Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Blaðsíða 14
Tímabær reglugerð
um reykköfun
Ný reglugerð um reykköfun sem tók gildi 13. nóvember í fyrra var orðin
tímabær en gamla reglugerðin var frá 1984 og byggði á enn eldri lögum.
Markmið nýju reglugerðarinnar er að auka öryggi þeirra sem stunda
reykköfun. Hún nær yfir reykköfun hjá slökkviliðum við slökkvistörf, mengunarslys
og æfingar. Einnig gildir hún um reykköfunarbúnað, menntun, þjálfun og skyldur
reykkafara og um almennt öryggi við reykköfun.
Lárus Kristinn
Guðmundsson
skrifar
Reykkafarar þurfa að hafa náð 20 ára
aldri og hafa lokið námi í reykköfun
hjá Mannvirkjastofnun. Þeir þurfa að
viðhalda þjálfun sinni með æfingum
og standast þrekpróf og læknisskoðun
samkvæmt reglugerðum þar um.
Mannvirkjastofnun hefur eftirlit
með framkvæmd reglugerðarinnar.
Stofnuninni er heimilt að láta skoða
reykköfunarbúnað og framkvæmd
reykköfunaraðgerða hjá slökkviliðum
án fyrirvara.
Strangari kröfur
Nýja reglugerðin er í takti við nýja
tíma. Skráning og eftirlit með búnaði
hefur verið aukið. Eftirlitsskylda
slökkviliða er því orðin strangari en
áður. Nú þurfa slökkvilið að halda
viðhaldskerfi um reykköfunarbúnað
sinn svo hægt sé að rekja viðhaldið
og þjónustu við hann aftur í tímann.
Reykköfunartæki skulu sérstaklega
yfirfarin á 12 mánaða fresti og af þjón-
ustuaðila brunavarna sbr. reglugerð
1067/2011 um þjónustuaðila bruna-
varna. Kröfur um áfyllingu á lofthylki
hafa verið auknar og strangari kröfur
eru nú gerðar um gæði og eftirlit við
áfyllingar varðandi loftgæði.
Minnst sex æfingar á ári
Fjöldi verklegra æfinga í reykköfun
hjá slökkviliðum skal vera að lágmarki
sex á hverju ári og tímalengd þeirra
að lágmarki samtals 25 klukkustundir.
Af sex æfingum skulu þrjár þeirra
vera reykköfunaræfingar, þar af ein
heit reykköfunaræfing. Þá skulu þrjár
æfingar vera efnaköfunaræfingar, þar
af ein með hættulegum efnum. Æfingar
í reykköfun skulu endurspegla helstu
áhættur eins og þær eru skilgreindar
í brunavarnaáætlun viðkomandi
sveitarfélags.
Við æfingar í reykköfun skulu tveir
leiðbeinendur tilnefndir til að stjórna
æfingunni. Þeir skulu hafa náð 25 ára
aldri, hafa að minnsta kosti tveggja ára
starfsreynslu sem reykkafarar og eiga
að baki að minnsta kosti 125 klukku-
stundir í reykköfun og reykköfunaræf-
ingum. Skal annar leiðbeinandinn hafa
reykköfunarréttindi í gildi.
Heitar æfingar og æfingar með
hættulegum efnum skulu fara fram á
æfingasvæði sem er útbúið fyrir slíkar
æfingar og heilbrigðisnefnd hefur veitt
starfsleyfi fyrir í samræmi við ákvæði
reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi
fyrir atvinnurekstur sem getur haft í
för með sér mengun. Þó er heimilt að
nýta hús til æfinga hafi aðfærsla vatns
og öryggi allra viðstaddra verið tryggt
sem og tilskilin leyfi fengin í samræmi
við viðeigandi lög. Reykkafarar geta
sótt æfingar hjá öðrum slökkviliðum
eða æfingasvæðum náist um það sam-
komulag milli slökkviliðsstjóra.
Reykköfunarnám
Kennsla í reykköfun skal vera viður-
kennd af Mannvirkjastofnun og skal
ætíð leggja fyrir stofnunina til sam-
þykktar kennsluáætlun og skrá yfir
búnað til kennslu.
Leiðbeinendur við kennslu skulu
vera að minnsta kosti tveir og upp-
fylla sömu skilyrði og stjórnendur við
æfingar í reykköfun, sbr. 3. mgr. 12. gr.
Skulu þeir halda skrá yfir nemendur í
reykköfun.
Nemendur í reykköfun skulu slysa-
tryggðir af vinnuveitanda og hafa til
umráða reykköfunarbúnað, þar með
talinn hlífðarbúnað, í samræmi við
reglugerð um hlífðarbúnað slökkviliðs-
manna. Nemendur skulu einnig stand-
ast læknisskoðun í samræmi við 15. gr.
og leggja fram heilbrigðisvottorð frá
lækni því til staðfestingar, ekki eldra en
fjögurra vikna.
Slökkviliðsstjóri skal árlega senda
Mannvirkjastofnun upplýsingar um þá
slökkviliðsmenn sem uppfylla skilyrði
11. gr. og eru skráðir sem reykkafarar.
Tilkynningu til Mannvirkjastofnunar
skal fylgja:
Vottorð um nám í reykköfun, sbr.
13. gr. Sé um að ræða sambærilegt nám
skal leggja fram vottorð eða prófskír-
teini um námið og lýsingu á náminu.
Upplýsingar samkvæmt þessum lið
þarf einungis að senda þegar reykkaf-
ari hefur störf.
Staðfesting slökkviliðsstjóra á að
viðkomandi uppfylli heilbrigðiskröfur
skv. 15. gr.
Mannvirkjastofnun heldur skrá um
þá slökkviliðsmenn sem slökkviliðs-
stjórar hafa tilkynnt um að séu skráðir
sem reykkafarar.
Árleg læknisskoðun
og þrekpróf
Árlega skulu slökkviliðsmenn fara í
læknisskoðun og standast þær heil-
brigðiskröfur sem settar hafa verið.
Jafnframt skuli þeir árlega gangast
14 Slökkviliðsmaðurinn