Bændablaðið - 05.12.2019, Side 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201958
Dagana 27. október til 8. nóvem-
ber sl. stóð yfir ferð 40 Íslendinga,
aðallega íslenskra bænda, til Kína
en tilgangur ferðarinnar var að
kynna sér þarlendan landbún-
að og þá aðallega kúabúskap. Í
ferðinni var farið til fjögurra
borga í þeim tilgangi að sækja kín-
verska bændur heim, en auk þess
var auðvitað tækifærið gripið til
þess að skoða og upplifa nokkra af
helstu ferðamannastöðum lands-
ins.
Hér á eftir fer síðari hluti frásagn-
ar um hinn faglega hluta þessarar
ferðar, en fyrri hluti lýsingarinnar
birtist í síðasta Bændablaði.
Mörg hundruð metra
langar byggingar
Fyrsta kúabúið sem var heimsótt í
ferðinni var búið Xinlong sem er
staðsett í nánd við borgina Sanhe
í Hebei héraði, um 70 km austan
við Peking borg. Þetta bú selur alla
sína mjólk til afurðafyrirtækisins
Mengniu og nemur dagleg fram-
leiðsla búsins um 53 tonnum af
mjólk.
Þetta kúabú var með um 4 þúsund
skepnur í mörgum byggingum en
kýrnar, sem voru tæplega 1900, voru
hýstar í tveimur gríðarlega löngum
fjósum. Fjósin voru, líkt og flest
fjós í Kína, með eina legubásaeyju
sitt hvorum megin við fóðurgang-
ana og því með um það bil fjórar
kýr á hvern lengdarmetra. Til þess
að koma svona mörgum kúm fyrir
þurfti því samtals um hálfs kílómetra
langar byggingar!
Með 600 Mou af landi
Xinlong er með 600 Mou af landi,
en í Kína er notuð önnur eining yfir
land en á Íslandi og eru 15 Mou í
einum hektara. Þessi sérstaka ein-
ing við mælingu á landi byggir á
kín-versku mælieiningunni Chi en
í einum Mou eru 6000 Chi.
Hér áður fyrr var þessi mælieining
nokkuð breytileg á milli landshluta
í Kína og er talið að skýringin felist
einfaldlega í mismunandi gæðum
lands og ræktunarskilyrðum. Þannig
ætti ein Mou af landi að duga hefð-
bundinni fjölskyldu og auðvitað er
það afar breytilegt hvað landið getur
gefið af sér, eftir því hvar í Kína það
er. Árið 1984 var svo ákveðið að
staðla eininguna Chi og hefur hún
frá þeim tíma verið fasttengd við
metrakerfið og eru þrjár Chi í einum
metra í dag. Enn þann dag í dag eru
margar kínverskar fjölskyldur með
eina Mou af landi eða með spildu
sem svarar til 667 fermetra og dugar
það mörgum til framleiðslu á vetr-
arforða fjölskyldunnar.
Eins og áður segir er þetta kúabú
með 600 Mou eða sem svarar til ekki
nema 40 hektara af landi, sem telst
harla lítið fyrir kúabú með svona
margar kýr og því þarf að selja, gefa
eða greiða fyrir losun á mykju búsins
eftir afgösun, en búið er með eigin
hauggasorkuframleiðslu. Auk þess
þarf búið að kaupa að mikið magn
af gróffóðri frá öðrum búum enda
nær það ekki að framleiða nema upp
í lítinn hluta af fóðurþörf grip-anna
á búinu.
Með tæplega 29 kíló á dag
Líkt og flest kúabú í Kína þá er
Xinlong búið með svartskjöldóttar
Holstein-Friesian kýr en kúm af
þessum kúastofni hefur fjölgað
hratt á liðnum árum í Kína. Í dag
eru flest kúabú í heiminum að nota
þetta kúakyn enda hefur það mikla
yfirburði yfir önnur kúakyn þegar
kemur að framleiðslugetu. Á þessu
kúabúi eru kýrnar þó ekki með nema
um 29 kíló af mjólk á dag, sem er í
tæpu meðallagi fyrir þetta kúakyn en
segja má að grunn framleiðslugeta
kúa af þessu kyni sé í dag rúmlega
31 kíló á dag. Skýringin á slakri nyt
á þessu búi fengust ekki gefnar upp í
þessari heimsókn en færa má góð rök
fyrir því að mikið magn af aðkeyptu
gróffóðri geri gæðastjórn fóðrunar
erfiða, sem gæti hæglega skýrt lágar
meðalafurðir.
Af hverju til Bengbu?
Næstu dagar í ferðinni voru nýttir
til þess að fara til borgarinnar Xi‘an
þar sem hinir heimsfrægu leirher-
menn standa vörð og gæta Qin Shi
Huangdi, fyrsta keisara Kína. Hann
lét gera þessa hermenn og reisti
raunar hallir og fleira neðanjarðar
svo hann myndi eiga gott líf, eftir
eigin dauða en Kínverjar trúðu því
á þessum tíma að látnir myndu lifa
neðanjarðar eftir andlát sitt. Xi‘an,
rétt eins og margar aðrar borgir í
Kína, er þekkt fyrir fjölbreytt og
óvenjulegt úrval af matvælum og
því var tíminn nýttur vel og gengið
um þekkt matarstræti í borginni þar
sem finna mátt misáhugaverða rétti
að borða svo ekki sé tekið dýpra
í árinni. Frá Xi‘an var svo haldið
til borgarinnar Bengbu sem er um
300 kílómetrum norðvestan við
Shanghæ. Þegar kínverska leiðsögu-
konan heyrði af fyrirætlunum hóps-
ins um að við ætluðum til Bengbu
sagði hún einfaldlega „af hverju?“ og
bætti svo við „þangað fer enginn!“
Það var líka augljóst af viðbrögðum
heimamanna þegar íslenski hópurinn
steig út úr hraðlestinni í Bengbu að
útlendingar koma ekki oft til borg-
arinnar, hvað þá bændur frá Íslandi!
