Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Side 15

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Side 15
Slökkviliðsmenn purfa árlega að gangast undir læknisskoðun og standast kröfur um pol og styrk. undir próf á þoli og styrk þar sem farið er eftir kröfum frá Mannvirkjastofnun. Gildistimi læknisskoðunar og þrek- prófs er eitt ár. Slökkviliðsstjóri skal tryggja eins og unnt er að reykköfun sé skipulögð og framkvæmd þannig að heilsu og ör- yggi þeirra sem taka þátt í aðgerðinni sé ekki stefnt í hættu. Einnig er á hans ábyrgð að reykköfunarbúnaður og hlífðarbúnaður uppfylli reglugerð og að viðhald og meðferð sé samkvæmt reglugerðum. Slökkviliðsstjóra ber að tryggja slökkviliðsmönnum þjálfun í samræmi við reglugerðir og að nauðsyn- legur fjöldi reykkafara sé fyrir hendi. Skráningarskylda slökkviliðsstjóra hefur verið aukin og ber þeim til dæm- is að skila inn skýrslu um sérhverja reykköfun. Meiri kröfurtil stjórnenda Kröfur til stjórnenda reykköfunar hafa verið auknar og skulu þeir að lágmarki hafa fimm ára reynslu sem reykkafari og eiga að baki 125 klukkustundir í reykköfun eða reykköfunaræfingum. Stjórnanda reykköfunar er óheimilt að sinna öðrum verkefnum á vettvangi sem trufla hans hlutverk. Honum ber að halda utan um skráningu tíma og atvika sem upp geta komið. Stjórnandi reykköfunar skal ætíð vera í fjarskipta- sambandi við reykkafara. Reykkafari skal ætíð vera meðvit- aður um ákvarðanir sínar og aðgerðir sem hann framkvæmir sem geta haft áhrif á öryggi hans og félaga hans. Reykkafari skul fullvissa sig um að reykköfunarbúnaður sé í lagi. Reykkafari skal halda skrá, „reyk- köfunarbók", yfir hverja reykköfun, þar með taldar æfingar. Þar á að færa inn ýmsar upplýsingar sem tíundaðar eru í reglugerðinni. Viðbrögð við slysum Slökkviliðsstjóri skal gera áætlun um hvernig bregðast skal við slysum og öðrum hugsanlegum neyðartil- vikum við reykköfun. Halda skal reglulegar æfingar samvæmt þessari neyðaráætlun. Einnig er honum skylt að tryggja að allir starfsmenn slökkviliðisins hafi þjálfun í að veita fyrstu hjálp. Sömuleiðis að sjúkrabúnaður sé fyrir hendi þegar reykköfun er í gangi, svo sem hjartastuðtæki, brunagel og súrefni. Mikilvægt er að minna slökkviliðs- menn á að skrá öll slys, óháð því hvort þau valda óvinnufærni eða ekki. Slys á að tilkynn til vinnueftirlits og fara á eftir verkferlum um vinnuslys. Nærslys eða næstum slys skal líka skrá og er slökkviliðum skylt að skila gögnum um nærslys til Mannvirkjastofnunar á hverju ári. Eins og sést af ofangreindu er margt nýtt í þessari reglugerð og mikilvægt að allir aðilar kynni sér hana. Fyrir hönd fagdeildar slökkviliðsmanna Lárus Kristinn Guðmundsson, slökkviliðs og neyðarflutningsmaður hjá SHS/ aðstoðarvarðstjóri BA Slökkviliðsmaðurinn 15

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.