Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 18

Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201918 HROSS&HESTAMENNSKA Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði Hafðu samband 568 0100 www.stolpigamar.is Gámurinn er þarfaþing  Þurrgámar  Hitastýrðir gámar  Geymslugámar  Einangraðir gámar  Fleti og tankgámar  Gámar með hliðaropnun Til leigu eða sölu:  Gámahús og salernishús  Færanleg starfsmannaðstaða  Bos gámar og skemmur Mikið um dýrðir á Uppskeruhátíð hestamanna: Jóhann R. Skúlason er knapi ársins Jóhann Rúnar Skúlason var valinn knapi ársins á Uppskeruhátíð hestamanna sem fram fór á dögunum. Fremstu afreksknapar hér á landi sem og fremstu ræktun- arbú ársins 2019 voru heiðruð á hátíðinni. Jóhann Rúnar vann þrjá heimsmeistaratitla á árinu, í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum á hestinum Finnboga frá Minni-Reykjum. Einnig á hann hæstu tölteinkunn ársins, 8,90. Aðrir knapar sem hlutu verð- laun á hátíðinni voru, Benjamín Sandur Ingólfsson sem valinn var efnilegasti knapi ársins 2019, Konráð Valur Sveinsson hreppti nafnbótina skeiðknapi ársins 2019 og Hlynur Guðmundsson var valinn gæðingaknapi ársins. Jóhann Rúnar var íþróttaknapi ársins og Árni Björn Pálsson kynbótaknapi ársins. Þá var til- kynnt um að Syðri Gegnishólar/ Ketilsstaðir hefði fengið verðlaun í flokki keppnishestabúa ársins og Stuðlar eru ræktunarbú ársins 2019. Bjarnleifur heiðraður Á Uppskeruhátíðinni veitti Landssamband hestamanna, LH Bjarnleifi Árna Bjarnleifssyni heiðursverðlaun LH en hann hefur starfað í félagsmálum hestamanna óslitið í 30 ár og er enn að. Hann var formaður landsliðsnefndar LH í tíu ár, frá hausti 2003 til ársins 2013. Bjarnleifur hefur áður hlotið viðurkenningu fyrir óeigingjant starf í þágu hestamanna, hann hefur hlotið félagsmálaskjöld og starfsmerki UMSK og gullmerki Landssambands hestamannafé- laga. Heiðursverðlaun Félags hrossabænda hlaut Baldvin Kr. Baldvinsson fyrir ræktun sína á kynbótahrossum og keppn- ishrossum frá Torfunesi. /MÞÞ Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra, Jóhann R. Skúlason, knapi ársins, og Lárus Ástmar Hannesson, formaður Landssambands hestamanna á Uppskeru- hátíðinni. Stuðlar var tilnefnt ræktunarbú ársins 2019. Tali frá vinstri: Sveinn Steinars- son, FHB, Guðrún Tryggvadóttir, formaður BÍ ásamt Páli Stefánssyni og Eddu Björk Ólafsdóttur, eigendum Stuðla. Keppnishestabú ársins – Sóley Margeirsdóttir, varaformaður LH, Bergur Jónsson og Olil Amble Syðri-Gegnishólar/Ketilsstaðir, Ólafur Þórisson, gjaldkeri LH. Verðlaunahafar á uppskeruhátíð hestamanna 2019.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.