Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Síða 32

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Síða 32
Eyþór Rúnar Þórarinsson og Lárus Steindór Björnsson skrifa Tíu milljónum úthlutað úr starfsmenntunarsjóði Eyþór Rúnar Lárus Steindór Þórarinsson Björnsson Markmið starfsmenntunarsjóðs LSS er styrkja einstaklinga til frekara náms eða endurmenntunar sem tengist starfinu. Reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu LSS. í stjórn sjóðsins sitja fjórir aðilar, tveir frá landssam- bandinu, einn frá launagreiðanda og einn frá Sambandi íslenskra sveitar- félaga. Stjórnin hittist þrisvar sinnum á ári, í janúar, maí og september. Fundi stjórnar situr einnig fulltrúi frá skrif- stofu LSS og ritar hann fundargerð. A fundum er fjallað um umsóknir félagsmanna og hugsanlegar fyrir- spurnir vegna fyrri úthlutana. Sjóðurinn skiptist í tvo hluta. Annars vegar A-hluta fyrir félagmenn í fullu starfi og hins vegar H-hluta vegna hlutastarfandi félagsmanna. Helstu tekjur sjóðsins eru 0,33 prósent fram- lag launagreiðanda af heildarlaunum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Hvað er styrkt? Sjóðurinn veitir styrki til náms, námskeiða og ferða erlendis á ráð- stefnur og námskeið sem nýtast í starfi. Tómstundanámskeið eru ekki styrkhæf og heldur ekki námskeið sem launa- greiðanda ber að borga samkvæmt öðrum samningum. Þó hefur verið greitt fyrir gistingu og ferðir fyrir menn í H-hlutanum sem eru að sækja sér rétt- indi sem launagreiðandi ætti að greiða. Tíu milljónir á síðasta ári Á síðasta ári var rúmlega 10 milljónum króna úthlutað úr sjóðnum og er það mesta úthlutun úr sjóðnum í mjög langan tíma. Stærsti stykurinn fór í menntunarátak sem LSS gerði í sam- bandi við neyðarflutninganámskeið. Landssambandið sjálft var líka styrkt vegna 40 ára afmælisins en það hélt ráðstefnu í tengslum við afmælið og ráðstefnu um flugvallaslökkvilið í lok árs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðis- ins og fleiri héldu ráðstefnu um björgunarköfun og fékk hún styrk úr sjóðnum. Einnig Stúdíódagar norrænna slökkviliðsmanna sem haldnir voru í Reykjavík á síðasta ári. Af öðrum verk- efnum sem hlutu styrk má nefna nám- skeið um EPLS endurlífgun barna sem haldið var af Sjúkraflutningaskólanum, EMS-today sem haldið var í Washing- ton og skólagjöld vegna byggingariðn- fræði, hjúkrunarfræði, meistaranáms. Eins má nefna námskeið á vegum Mannvirkjastofnunar, námskeið hjá Lesblindulist, flugöryggisnámskeið á Schiphol og Extreme medicine Boston. Af ofangreindu má sjá að styrkirnir eru af ýmsum toga. Vonandi gefur þetta einhverjum hugmynd um hvað hægt er að gera með stuðningi sjóðsins. Framundan Sjóðsreglur hafa verið í endurskoðun síðasta ár, hvað A-hlutann varðar. Er það gert til að einfalda reglur um út- hlutun en það hefur verið á reiki hvað sé styrkhæft og að hvaða marki. Einnig stendur til að lagfæra reglur í tengslum við ráðstefnuhald og aðkomu slökkvi- liða að sjóðnum. Höfundar eru fulltrúar LSS ístjórn starfsmenntu narsjóðs. (.LOIAXl HF ARMULA 42, 108 REYKJAVIK SÍMAR 553 4236 & 553 5336 FAX 588 8336 32 Slökkviliösmaðurinn Eldvörn er nauðsyn ELDVARNARHURÐIR

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.