Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 53

Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 53 yfirgefið fyrir þessa skoðunarferð. Á þessum tímapunkti er alveg ljóst að hann hefur engan áhuga á mér og ég búinn að grípa myndavélina loksins. Smelli nokkrum myndum af honum og finnst hann þá heldur minna vígalegur en mig minnti að Komodo drekarnir í sjónvarpinu höfðu verið. Þegar komið var tilbaka í öryggi hótelsins var auðvitað málið kannað í þaula og reyndist þetta þá hafa verið algengur náfrændi Komodo drek- ans, sem er ansi mikið af í Singapúr, þ.á m. einmitt í grasagarðinum. Ekki Varanus komodoensis heldur Varanus salvator, með enska heitið „Malayan water monitor“. Þar er þó á ferð næst stærsta eðlutegund í heimi, getur orðið næstum jafn langur og Komodo drekinn, en er allur minni um sig, með mun minni vöðvamassa og sækir í smávaxnari bráð. Það borgar sig alls ekki að atast í honum og mikilvægt að fara mjög varlega nærri þeim, en þó hægt að vera margfalt rólegri en í kringum Komodo drekann. Innfæddir virðast svipað rólegir í kringum hann eins og við í kringum svani. Vel vitað að maður atast ekki í þeim og þeir geta meitt mann, en alla jafna falla þeir bara í bakgrunn umhverfisins eins og hver annar hlutur. Hér undan- skil ég að sjálfsögðu ekki bændur sem sjá svani á túnunum sínum, því eflaust myndu íslenskir bændur ekki hika við að rjúka að drekanum einnig og reka hann á brott! Singapore Botanic Garden Garðurinn er stofnaður 1859 og státar í dag af því að tilheyra lista UNESCO og er hið fyrsta og eina á þeim lista sem finnst innan Singapúr, ásamt því að vera sagður eini trópíski garðurinn á þeim lista og einungis þriðji grasagarðurinn í heiminum sem er samþykktur á list- ann. Fyrstur á listann var heimsins elsti starfandi grasagarður, í Padua á Ítalíu, stofnaður 1545 og á eftir honum bættist við grasagarðurinn í Kew, í London, Bretlandi. Svo skemmtilega vildi til að garður- inn í Singapúr hafði einmitt verið samþykktur á listann einungis fáum mánuðum áður en við heimsóttum hann. Garðurinn sem slíkur er opinn frá fimm að morgni til miðnætt- is og því jafnvel hægt að gera sér ferð þangað þó maður sé bara að millilenda í hálfan dag, þó raunar séu ekki allir hlutar garðsins opnir svona lengi. Hann er sagður eini grasagarðurinn sem hefur þetta langan opnunartíma að staðaldri, sem býður þarmeð upp á upplifun sem aðrir geta ekki boðið. Það má t.d. nýta sér hinn langa opnunar- tíma með því að kíkja eftir sólarlag, ekki síst sé maður þarna í maí/júní eða okt./nóv. þegar blómgunar- tími Tembusu trjánna stendur yfir. Í garðinum má finna slíkt tré sem talið er nánast jafngamalt garðinum og opnar það blómin við sólsetur og dreifir ilm sínum allt í kringum tréð. Rétt er að benda einnig á í lokin að í Singapúr má m.a. einnig finna dýragarð, sem og safarigarð með næturopnun, auk þess sem flugvöllurinn sjálfur inniheldur lítinn fiðrildagarð. Kristján Friðbertsson, garðyrkjunörd Nánari upplýsingar má finna á netinu m.a. á eftirfarandi vefslóðum: https://www.nparks.gov.sg/sbg https://www.wrs.com.sg/en/ singapore-zoo.html https://www.wrs.com.sg/en/ night-safari.html https://en.wikipedia.org/wiki/ Komodo_dragon https://en.wikipedia.org/wiki/ Asian_water_monitor Stórar eðlur, ættingjar Komodo dreka, finnast á svæðinu. (e. Malayan water monitor, Varanus salvator). Rauði pálminn (e. red sealing wax palm, Cyrtostachys renda) er upp- runinn frá Súmötru og Borneo á Malay-skaganum, en gegnir hér hlutverki einkennisplöntu