Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Síða 24
SLOKKVILIÐ
11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
VESTMANNAEYJA
Gríðarlegt tjón varð þegar Hraðfrystistöð Vestmannaeyja brann
1950. Hún var þá stærsta frystihús landsins.
Eldgosið 1973
Sagt hefur verið að Heimaeyjargosið
sé stærsta verkefni slökkviliðs-
manna í íslandssögunni. Slökkvilið
Vestmannaeyja gegndi stóru hlutverki í
gosinu, fyrst með aðstoð við brottflutn-
ing fólks frá Eyjum og síðar björgun
verðmæta úr húsum, ruðningsstörf og
gasköfun auk slökkvistarfs. Fyrstu tvo
sólarhringana hafði slökkviliðið ekki
nema átta liðsmönnum á að skipa en
brátt barst liðsstyrkur ofan af landi.
Settar voru á vaktir en í verstu hrin-
unum var allt liðið á vakt sólarhringum
saman og barðist við eld og brenni-
stein. Þegar glóandi hraunstraumurinn
rann á hús varð þó engum vörnum
við komið. í febrúar tók slökkviliðið
þátt í að dæla sjó á hraunið til að hefta
framrás þess. Þegar gosinu lauk og
endurreisn hófst voru allar aðstæður
mjög breyttar. Slökkviliðsmenn í Eyjum
höfðu öðlast mikla reynslu í starfi við
hlið atvinnumanna og allur tækjabún-
aður hafði verið endurnýjaður. Fyrir
gos hafði slökkviliðið haft yfir þremur
bílum að ráða en nú voru þeir fimm.
Þá kynntust menn fyrst reykköfun fyrir
alvöru í gosinu og eignuðust alvöru
tæki til slíkra starfa.
Lögreglustöðin brennur
Eldur varð laus í lögreglustöðinni við
Hilmisgötu 6. október 1988. Þetta var
gamalt hús, margendurbætt og loft-
ræstikerfið lá um allt hús án öryggis-
loka. Því æddi eldurinn um allt hús á
örskömmum tíma. Lögreglumenn og
fangi, sem var í klefa, áttu fótum sínum
fjör að launa en talið var að fanginn
hefði kveikt í dýnu í klefanum með
þessum afleiðingum. A var norðan rok
og réðst ekkert við eldinn, allt brann
sem brunnið gat og húsið talið ónýtt.
Lögreglustöðin fékk síðan inni í hús-
næði við Faxastíg þar sem hún er enn.
ísfélagsbruninn
Einhver mesti eldsvoði í Eyjum varð 9.
desember 2000 þegar eldur varð laus í
Isfélaginu við Friðarhöfn. Utkall barst
rétt fyrir kl. 22.00 og var allt slökkvi-
liðið kallað út ásamt Björgunarfélagi
Vestmannaeyja, flugvallarstarfsmönn-
um og hafnsögubátnum Lóðsinum
með sínar dælur. Þá barst einnig
liðsauki frá Slökkviliði Reykjavíkur
en þaðan komu ellefu manns með
tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Eldsupptök voru í norðurhluta húss-
ins og mest áhersla var lögð á að verja
suðurhlutann. En eldvarnaveggur milli
norðurhúss og vinnslusalar gaf sig,
þrátt fyrir að mikið vatnsmagn væri til
staðar, og læsti eldurinn sig því í suð-
urbygginguna, þaðan í búningsklefa
starfsmanna og eftir millilofti að frysti-
vélasal. Þar voru ammoníaksgeymar
með sex tonnum af ammoníaki og voru
þeir kældir með því að dæla stöðugt
úr tveimur slöngum á þá auk þess sem
flugvallarbíllinn dældi stöðugt vatni á
geymana. Um kl. sjö að morgni þann
10. desember var slökkvistarfi að mestu
lokið en því lauk endanlega sólarhring
síðar. Tjón var mikið en með harðræði
tókst að bjarga um helmingi húsasam-
stæðunnar sem og miklum fiskbirgðum
í frystiklefum sem metnar voru á
hundruð milljóna.
Lifrarsamlagsbruninn
Þann 15. október 2009 kl. fjögur
að nóttu barst tilkynning um að
eldur væri laus í Lifrarsamlaginu við
Strandveg. Strax var ljóst að um mikinn
eld var að ræða og allt liðið því kallað
út ásamt flugvallarstarfsmönnum og
Björgunarfélagi. Þá var Lóðsinn beðinn
um að vera til taks. Milliveggir í hús-
inu, sem komið var til ára sinna, voru
einangraðir með torfi og gekk illa að
eiga við eldinn. Tveir kranabflar voru
notaðir til að rífa járn af þaki svo að
unnt væri að ná torfinu burt. Mikill
hiti var í húsinu og þegar súrefni
komst að eldinum magnaðist hann og
húsið hreinlega fuðraði upp. Aðeins
þrír metrar voru í íbúðarhús við hlið
Lifrarsamlagsins en slökkviliðinu tókst
að varna því að eldur bærist í það. Hús
Lifrarsamlagsins var gjörónýtt eftir
brunann en eldsupptök voru ókunn.
Drífandabruninn
Þann 30 nóvember 2011 var slökkvilið-
ið kallað út kl. rúmlega þrjú um nóttina
vegna elds í gistihúsinu Drífanda við
Strandveg. Drífandi er gamalt hús,
elsti hlutinn byggður 1921 og mikill
eldsmatur þar, trégólf milli hæða og
milliveggir og loftklæðningar úr tré. Til
að minnka hitann og auðvelda aðgengi
var settur yfirþrýstingur á húsið og
gekk þá vel að slökkva þótt útlitið væri
slæmt um tíma. Talið var að kviknað
hefði í út frá þvottavél og þurrkara
í þvottahúsi hótelsins. Verulegar
skemmdir urðu á húsinu vegna elds,
reyks og vatns en auk hótelreksturs
var ritfangaverslunin Eymundsson á
jarðhæð hússins.
Helstu heimildir: ívar Atlason. Mikilvægt og fórnfúst starf í heila öld. Jólablað Fylkis 2013.
Helga Hallbergsdóttir. Ágrip af sögu Slökkviliðs Vestmannaeyja. Handrit 2013.
24 Slökkviliðsmaðurinn