Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Page 9

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Page 9
Frá sumarferðalagi. en bókin kom út á jólaföstu 1988. Er óhætt að segja að í bókinni fái foreldrar svar við ýmsum spumingum sem brenna á þeim, er það uppgötvast að bam þeirra er heymarskert. Strax í upphafi var komið á styrkt- arfélagakerfi og hefur það reynst félaginu traust stoð og árviss tekju- stofn. Önnur af tekjulindum félagsins er og hefur verið basar sem félagskonur halda a.m.k. einu sinni á ári. A fyrstu árunum var basarinn alltaf haldinn í byrjun nóvember og uppistaðan var handavinna alls konar og filt- og jólavörur, sem konurnar unnu sjálfar að. Það var föst regla að hittast alltaf einu sinni í viku á útmánuðum og síðan tvisvar í viku á haustmánuðum fyrir basarinn. Það má nærri geta að þetta var mikil vinna, en samstarfið efldi líka samstöðu og kynni meðal kvennanna og það sem þýðingarmest var, að þær eldri gátu miðlað hinum yngri af reynslu sinni í umgengni við heymardaufu börnin og leiðbeint þeim, hvernig best væri að bregðast við ýmsum aðstæðum og eins gátu mæðurnar borið sig saman og fundu að þær voru ekki einangrað tilfelli með sitt heymarskerta barn. Það er hægt að orða þetta þannig að konumar hafi sjálfar verið „félagsráðgjafar" hver fyrir aðra, því að ekkert slíkt var boðið upp á á þessum tíma og eflaust hefur sú „félagsráðgjöf ‘ sem þama fór fram gert mörgu foreldrinu lífið léttbærara. Foreldrafélagið hefur alltfrá stofn- un leitast við að styðja og styrkja félagsstarf heyrnarlausra. / Ifyrstu byrjaði Foreldrafélagið að reka skrifstofu upp úr 1970 í húsnæði Fleymarhjálpar og var sú starfsemi smá í sniðum í fyrstu og byggð á sjálfboðavinnu eingöngu. Síðar ráku Foreldrafélagið og Félag heyrnarlausra sameiginlega skrifstofu í nokkur ár, en núna síðustu árin hefur Foreldrafélagið skrifstofuaðstöðu í húsnæði Félags heyrnarlausra að Klapparstíg 28, Reykjavík. Á fimmta starfsári félagsins 1971 efndi það til ráðstefnu með heyrnardaufu fólki víða aðaflandinu.Fengustþarupplýsingar um hagi þess og afkomu og er þetta trúlega fyrsta könnunin á högum heymarlausra. Þetta var liður í viðleitni félagsins að efla kynni við heyrn- ardauft fólk. Önnur könnun var svo gerð 1975 afdönskumheymleysingja- ráðgjafa Agnete Munkesö. Af þeirri könnun mátti ráða að brýn nauðsyn er á að starfandi sé hér félagsráðgjafi fyrir heyrnarlausa. Árið 1975 var stofnuð samstarfsnefnd, þar sem áttu sæti fulltrúar frá Foreldrafélaginu og Félagi heymarlausra og hafa félögin mikla samvinnu um ýmis mál. Núna í vor bauð Félag heyrnarlausra Foreldrafélaginu að taka þátt í útgáfu mánaðarlegs fréttabréfs heyrnarlausra og hefur verið ákveðið að taka þessu boði og mun það samstarf hefjast í haust. Það hefur verið gæfa þeirra þriggja félaga, Foreldrafélagsins, Félags heyrnarlausra og Heyrnar- hjálpar, sem vinna að málum heym- arskertra og heymarlausra að sam- vinna hefur alla tíð verið með miklum ágætum, en starfsemi þeirra allra er nú undir sama þaki. Foreldrafélagið gerðist aðili að Öryrkjabandalagi íslands árið 1973, fyrsti fulltrúi félagsins hjá bandalaginu varJóhannBergþórsson, en Jóna Sveinsdóttir hefur verið fulltrúi þess frá árinu 1975. Það var Foreldrafélaginu mikill styrkur að gerast aðili að svo sterkum samtökum fatlaðra, því að með því fengust upplýsingar um allt það helsta sem var að gerast í málefnum fatlaðra og meiri líkur á stuðningi við okkar mál og það hefur gengið eftir. Félagið hefur lagt nokkuð af mörkum árlega til kaupa á tómstunda- og íþróttatækjum til Heyrnleysinga- skólans og núna í seinni tíð hefur ver- ið unnið að því að gefa og safna bókum til að koma upp bókasafni í Heyrnley s- ingjaskólanum og var það opnað fonn- lega í desember 1986. Það markverðasta frá í sumar var að 23.—24. júní sl. voru stofnuð samtök foreldrafélaga heyrnarlausra barna í Evrópu og er Foreldra- og styrktarfélag heymardaufra eitt af stofnfélögunum. Um 20 lönd eru stofnaðilar. Foreldrafélagið hefur ávallt leitast við að vinnaaðframgangi þeirramála, er snerta heymardaufa og heyrnarlausa og eins hefur það átt fulltrúa í flestum nefndum, sem fjalla um mál þeirra. Ég hef nú stiklað á nokkrum þáttum úr sögu félagsins, en margt fleira hefði mátt nefna. Það er von mín að lesendur séu nokkru fróðari um Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra og baráttumál þess. Jóna Sveinsdóttir. Hinni b jartsýnu baráttukonu er þökkuð afar vönduð og vel gerð samantekt uni leið og héðan eru sendar einlægar óskir um árangursríkt starf félagsins hennar Jónu. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 9

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.