garðsins. Asískar ávaxtaflugur (Bactrocera dorsalis) eru meðal þeirra sem sækja grimmt í blómin. Þetta tiltekna blóm hefur þó smá forskot, þar sem það getur sett í gang hitahvörf sem leiða til þess að það gefur frá sér efni sem virkar líkt og ferómón á flugurnar. LESENDABÁS Í fyrrihluta greinar fjallaði ég nokkuð um stöðu landbúnaðar í ljósi þeirrar loftslagsvár sem við er að glíma á heimsvísu. Þar kom fram að viðfangsefni íslensks landbúnaðar er skýrt: Það þarf að draga úr losun úr 2,5 milljónum tonna losun gróðurhúsalofttegunda frá búrekstri eins og hægt er og kolefnisjafna afganginn. Og það þarf að gerast hratt. Tuttugu ár er þangað til Ísland ætlar að verða kolefnishlutlaust. Kúabændur hafa samið við ríkið um að kolefnisjafna framleiðslu sína fyrir 2030, sauðfjárbændur hafa gert samninga um kolefnisbindingu og garðyrkjan hefur sett sér markmið um að kolefnisjafna alla sína framleiðslu. 5,4 Heiðmerkur af skógi Til að setja hlutina í samhengi þá hafa skógar á Íslandi bundið u.þ.b. 7,2 tonn af kolefni á hektara á ári, jafnað yfir vaxtarlotuna. Því þyrfti að planta í um það bil 350 þúsund hektara til þess að binda alla losun Íslensks landbúnaðar. Núverandi skóglendi á Íslandi er u.þ.b. 100.000 hektarar. Það myndi þýða að á ári hverju næstu tuttugu árin þyrfti að planta trjám í sem nemur 5,4 Heiðmörkum til þess að ná markmiði um að kolefnisjafna landbúnað. Því verður að draga úr losun samhliða því að binda kolefni í gróðri. Aukin framleiðni búfénaðar og nytjajurta Þá er hægt að gera ýmislegt til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda við framleiðslu. Það liggur beinast við að auka framleiðni búfénaðar og nytjajurta. Fyrir hverja hundrað lítra sem bætast við meðalnyt íslenskra kúa má fækka í kúastofninum um mörg hundruð gripi. Við það dregur úr heildarsporinu umtalsvert. Með því þarf ekki viðhaldsfóður fyrir þá, hægt er að taka land úr rækt sem fór í að fóðra þá og svo framvegis. Aukin uppskera nytjaplantna hefur sömu áhrif. Fyrir meiri uppskeru úr hekt- aranum má draga úr því landi sem nýtt er og eftir atvikum moka ofan í skurði. Þá má ætla að það land sem sparast sé ófrjósamömustu svæðin og því mun áburðarnotkun einnig minnka. Hér á skjólbeltarækt stórt hlutverk. En með markvissri ræktun skjólbelta má bæta ræktunarskilyrði mikið. Metandrifnar dráttarvélar 2021 Þá standa vonir til þess að til komi bætiefni sem hægt sé að blanda beint í kjarnfóður jórturdýra til þess að draga úr metanmyndun í vömb. Bætiefni að þessu tagi gætu lækk- að metanmyndun um tugi prósenta. Þannig væri enn hægt að draga úr vistsporinu úr framleiðslu mjólkur- kúa. Erfiðara er að nýta þessháttar lausnir í sauðfjárrækt þar sem að sauðfé er ekki á húsi nema hluta ársins. Einnig er hægt að framleiða metan úr hauggasi til að knýja drátt- arvélar. Dráttarvélaframleiðandinn New Holland hefur boðað að árið 2021 rúlli fyrstu metandrifnu dráttar- vélarnar af framleiðslulínunum. Eini útblásturinn er vatn og koltvísýringur og er útblásturinn 80% minni en af díseldrifinni vél af sömu stærð. Ljóst er að fyrirtæki bænda, Auðhumla gæti einnig farið í það verkefni að drífa flutningabíla sína með hreinorku og þannig dregið frekar úr kolefn- isfótspori. Áburðarnotkun má minnka Notkun á tilbúnum áburði er u.