið
1997. Aðrir Íslendingar fylgdu
svo í kjölfarið. Tíu árum síðar, eða
árið 2007, keypti Samherji rekstur
Sjólaskipa, sex verksmiðjuskip og
tvö þjónustuskip, og hóf útgerð
þar syðra. Ári seinna stofnaði einn
Sjólaskipamanna, Haraldur Jónsson,
útgerðina Úthafsskip sem nú gerir
út þrjú verksmiðjuskip við Vestur-
Afríku, sem heita Victoria, Gloria
og Navigator. Þar er einnig togarinn
Sóley sem tveir Íslendingar tengj-
ast, þeir Páll Eyjólfsson skipstjóri
og Jóhann Gunnarsson útgerðar-
stjóri, en aðaleigandinn mun vera
hollenskur eða belgískur. Árið 2013
bárust svo fréttir af því að Samherji
væri í viðræðum við rússnesku út-
gerðina Murmansk Trawl Fleet um
sölu á útgerð Samherja við Afríku
og gekk sú sala eftir. Samherji hætti
þó ekki alveg Afríkuveiðunum því
fyrirtækið hefur veitt við strendur
Namibíu á undanförnum árum eins
og kunnugt er.
Upphaf Namibíuveiða
Þróunarhjálp Íslands við Namibíu
hófst árið 1990 og fólst m.a. í haf-
rannsóknum, sjómannafræðslu og
tæknilegri ráðgjöf ýmiss konar.
Samhliða því kom fram áhugi
heimamanna á því að komið yrði
á laggirnar sjávarútvegsfyrir-
tæki sem sæi fólki fyrir vinnu.
Ráðgjafarfyrirtækið Nýsir tók það
verkefni að sér og til varð sjávarút-
vegsfyrirtækið Seaflower í bænum
Luderitz. Namibíska ríkisfyrirtækið
Fishchor lagði inn í fyrirtækið tvo
spænska togara sem Namibíumenn
höfðu tekið að ólöglegum veiðum
í landhelgi og gert upptæka.
Jafnframt var tekið fé að láni til að
endurbyggja frystihúsið á staðnum.
Íslenskar sjávarafurðir komu inn í
þetta verkefni sem meðeigendur og
söluaðilar á afurðunum auk þess sem
fyrirtækið lagði til togara frá Íslandi.
Þar með voru skipin orðin þrjú.
Nokkur fjöldi Íslendinga réði sig til
starfa hjá fyrirtækinu sem yfirmenn
á skipunum og í fiskvinnslunni og
framkvæmdastjórinn var íslenskur.
Reksturinn gekk vel. Íslendingar
ráku fyrirtækið í tíu ár en í kringum
aldamótin vildu heimamenn taka
alfarið við og keyptu íslensku
meðeigendur sína út. Þar með var
afskiptum Íslendinga af Seaflower
lokið.
Eftirsótt sérþekking
Eins og að framan greinir koma
Íslendingar víða við í sjávarútvegi
utan landsteinanna og er þó hvergi
nærri allt upptalið. Allmargir
Íslendingar standa að smábátaút-
gerð í Norður-Noregi og mjög víða
í heiminum eru íslenskir skipstjórn-
armenn við stjórnvölinn á erlendum
skipum. Sérþekking Íslendinga
á sjávarútvegi er víða eftirsótt og
verður vafalaust áfram.
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Jólin eru á næsta leiti og því
ekki úr vegi að fjalla lítillega
um vinsælustu jólablóm
in. Jólastjörnur eru líklega
þær pottaplöntur sem flestir
tengja við jólin en riddaralilj
ur og jólakaktus fylgja þar
fast á eftir.
Jólastjörnur eru ekki auð-
veldustu plönturnar í ræktun
til að halda lifandi en langt frá
því að vera þær erfiðustu. Jurtin
þrífst best við 12 til 21° C en
endist best við neðri mörkin.
