Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Síða 17

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Síða 17
Mikil og góð samheldni er íliðinu i'Eyjum. Þrjátíu karlar eru íliðinu og eruflestir þeirra iðnaðarmenn.. líkmaður, sem ég auðvitað gerði," segir Ragnar og hlær dátt þegar hann rifjar upp þessa varamannsstöðu sína. Við andlát Adda Bald 2003 tók Ragnar síðan við stöðu slökkviliðs- stjóra sem og starfi forstöðumanns Áhaldahússins. „Eg gegndi báðum störfum til 2006 en þá var ákveðið að gera starf slökkviliðsstjóra að fullu starfi og ég var ráðinn sem slíkur auk þess að sjá um eldvarnaeftirlit í Vestmannaeyjum," segir Ragnar. Aðallega iðnaðarmenn í slökkviliðinu I Slökkviliði Vestmannaeyja eru 30 slökkviliðsmenn, allt karlar, og Ragnar segir að langflestir þeirra séu iðnaðar- menn og hafi svo verið um margra ára skeið. „Þarna eru húsasmiðir, rafvirkj- ar, vélvirkjar, netagerðarmenn, múrarar og járniðnaðarmenn svo að eitthvað sé nefnt, meira að segja gullsmiður sem er reyndar nýhættur," segir Ragnar. „Yfir sumarið skiptum við liðinu í fjóra hópa og þá er tryggt að alltaf sé einn af þeim hópum á eyjunni frá föstudegi fram til mánudags. Á veturna er skipt í tvo hópa en reyndar eru allir alltaf á bakvakt ef á þarf að halda." Yfir sum- arið segir Ragnar að æfing sé í hverri viku en yfirleitt hálfsmánaðarlega yfir veturinn og alls eru haldnar 27 æfingar á ári hverju. Allir í liðinu verða að fara í Brunamálaskólann og taka þar öll stig sem krafist er fyrir slökkvilið áhugamanna. „Bóklega hlutann af því námi taka menn yfirleitt á netinu en verklegi hlutinn er tekinn bæði hér heima og í Reykjavík," segir Ragnar og bætir við að ákaflega sjaldgæft sé að menn hætti í slökkviliðinu. „Það er nánast bara ef menn deyja eða flytja héðan búferlum," segir hann. „Við erum alveg þokkalega staddir með tækjabúnað enda verðum við að vera það þar sem við getum yfir- leitt ekki leitað annað eftir aðstoð, verðum að vera sjálfum okkur nógir," segir Ragnar. „En húsnæði slökkvistöðvarinnar er orðið allt of lítið og nauðsynlegt að finna henni annan samastað. Eins þarf að endurnýja tæki, svo sem bílakostinn á næstu árum," bætir hann við. Þjálfa fólk í að bregðast við Helstu verkefni slökkviliðsins, fyrir utan það að slökkva eld, segir Ragnar vera það sem snýr að vatnsleka og hita- vatnsleka, bæði í íbúðar- og iðnaðar- húsnæði. „Þá mætum við á svæðið til að dæla. Við erum líka með bílaklippur ef á þarf að halda í umferðarslysum, vorum að fá alveg nýjar klippur á dög- unum sem slysavarnadeildin Eykyndill gaf okkur. Bæði félög og fyrirtæki í Eyjum hafa stutt vel við bakið á okkur í slökkviliðinu; Kiwanis, Lions, Þessir hafa gegnt starfi slökkviliðsstjóra í Vestmannaeyjum: Brynjúlfur Sigfússon, kaupmaður 1913-1921 Georg Gíslason, kaupmaður 1921 -1937 Hafsteinn Snorrason, yfirverkstjóri 1937- 1960 Bergsteinn Jónasson, yfirhafnarvörður 1960-1964 Kristinn Sigurðsson, fyrrv. skipstjóri 1964-1984 Elías Baldvinsson, forstöðum. Áhaldahúss 1984-2003 Ragnar Baldvinsson 2003- Slökkviliðsmaðurlnn 17 Óskar Pétur Priöriksson

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.