Tilgangurinn var reyndar ekki að
heimsækja borgina heldur stærsta
kúabú Kína þar skammt frá. Þess
má geta að Bengbu er svo sem ekki
neitt þorp, þar búa um 3,5 milljónir
manna!
631 tonn á dag!
Eins og hér að framan var nefnt
var næsta heimsókn skipulögð á
stærsta kúabúið í Kína þar sem eru
22 þúsund kýr og nemur dagleg
mjólkurframleiðsla 631 tonni, sem
er umtalsvert meiri framleiðsla en
kemur samanlagt frá öllum kúabúum
á Íslandi á degi hverjum! Þessu búi
hefur áður verið gerð ágæt skil á
þessum vettvangi og geta áhuga-
samir fundið grein um búið í fjórða
tölublaði Bændablaðsins á síðasta
ári. Það sem er sérstakt, fyrir utan
gríðarlega stærð kúabúsins, er það
að vegna stærðarinnar er þar einnig
starfrækt gríðarlega afkastamikil af-
urðastöð og fer mjólkin beint í fernur
á innan við tveimur klukkustundum
eftir mjaltir. Mjólkin er því mark-
aðssett sérstaklega sem svokölluð
2ja tíma mjólk.
Lífrænt hrísgrjónabú
Eftir dvöl í eina nótt í Bengbu
var svo haldið áfram með hrað-
lestinni til Sjanghæ og byrjað á því
að fara í heimsókn á búið Jianyu en
það stendur suðvestan við Sjanghæ
í nánd við þorpið Shangwu. Þetta
bú er sérhæft í lífrænt vottaðri hrís-
grjónaframleiðslu og er með rækt-
un á 4000 Mou eða rétt tæplega
270 hektörum. Búið er því stórt á
kínverskan mælikvarða og nemur
ársframleiðsla þess um 1.400 tonn-
um af hrísgrjónum og er því hver
hektari að gefa af sér 5,3 tonn af
hrísgrjónum. Þetta telst þó ekki sér-
lega mikil uppskera þegar hrísgrjón
eru annars vegar og er skýringin sú
að framleiðslan er eins og fyrr segir
lífrænt vottuð og því er ekki not-
aður tilbúinn áburður né t.d. eitrað
gegn skordýravá eða sveppasmiti.
Fyrir vikið er uppskeran einungis
um helmingur þess sem ella væri,
ef um hefðbundna ræktun væri að
ræða en verðið er þó töluvert hærra
enda fást 3 RMB, um 52 íslenskar
krónur, fyrir hvert kíló af hefð-
bundnum hrísgrjónum en 6 RMB,
um 104 íslenskar krónur, ef þau eru
framleidd eftir lífrænum stöðlum.
Allt á kafi
Það sem er sérstakt við hrísgrjóna-
framleiðslu er að ræktunin fer fram
á akri sem hulinn er vatni rétt eins
og flestir kannast líklega við. Það er
því ekki sáð fyrir hrísgrjónum með
hefðbundnum hætti, eins og þekkist
hér á landi í kornframleiðslu, heldur
er hrísgrjónaplöntunni plantað
út. Áður fyrr var þetta gert með
handafli þar sem vinnufólk þurfti
að vaða um akrana og planta út en
í dag eru til vélar sem gera þetta.
Fyrst eru plönturnar forræktaðar
í þar til gerðum gróðurhúsum og
svo eru plöntubakkarnir settir í sér-
stakar plöntunarvélar sem sjá um
restina. Vatn hylur svo akurinn allt
fram undir uppskerutímann, en þá
er vatninu veitt af akrinum og eftir
um vikutíma er hægt að fara með
þreskivélar á akurinn og uppskera
hrísgrjónin.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
KÍNA
Hópurinn samankominn hjá leirhermönnunum í Xi’an. Mynd / SS
Kínverjar passa vel upp á smitvarnir og þegar gesti ber að garði eru þeir
alltaf settir í einnota klæðnað til að verja skepnurnar frá mögulegu smiti.
Í Kína er lambakjöt afar vinsælt,
sérstaklega meðal múslima. Hér
var boðið upp á grillaðar lappir á
matarstrætinu í Xi’an.
Kúabúið Bengbu er það stórt að það
getur rekið hagkvæma afurðavinnslu
samhliða mjólkurframleiðslunni og
markaðssetur sérstaklega þessa 2ja
tíma mjólk. Mynd / Björn Birkisson í Botni
Í byrjun nóvember var verið að
þreskja hrísgrjón víða í Kína. Í suður-
hluta landsins nást tvær uppskerur
á ári en norðar bara ein.
Mynd / Hjörtur Ásgeir Ingólfsson
Hér sést vel munurinn á hrísgrjón-
unum fyrir og eftir pússun.
Mynd / Björn Birkisson