Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 62
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201962
Fyrir um mánuði síðan frumsýndi
BL nýjan og breyttan Land Rover
Discovery Sport, ég fékk að prófa
bílinn yfir helgi fyrir nokkru síðan.
Þó að breytingarnar virðist ekki
miklar við fyrstu sýn er þetta allt
annar bíll en fyrirrennari hans.
Tvö ný met í prufuakstri
Eins og margir hafa tekið eftir þá
hef ég aðeins aðra sýn á bíla sem
ég prófa miðað við marga aðra bíla-
blaðamenn. Nánast alla prufubíla
mæli ég hávaðann inni í bílnum á
sama vegi á 90 km hraða og þessi
bíll sló öll met (metið átti SsangYong
Rexton 64,7db), en þessi mældist
63.5db. Ég margmældi því ég vildi
hreinlega ekki trúa mælingunni, en
til samanburðar þá mældist Range
Rover PHEV rafmagns/bensínbíll-
inn 66,6db, að vísu í -14 stiga frosti.
Það eitt að komast niður fyrir
70db finnst mér gott, en að ná
svona neðarlega er einsdæmi og
það á vetrardekkjum sem segir bara
það eitt að bíllinn er einstaklega vel
hljóðeinangraður.
Seinna metið var gott loftnet við
útvarpið, en ég hlusta nánast alltaf
á Gullbylgjuna þegar ég prófa bíla
og oftast dettur hún út á svipuðum
stöðum (Það gerist næstum alltaf
þegar bestu lögin eru í útvarpinu),
en í þessum bíl náði ég að hlusta á
Gullbylgjuna alla leið á Þingvöll og
aðeins lengra.
Sparneytinn, sprækur
með 9 þrepa sjálfskiptingu
Land Rover Discovery Sport er
hægt að fá í mörgum útfærslum á
verði frá 6.890.000 upp í 10.390.000
og hestöfl véla frá 150 upp í 200
hestöfl.
Sjálfskiptingin er 9 þrepa og
fann ég aldrei fyrir því þegar bíllinn
skipti á milli þrepa/gíra.
Bíllinn sem ég prófaði var með
minnstu vélinni og því ekki alveg
sá sprækasti, en hann er uppgefinn
fyrir að eyða í blönduðum akstri 5,5
lítrum á hundraðið.
Eftir nálægt 200 km akstur sagði
aksturstölvan að mín eyðsla hafi
verið 7,4 lítrar á hundraðið sem er
mjög gott miðað við aksturslag mitt.
Mér fannst mjög gott að keyra
bílinn í alla staði, en persónulega
mundi ég velja næstu stærð af vél
sem er 180 hestöfl upp á að fá betri
snerpu úr kyrrstöðu og hafa betra
tog væri maður með vagn, kerru eða
hjólhýsi í eftirdragi.
Allt innrými gott og pláss mikið
Framsætin eru mjög góð og aft-
ursætin líka, fótapláss bæði fram
í og aftur í er meira en í flestum
bílum.
Farangursrými er stórt, en
varadekkið er það sem ég kalla
aumingi í staðinn fyrir fullbúið
varadekk sem var undir bílnum
í fyrri árgerðum. Það er að vísu
ljós í myrkrinu að varadekkið er
komið inn í bílinn og því mun
aðgengilegra, hreint og auðvelt
að ná úr bíl þegar þörf er. Gamli
búnaðurinn vafðist fyrir mörgum
og var ekki beint sparifatavænn
útbúnaður. Drulluskítugt og flókið
fyrir marga enda springur nánast
aldrei nema þegar maður er kom-
inn í sparifötin.
Dekkin eru með frekar lágan
prófíl 235/55/19, fínt fyrir malbik
og góða malarvegi, en samkvæmt
sölubæklingi er hægt að setja undir
bílinn 17 og 18 tommu felgur til
að fá meiri mýkt og fjöðrun út
úr hjólbörðum fyrir þá sem keyra
mikið á vondum vegum.
Mínusarnir ekki margir
Akreinalesarinn virðist vera mjög
næmur á að lesa miðlínuna á veg-
inum þrátt fyrir að miðlínan sé
ekki alltaf vel greinileg, hliðar-
speglar eru ekki stórir en sýna
vel aftur fyrir bílinn. Mjög margir
bílar koma þannig að einungis
kviknar á litlum ljósum að framan
og engin að aftan, en þessi bíll
kveikir alltaf allan hringinn og því
engin hætta á sekt fyrir ljósleysi.
Hiti er í stýrinu og bíllinn er
fljótur að hita að innan. Hljómgæði
í útvarpi er með besta móti. Eina
neikvæða við bílinn sem ég sá í
fljótu bragði var varadekkið sem
ég vil hafa í fullri stærð. Verulega
eigulegur bíll í alla staði vilji
maður ferðast um í þægilegum
bíl og láta sér líða vel.
Allar nánari upplýsingar hjá
BL í sýningarsal Landrover og
Jaguar að Hesthálsi eða á vefsíð-
unni www.landrover.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Lengd 4.597 mm
Hæð 1.727 mm
Breidd 2.173 mm
Þolir vatnsdýpt 600 mm
Helstu mál og upplýsingar
Land Rover Discovery Sport
Land Rover Discovery Sport. Myndir / HLJ
Svolítill sóði á afturendann eftir malaraksturinn, en ólíkt mörgum nýjum
bílum þá er alltaf afturljós á þessum bíl.
Rými fyrir aftursætisfarþega er með almesta móti.
Nýtt met, ekki minnist ég þess að
hafa mælt svona lága mælingu á
hávaða.
Hliðarspeglarnir eru ekki stórir, en
sýna mjög vel aftur fyrir bílinn.
Bílnum fylgir krókur, en aumingjalegt finnst mér varadekkið.
Akreinalesarinn fannst mér lesa miðjulínuna mjög vel þrátt fyrir að hún væri
ekki alltaf greinileg.
Undir bílnum var dekk af stærðinni
235, 55,19, en ég myndi velja 17
tommu felgu ef þetta væri bíllinn
minn.