Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Blaðsíða 9
Fjöldi ályktana um
hagsmuna- og baráttumál LSS
Vilja starfslok við 55 ára aldur
Þing LSS lagði áherslu á að starfslok slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna verði við 65 ára aldur en verði síðan
lækkaður í áföngum niður í 55 ár. í ályktun þingsins kemur
fram að sérstaða starfa slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
sé að þau séu í flestum tilvikum unnin við lífshættulegar
kringumstæður undir miklu andlegu og líkamlegu álagi. Þá
séu kröfur til starfsins sífellt að aukast og ekki sé á færi eldri
starfsmanna að uppfylla þær svo vel sé.
Þetta er meðal fjölmargra hagsmuna- og baráttumála
landssambandsins sem þingið ályktaði um. I beinu fram-
haldi af þessari ályktun samþykkti þingið að hvetja um-
hverfis- og heilbrigðisráðherra til að láta fara fram könnun á
lífaldri og álagi í starfi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Skilyrt er að niðurstöður verði birtar opinberlega. Aðrar
ályktanir þingsins voru:
Efla menntun og endurmenntun
Þingið skorar á Brunamálaskólann að efla menntun og
endurmenntun slökkviliðsmanna. Efla þarf verklega þjálfun
slökkviliðsmanna á landsvísu og nýta til þess þekkingu og
reynslu atvinnuslökkviliða í landinu. Jafnframt er skorað á
Mannvirkjastofnun að tryggja að eftirfylgni sé samkvæmt
lögum (75/2000 og 1088/2013 - 12. gr.) um menntun, þjálfun
og æfingaskyldu slökkviliðsmanna. Jafnframt að nám
slökkviliðsmanna falli að alþjóðlegum stöðlum þannig að
íslenskir slökkviliðsmenn séu samkeppnisfærir til starfa á
erlendri grundu.
Þá er eindregið hvatt til þess að einingameta og endur-
skipuleggja nám slökkviliðsmanna, atvinnu- og hlutastarf-
andi. Þingið fagnar því að Brunamálaskólinn hafi svarað
ákalli LSS um fjarnám.
Menntunarkröfur séu virtar
Þingið hvetur alla viðeigandi aðila til að virða allar kröfur
um menntunarskilyrði við ráðningar á slökkviliðs- og
sjúkraflutningamönnum. Kröfurnar koma fram í lögum um
brunamál nr 75/2000 og reglugerð nr. 792/2001 og ber að
fara eftir þeim.
Reglugerð um mönnun slökkvibíla
Þingið hvetur umhverfisráðherra til að setja reglugerð um
mönnun á slökkvibifreiðum líkt og finna má í reglugerðum
á Norðurlöndunum og víðar. Reglugerð skal gera ráð fyrir
fullri mönnun slökkvibfls innan tímamarka. Samkvæmt ráð-
leggingum Mannvirkjastofnunar er slökkviteymi samsett
af fimm manna hópi slökkviliðsmanna. í dag kemur alltof
oft upp (jafnvel daglega) sú staða að einn maður er eftir á
slökkvistöð til að manna dælubfl. Ekki er ásættanlegt að
þurfa að smala saman mönnum af öðrum stöðvum til að
slíkur hópur náist á brunavettvangi. Það tekur of langan
tíma og hætta á mistökum eykst. Fimm slökkviliðsmenn er
því krafa um lágmarksáhöfn á dælubfl.
Fyrir hlutastarfandi er þó hægt að mæta á staðinn sam-
hliða dælubfl. Hægt er að tryggja að fimm slökkviliðsmenn
séu á bakvakt um helgar og á öðrum frídögum. Einnig skal
boða sjúkrabfl með á vettvang óháð rekstraraðila.
Efla á viðbúnaðarstig á flugvöllum
Þingið hvetur ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála
og Flugmálastjórn íslands til að efla aftur viðbúnaðarstig
slökkviliða á flugvöllum landsins til fyrra horfs og gera ekki
frekari breytingar á starfsumhverfi án samráðs við LSS.
Menntun flugvallarstarfsmanna
Þingið hvetur Samgöngustofu til að gefa út reglur þess efnis
að flugvellir taki tilmæli ICAO samanber annex 14, sem lá-
markskröfu varðandi björgun úr flugslysum. Menntun flug-
vallarsstarfmanna sem sinna slökkvistarfi skal ekki vera lak-
ari á neinn hátt en krafist er hjá öðrum slökkviliðsmönnum.
Öryggi í jarðgöngum
Þingið skorar á samgönguráðherra að gera úttekt á öryggis-
málum í jarðgöngum með tilliti til aukinna krafna í ná-
grannalöndum okkar. Einnig að skilgreina og skýra hver ber
ábyrgð á öryggismálum í jarðgöngum.
Virði samninga um bakvaktir
Þingið krefst þess að sveitarfélögin í landinu og samn-
inganefnd sveitarfélaga virði ákvæði kjarasamninga um
greiðslur fyrir bakvaktir. Þingið vill að stjórn LSS geri átak
í að lagfæra bakvaktagreiðslumál félagsmanna og beiti sér
fyrir því að farið sé eftir kjarasamningum almennt og noti til
þess þau verkfæri sem til þarf.
Tveir löggiltir á hvern sjúkrabíl
Þingið hvetur heilbrigðisráðherra til að tryggja að lágmarks-
menntunarstig á sjúkrabílum í landinu verði tveir löggiltir
sjúkraflutningamenn. I undantekningartilfellum megi þó
annar starfsmaðurinn vera með stöðu nema sem lokið hafi
fyrsta hluta af þremur til náms sjúkraflutningamanna.
Aðkoma annarra heilbrigðisstarfsmanna telst ekki til lág-
marksmönnunar, heldur viðbót vegna sérstakra tilfella.
Stökkviliösmaðurinn 9