Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Blaðsíða 13

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Blaðsíða 13
Sigurður Lárus Fossberg skrifar Auka má öryggi slökkviliðsmanna í upphafi síðustu aldar urðu stór- brunar hér á landi. Árin 1901 og 1906 á Akureyri, 1915 og 1935 í Reykjavík og mannskæðasti eldsvoðinn hér á landi varð í Keflavík 1935. Þetta kallaði á brunavarnir. Búnaður til slökkvistarfa var í anda þess tíma fábrotinn og ekki öflugur. Það átti einnig við urn hlífðar- búnað slökkviliðsmanna en þegar leið á öldina breyttist þetta til hins betra og bæði tækjabúnaður og hlífðarfatn- aður voru í stöðugri þróun. Með bættu lagaumhverfi og reglugerðum hafa öryggismál slökkviliðsmanna batnað til muna og má þar á meðal nefna nýútkoma reglugerð um reykköfun og reykköfunarbúnað. Einnig reglugerð um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og reglugerð um hlffðarbúnað slökkviliðsmanna. Allar þessar reglugerðir styðjast við lög um brunavarnir nr. 75/2000. LSS hefur komið að gerð þeirra með einum eða öðrum hætti. Félagsmaðurinn kemur með hugmyndir sem fara inn í deildarstarfið til umræðu. Þaðan fara hugmyndirnar til stjórnar eða beint inn á þing LSS. Á þingum LSS eru málin rædd og svo koma ályktanir í kjölfarið á því sem stjórnin vinnur með. Einnig hafa verið kallaðir saman þver- faglegir hópar til að fara yfir og veita umsögn um lagafrumvörp og drög að reglugerðum. Það er nauðsynlegt að fá upplýsingar frá grasrótinni um hvað þarf að bæta og hvernig gott er að haga hlutunum. Fimm menn í áhöfn LSS kom inn í kjarasamning ákvæðum um læknisskoðun og þrek- og styrktar- próf. Mannvirkjastofnun gaf út viðmiðun- arreglur um læknisskoðun og þrek- og styrktarpróf fyrir slökkviliðsmenn. LSS telur að prófin þurfi að vera stöðluð þannig að hægt sé að bera saman árangur á milli ára. Þegar reglugerð um reykköfun var gefin út eftir margra ára bið var eins og framkvæmdavaldið hefði aldrei heyrt neitt frá fagaðil- unum um málið. Hjá LSS hafa menn áhyggjur af að vinnulag við reglugerð um slökkvilið verði sambærilegt. Vinna við reglugerðina hefur verið í gangi um tíma en LSS hefur enn ekki verið boðið að koma að henni. Það er og hefur verið krafa LSS að það verði að lágmarki fimm slökkvi- liðsmenn í áhöfn dælubíla. Varðstjóri, bílstjóri, reykkafarar I og II og stjórn- andi reykkafara. Það yrði til mikilla bóta ef stjórnandi reykkafara væri með að minnsta kosti fimm ára reynslu og 125 klukkustundir í reykköfun eða reykköfunaræfingum samkvæmt 17. grein reglugerðar um reykköfun. Förum við eftir reglunum? Öryggið snýst ekki bara um vinnu á vettvangi. Það á einnig við um slökkvi- stöðvarnar og tækin sem við vinnum á og með, lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, reglugerð um neyðarakstur og fleira. En erum við að nýta okkur lög og reglugerðir og fara eftir þeim? Það stoðar lítið að leggja mikla vinnu í að knýja fram reglur og fá að hafa eitthvað um þær að segja ef ekki er síðan farið eftir þeim. Á þessum tímum hraða og tækni erum við í störfum okkar undir eftir- liti öllum stundum, frá fjölmiðlum, almenningi, netmiðlum, meðal annars okkar eigin. Myndir af vettvangi og störfum okkar birtast allan sólar- hringinn og er oft og tíðum miður að sjá hvernig við stöndum að verki. Ef við stöndum ekki rétt að verki í okkar störfum og förum eftir þeim reglum sem við köllum eftir þá er lítil stoð í þeim ef við slösum okkur við störf. Sigurður Lárus Fossberg formaður fagdeildar slökkviliðsmanm Slökkvilið Stykkishólms og raágjireiniiniSs ■Mm* /w\ Slökkviliðsmaðurinn 13

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.