Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Side 10
i|B|
1
yfl
Þingið samþykkti meðal annars ályktun um aðfæra starfslok slökkviliðsmanna íáfóngum niður (55 ár.
Vilja samræma fatareglur
Þingið telur að samræma skuli fatnað og fatareglur
hjá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum í landinu.
Undir þetta skal falla hlífðar- og einkennisfatnaður hvort
heldur sem er við slökkvistörf, sjúkraflutninga eða æfingar.
Jafnframt eru öll slökkvilið og rekstraraðilar sjúkraflutninga
hvött til að fara eftir lögum og reglugerðum varðandi ör-
yggis- og hlífðarfatnað. Auka þarf eftirlit með öryggisfatnaði
á landsvísu (MVS) og samræmingu á landsvísu.
Fræðslu- og þjálfunaraðstaða á einum stað
Þingið felur stjórn Landssamband slökkviliðs- og sjúkra-
flutningsmanna að beita sér fyrir því að koma á fræðslu- og
þjálfunaraðstöðu á einum stað þar sem allir slysavarna- og
björgunaraðilar koma að, það er að segja, slökkvilið, björg-
unarsveitir, slysavarnadeildir, lögregla, Landhelgisgæslan,
sjómenn/ sæfarendur, Almannavarnir og fleiri tengdir aðilar.
Þar skuli verða unnið með þann besta búnað sem völ er á
hverju sinni. Tryggður skuli jafn aðgangur allra björgunar-
og slysavarnaðila á landsvísu með jöfnun ferðakostnaðar og
þátttökugjalda.
Hætti næturvöktum um fimmtugt
Þingið skorar á LSS í næstu kjarasamningsviðræðum að
ná fram breytingum á vaktavinnu eins og getið er um í
kjarasamningi LSS um vaktavinnu 2.6.11. „Starfsmenn sem
vinna reglubundna vaktavinnu skulu undanþegnir nætur-
vöktum er þeir hafa náð 50 ára aldri, en halda þó að fullu
vaktaálagi. A sama hátt skal slökkviliðsmaður sem hefur
náð 50 ára aldri vera undanþeginn skyldu til reykköfunar
og sjúkraflutningum, nema í „sérstökum" neyðartilfellum."
(Sérstökum = Síðasti bíll úr húsi)."
Minni kröfur til eldri starfsmanna
Þingið skorar á Mannvirkjastofnun að minnka kröfur til
eldri starfsmanna varðandi gönguhraða í þrekprófum til
reykköfunar í takt við aldur starfsmanna. Mikill munur
er milli tvítugs og fimmtugs starfsmanns er varðar slit á
skrokknum, liðþófum, vöðvarýrnun o.s.frv. Ekki telst rétt-
mætt að sama álag sé sett á eldri starfsmenn þar sem reynsla
eldri starfsmanns til vinnu vegur þyngra á eldstað en þrek
eingöngu.
Lengri sumarorlofstíma
Þingið skorar á LSS í næstu kjarasamningaviðræðum
að reyna að ná fram breytingum á sumarorlofstíma.
Sumarorlofstíminn fari í 25. maí-15. september.
Starfsmenntunarsjóður
Þingið skorar á skrifstofu LSS og starfsmenntunarsjóð
að safna saman upplýsingum um möguleg námskeið og
fjármögnunarleiðir til þess að senda slökkviliðsmenn og
sjúkraflutningamenn á námskeið hérlendis og erlendis.
Þingið skorar einnig á starfsmenntunarsjóð að opna betur og
einfalda úthlutunarreglur.
10 Slökkviliösmaðurinn