Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Blaðsíða 8
sveitarfélaga. Hún snýst um það hvernig þjónustu og öryggi
slökkviliðum landsins er ætlað að sinna," sagði Sverrir
Björn.
Reglugerð um slökkvilið
Hann minnti á að verið væri að skrifa langþráða reglugerð
um slökkvilið og kallaði eftir því að þeirri vinnu yrði lokið
sem fyrst. Slökkviliðsmenn biðu að sögn Sverris Björns í tíu
ár eftir reglugerð um reykköfun sem gefin var út í nóvember
á síðasta ári en hann taldi að standa þyrfti miklu betur að
kynningu á þeim breytingum sem reglugerðin hefur í för
með sér. Hann benti á þá víðtæku kynningu sem byggingar-
reglugerð hefði fengið um allt land og hefði síðan leitt til
endurskoðunar á henni. Reglugerðin um reykköfun hefði
hins vegar ekki einu sinni verið kynnt fyrir starfsmönnum
slökkviliðanna.
Sverrir Björn sagðist telja að leggja þyrfti meiri áherslu
á málefni slökkviliðanna hjá Mannvirkjastofnun og ráða
þangað sérfræðinga sem hefðu reynslu af því að starfa sem
slökkviliðsmenn.
„Það er gott starfsfólk hjá Mannvirkjastofnun en það
vantar sérfræðing í málefnum slökkviliða landsins sem veit
hvernig störfum slökkviliðanna er háttað. í Sandö skól-
anum voru tvær tegundir kennara, það voru fræðingarnir
og gamlir aðalvarðstjórar slökkviliðanna. Einhverra hluta
vegna voru gömlu aðalvarðstjórarnir vinsælli á meðal okkar
nemendanna. Þeir voru nefnilega sérfræðingar í slökkvilið-
um og slökkviliðsmönnum. Þannig sérfræðinga vantar inn
á Mannvirkjastofnun. Þeir gætu til dæmis unnið að þróun
náms fyrir stéttina inn í framtíðina. Það er eitt af helstu
verkefnum næstu mánaða að koma fram með breytingar við
reglugerð 792/2001 um Brunamálaskólann, menntun, rétt-
indi og skyldur. Með breytingum á reglugerðinni gæti verið
hægt að byggja undir nám slökkviliðsmanna á flugvöllum
landsins," sagði Sverrir Björn.
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn
í einkennisklæðnaði fá
10%
afslátt
af matseðli
Opiðallan
sólarhringinn:
Fitjum Njarðvík
Ártúnshöfða
Hringbraut
Gildir ekki með öðrum tilboðum.