Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Page 5

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Page 5
Njáll Pálsson slökkviliðsmaður og bráðatæknir skrifar Frá nýjum formanni fagdeildar sjúkraflutninga Þessi orð eru rituð þegar tvær vikur eru liðnar frá því að ég tók við keflinu sem formaður fagdeildar sjúkraflutn- ingamanna af Sveinbirni Berentssyni bráðatækni. Eg man einsog það hafi gerst í gær þegar ég var að stíga mín fyrstu spor á sjúkraflutningabrautinni sem afleysingamaður hjá Slökkviliði Hafnarfjarðar hér um árið! Rennblautur á bak við eyrun, með hnút í maga og sveitta lófa. Þá naut maður styrkrar leiðsagnar góðra og reyndra manna, Sveinbjörns þar á meðal, og gott vegar- nesti þá sem nú. Fyrir það vil ég þakka sérstaklega. Þetta hlutverk er að mínu viti gríðar- lega mikilvægt og vandasamt. En það er ekki eins manns verk. Við hlið for- manns eru öflugir samherjar í stjórn og að baki þeirra heil fagstétt. Nú reynir á að halda uppi því öfluga starfi sem búið er að vinna. Nú er ekki um neitt kaffistofuraus að ræða heldur grjót- harðan raunveruleika þar sem eiga þarf samskipti við hina ýmsu aðila og stofn- anir er að okkar málum koma. Hvort heldur um er að ræða búnaðar- og bíla- mál eða þjálfunar- og menntunarmál. Fyrir liggja ærin verkefni. Nýr tónn í sjúkrabílamálum Nýr tónn hefur verið sleginn í sjúkra- bíiamálum. A nýafstöðnu þingi okkar var samþykkt harðorð ályktun þar sem skorað er á stjórn LSS að beita sér gegn þeim nýja tón. Eg get upplýst það hér að unnið er hörðum höndum að lausn þeirra mála. Málaflokkurinn er þungur, flókinn og snertir ýmsa viðkvæma fleti. En þetta er verkefni sem þarf að leysa svo allir geti sáttir við unað. En það er fleira sem veldur manni áhyggjum. Staðan sem nú er uppi varð- andi sjúkraflutninga á höfuðborgar- svæðinu er á engan hátt viðunandi. Er það mín einlæga ósk að samningar náist milli ríkis og sveitarfélaga um þessa mikilvægu þjónustu. Og þá þannig samningur að Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS) verði veitt svigrúm til frekari framþróunar í mála- flokknum, enda hundrað ára farsæl saga að baki. SHS hefur, ásamt öðrum, verið leiðandi afl í ýmsum framfara- málum sjúkraflutningamanna og er sárt til þess að hugsa ef þessi mikilvægi hlekkur í öryggiskeðju landsmanna verður klipptur út með ófyrirséðum afleiðingum. Samningar verða að nást, það myndi síðan vonandi liðka fyrir frekari samningum annars staðar. Hér gildir hið sama, gott fólk vinnur hörðum höndum að lausn málsins. Vatnaskil í menntun Ákveðin vatnaskil virðast nú eiga sér stað í menntunarmálum okkar. Átak hefur verið í gangi til þess að fjölga neyðarflutningsmenntuðu fólki. Einnig er unnið að undirbúningi bráðatæknanáms á háskólstigi hér- lendis, sem og breytinga á grunnnámi. Fyrir liggur ráðning nýs skólastjóra Sjúkraflutningaskólans og vil ég nota tækifærið og þakka fráfarandi skóla- stjóra fyrir vel unnin störf sem unnin hafa verið af einurð og festu. Það er fyrir öllu að þessi áform nái fram að ganga með farsælum hætti, stéttinni og landsmönnum öllum til heilla. Þörfin fyrir bráðatæknanám á landsvísu er löngu orðin ljós. Einnig þurfum við að taka okkur á í þjálfun og endurmenntun. Mín skoðun er sú að við sem störfum í utan- spítalaþjónustunni eigum til að mynda að fá reglulega þjálfun í sérhæfðri endurlífgun. Þar sem ég er nú að impra á mennt- unarmálum þá er nú ekki úr vegi að nota tækifærið og þakka Lárusi Petersen bráðatækni fyrir hans braut- ryðjendastarf í menntunarmálum okkar. Hann hefur nú látið af störfum hjá SHS og njóta aðrir starfskrafta hans í dag. Hans framlag og hugsjóna- starf verður seint ef nokkurn tíma fullþakkað. Yfirlæknir utanspítalaþjónustu í þessu sambandi get ég ekki látið hjá líða að minnast á faglegan yfirmann okkar, Viðar Magnússon lækni. Hann hefur nú sagt starfi sínu lausu og hafið störf sem svæfinga- og gjörgæslulæknir í Fossvogi. Þetta þýðir að hann hefur þurft að segja sig frá því hlutverki að vera yfirlæknir utanspítalaþjónustu á íslandi. Það setur að mér ugg því að mínu mati hefur Viðar gjörbylt starfsumhverfi sjúkraflutningamanna, þó sérstaklega bráðatækna, til mun betri vegar en áður var. Það hlýtur að vera óumdeilt. Hann er þó hvergi nærri hálfnaður á þeirri vegferð segi ég. En við þurfum að skoða hvernig þessu starfi er háttað. Starf Viðars er annars vegar hálf staða sérfræðings á bráðamóttöku í Fossvogi. Hins vegar er um að ræða hálfa stöðu sem yfir- læknir utanspítalaþjónustu á Islandi, umsjónarlæknir Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins, umsjónarlæknir Neyðarlínunnar, umsjónarlæknir þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar og umsjónarlæknir alþjóðarústabjörgunar- sveitar Landsbjargar. Eg hef lengi spurt sjálfan mig og aðra að því hvernig utanspítalahlutinn geti verið aðeins hálft starfshlutfall og hvernig einn maður eigi að geta sinnt þessu! Fyrir mér er þetta brengluð mynd. Þrátt fyrir kunnan eldmóð, brennandi áhuga á málaflokknum og góðan vilja fráfar- andi yfirlæknis, þá sér það hver heilvita maður að svona gengur þetta ekki upp. Það hefur Viðar ítrekað bent á. Þeir sem þessum málum ráða verða að opna augun fyrir því hve veigamikil hlutverk þetta eru og skipta þeim á milli nokkurra hæfra aðila, því þetta er meira en einn maður ræður við. Það hlýtur að vera skýlaus krafa okkar sem störfum í bráðaþjónustu utan spítala. Engu að síður vil ég færa Viðari kærar þakkir fyrir hans mikilvæga framlag til framfara í okkar málum. Ég vona þó að hans aðkomu að málaflokknum sé ekki með öllu lokið. Slökkviliðsmaðurínn 5

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.