þ.b. einn tíundi af losun gróðurhúsaloft- tegunda í innlendum landbúnaði. Hægt er að draga verulega úr áburðar- notkun ef að bændur nýta sér þær tækninýjungar sem til eru í dreifingu og með markvissri notkun búfjárá- burðar og áburðaráætlanagerð. Þó er óraunhæft með öllu að ætla landbún- aðinum það markmið að hætta notkun tilbúins áburðar. Slíkar aðgerðir hefðu sennilegast þau áhrif að umhverfis- fótspor landbúnaðar myndi stóraukast á hvert kílógramm matvæla. Þá er einnig nokkur gerjun í nýsköpun á sviði örframleiðslu á áburði með raf- greiningu sem hægt er að framleiða á hverju býli. Kolefnisfótspor þeirrar framleiðslu er allt annað en á áburði framleiddum með jarðgasi. Þá þarf að fara yfir það hvaða áburður telst vera lífrænn, loðdýrarækt hefur um áratugaskeið framleitt loðskinn og áburð úr úrgangi og þar með dregið úr kolefnisfótspori landsins. Ef að áburður er framleiddur úr skólpi, sem vel er hægt að gera, þá er erfitt að rökstyðja hvers vegna hann ætti ekki að teljast „lífrænn“. Meira magn áburðarefna fer í gegnum holræsa- kerfi Höfuðborgarsvæðisins heldur en eru flutt í formi tilbúins áburðar. Samantekið gætu þessar aðgerðir dregið úr losun landbúnaðar talsvert en það er óframkvæmanlegt að los- unin verði engin. Talsverð binding í formi skógræktar, landgræðslu og endurheimt votlendis er nauðsynleg. Minni sóun minnkar losun Það er rétt að átta sig á því að hér hefur einungis verið einblínt á fram- boðshlið losunar vegna landbúnaðar. Það verður hinsvegar ekki hægt að leysa þær áskoranir sem mannkynið stendur frammi fyrir með því einu saman. Af hverjum þremur inn- kaupapokum sem verslað er í mat- inn lendir innihald eins í ruslinu. Mest er sóunin hjá einstaklingum og á veitingastöðum. Draga mætti verulega úr losun ef að þessi sóun minnkar. En það felur jafnframt í sér að framleiðsla mun dragast saman um þriðjung. Verði slíkur samdráttur í íslenskum landbúnaði þá mun losun þó ekki dragast saman um þriðjung þar sem að mikill meirihluti losunar er frá framræstu mýrlendi sem ekki hættir að losa koltvísýring nema það séu bleytt upp aftur. Því þarf að horfa til keðjunnar allrar. Loðdýrarækt er aftur gott dæmi um skynsamlega, náttúrulega lausn. Loðdýr framleiða verðmæti úr „sóun“ annarra atvinnu- greina. Fleiri slíkar lausnir verða til ef að urðun er gerð ósamkeppnishæf með grænum gjöldum eins og stefnt er að. Horft hefur verið til þess að framleiða prótín til notkunar í fóð- urs með notkun skordýra eða annarra lífvera. Eða framleiðsla á metangasi, áburði og svo framvegis. Hér eru mikil tækifæri í nýsköpun. Ódýrustu aðgerðirnar fyrst Mikilvægt er að ráðast í fyrst í ódýr- ustu aðgerðirnar, til þess að lágmarka hækkun á matvælaverði. Sé ekki að því gætt er allt eins líklegt að neysla á innfluttum matvælum aukist. Þannig muni íslenskur landbúnaður verða enn ósamkeppnishæfari í verði en áður og losun gróðurhúsalofttegunda einfaldlega flutt út til annarra landa. Það er einmitt það sem áhersla Evrópusambandsins á að draga úr notkun á tilbúnum áburði hefur skilað. Innflutningur á t.d. sojapró- tíni frá Suður Ameríku hefur aukist mjög mikið og útblástur CO2 flust frá Evrópu til Suður Ameríku. Þá er rétt að benda á aftur að losun úr framræstum mýrum minnkar ekki þó að framleiðsla dragist saman. Sé óskynsamlega haldið á málum og innlend framleiðsla minnkar meðan innflutningur eykst má allt eins ætla að raunveruleg losun vegna neyslu matvæla á Íslandi aukist. En með skynsamlegri stefnu stjórnvalda og bænda má ná miklum árangri og ná markmiðum. Það mun auka samkeppnishæfni landbúnaðarins að geta boðið neytendum upp á kolefnis hlutlausar vörur. Kári Gautason Ná þarf stjórn á losun landbúnaðar – Síðari hluti Kári Gautason. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.