Þegar jólastjarna er keypt skal
láta pakka henni inn og það má
alls ekki geyma þær lengi úti
í köldum bíl, þar sem þær fá
kuldasjokk og því ráðlegt að
fara með þær strax í hús. Best
er að vökva jólastjörnur lítið en
oft og með volgu vatni. Moldin
má aldrei þorna alveg og það má
ekki heldur láta pottinn standa í
vatni. Látið því pottinn standa
í djúpri pottahlíf sem fyllt er í
botninn með vikri. Þannig stend-
ur jólastjarnan ekki í vatni en
nýtur góðs af uppgufun og loft-
raki leikur um hana. Jólastjörnur
þurfa góða birtu og þrífast best í
björtu herbergi eða í austur- eða
vesturglugga.
Jólastjörnur geta valdið
ofnæmi eða ertingu í húð hjá
fólki sem er viðkvæmt fyrir
slíku en plantan er ekki hættulega
eitruð eins og stundum er haldið
fram. Rannsóknir sýna að blöð
jólastjörnunnar geta valdi upp-
köstum sé þeirra neytt í miklum
mæli. Þrátt fyrir þetta er engin
ástæða til að setja hana í jólasal-
atið þar sem hún er sögð mjög
bragðvond.
Jólakaktusar ganga undir
ýmsum heitum eins og haust-,
nóvember-, eða krabbakakt-
us, algengasta heitið er þó að
öllum líkindum jólakaktus.
Sérstaklega þegar hann blómstrar
um jólahátíðina. Jólakaktusinn
er upprunninn á Amasonsvæði
Suður-Ameríku, nánar tiltekið
í Brasilíu, þar sem hann vex
sem ásæta uppi í trjákrónum.
Ólíkt flestum öðrum kaktusum
vex jólakaktusinn því í raka og
skugga. Þetta gerir það að verkum
að hann dafnar best í hálfskugga
og þolir talsvert meiri vökvun en
aðrir kaktusar. Kjörhiti hans er
15 til 20 °C.
Eftir að blómgun lýkur er
gott að hvíla hann á svölum stað
og draga úr vökvun í nokkrar
vikur. Jólakaktusa er hægt að
fá í ýmsum litum, rauða, hvíta-
bleika og lillabláa.
Riddarastjarna eða amaryllis
eins og þessi glæsilega lauk-
planta er oft nefnd er upprunnin
í Suður-Ameríku en hefur
dreifst þaðan sem pottaplanta
vegna þess hversu harðger
og auðveld hún er í ræktun
auk þess að vera blómviljug.
Blómin eru í mörgum litum,
rauð, hvít og bleik, auk þess
sem þau geta verið marglit.
Áður en laukurinn er settur
í mold er gott að láta neðri
hluta hans standa í volgu vatni
í nokkra klukkutíma þar sem
slíkt hraðar rótarmyndun.
Amaryllis-laukar þrífast best
í næringarríkum og vel fram-
ræstum moldarjarðvegi við 15
til 20 °C.
Þegar lauknum er komið
fyrir í potti skal láta helming
til einn þriðja af honum standa
upp úr moldinni en þrýsta henni
þéttingsfast að neðri hlutanum
án þess þó að skemma ræturnar
séu þær farnar að myndast.
Moldin í pottunum skal
alltaf vera rök yfir vaxtartím-
ann en laukurinn þolir nokkurn
þurrk á meðan hann er í hvíld.
/VH
STEKKUR NYTJAR HAFSINS
Lausleg áætlun benti til að þessi skip veiddu yfir 500 þúsund tonn á ári, eða sem svaraði
nálægt helmingi af ársafla íslenskra skipa.
Íslendingar umsvifamiklir
í útgerð erlendis
Samherji er langumsvifamesta íslenska fyrirtækið á erlendri grund. Á myndinni eru Cuxhaven og Berlin, nýjustu togarar DDFU, dótturfyrirtækis Samherja
í Þýskalandi.
Blómin um jólin