Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Side 7

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Side 7
Hvað um Fréttabréfið? Leitað svara um þróun og efnisumfjöllun Ég varpaði fram til nokkurra félaga spumingunni um Fréttabréfið, hvernig fólki hefði þótt það þróast, hvað ætti að vera öðruvísi o.s.frv. Hér koma svör annars vegar tveggja stjómarkvenna í MS, þeirra Gyðu Olafsdóttur og Sigurbjargar Armannsdóttur og svo hins reynda félagsmálamanns VigfúsarGunn- arssonar fyrrum stjórnarmanns í Ö.B.Í. Á öðrum stað eru s vo ágústþank- ar Sigrúnar Báru sem andsvar við samaerindi: Þá fyrst þær Gyða og S igurbjörg. Kæri Helgi! Hér færðu svörin við spumingum þínum varðandiÖ.B.I.-blaðið: 1) Okkur finnst blaðið hafa þróast í þá átt, að vera mikilvægt upp- lýsingarit um réttindi og lög er varða fatlaða, þar sem hið opinbera otar ekki þessari nauðsynlegu vitneskju aðhinum fatlaða. Það eru svo margir sem vita ekki um réttindi sín eða þá aðstoð sem þjóðfélagiðgeturveitt. Vonumst við til að þessari stefnu verði haldið. 2) Hvað okkar félag varðar, hafa því verið gerð mjög góð skil og starfsemi bæði félagsins og dagvistarinnar verið kynnt og viljum við sérstaklega þakka það. Slíkar kynningar teljum við eðlilegan þátt í þjónustu við aðildarfélög Ö.B.Í. Efni blaðsins teljum við vera fjölbreytt og gott og ritstjóranum og hans mönnum til hins mesta sóma. Með vinsemd og félagskveðju GyðaÓlafsdóttir, Sigurbjörg Ármannsdóttir. Og svo kemur Vigfús Gunnarsson: Heill og sæll Helgi! Ég þakka þér fyrir góða ritstjóm á Fréttabréfi Ö.B.Í. Það er mjög Sigurbjörg Ármannsdóttir. Vigfús Gunnarsson. þýðingarmikið málgagn fatlaðra hér á landi. N ú þegar frumbemskan er að baki, er verðugt verkefni að velta fyrir sér markmiðunum með útgáfu bréfsins. Þar geta lesendur lagt sitt af mörkum og komið með hugmyndir og mótað stéfnuna, m.a.: Hvað eru æskilegar úrbætur í málefnum fatlaðra, sem þarf að hrinda í framkvæmd, t.d. á næstu fjórum árum? Ég tel, að um þetta efni ætti að Gyða Ólafsdóttir. fjalla í fyrsta bréfi 1991, sem þá yrði að raunverulegri handbók fyrir sveitarstjórnar- og alþingismenn og jafnvel okkur kjósendur líka. Hækkum seglin, skerpum baráttuna, fyrir stafni eru mörg markmið sem við með samvinnu getum náð. Kær kveðja Vigfús Gunnarsson. Ritstjóri er auðvitað ánægður, enda létu þær Gyða og Sigurbjörg þetta fylgja: Þetta bréf er eigi skjall, því ritstjórinn er besti kall. Og það er nú það H.S. Ritstjóri hvetur félaga óspart að senda honum línu, gera athuga- semdir, finna að, veita uppörvun, benda á efni og ekki síður leggja það til, því alltaf er þörf ferskra og frjórra sjónarmiða. Betur sjá augu en auga segir þar og það gildir um Fréttabréfið ekki síður en annað. Upp með pennann, þið eigið leikinn svo gripið sé til skáldamáls til hálfs. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 7

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.